Nasri Aïcha skrifaði:
Peut on adapter le modèle,en le tricotant de haut en bas,؟
27.10.2024 - 16:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Nasri, probablement - vous trouverez ici les modèles homme tricotés de haut en bas - l'un d'eux pourra peut-être vous inspirer. Bon tricot!
28.10.2024 - 09:39
Mitch skrifaði:
Ifinished knitting up to the neck size M. I have 104 st on needles and 32 on holder. I am to knit up 142 around the neck. That leaves only 6 st total (3 on each side) to pick up along both sides of the front of the neck along the 5 cm after leaving the sts on the holder. It's not enough to cover that 5cm section on each side. Do I just add more stitches?
11.10.2024 - 04:21DROPS Design svaraði:
Dear Mitch, just try to pick up as many stitches as possible then adjust to 108 sts on first round before working rib. Happy knitting!
11.10.2024 - 15:53
Missy skrifaði:
Hi there. I’m new to this site and these patterns and I’m battling to understand how we work on the wrong side according to the diagrams specifically when there is a cable involved. Do we simply knit in place of a purl on the wrong side and vice versa? Or is it more complex? Thank you
29.09.2024 - 22:19DROPS Design svaraði:
Dear Missy, as long as you work in the round, just work all stitches as shown in diagram, ie either K (white square) or P (cross) (+ cables of course), then when casting off stitches for neck, you will work from WS as explained under diagram text: purl the white squares and knit the crosses from wrong side. Happy knitting!
30.09.2024 - 10:16
Sylvette CHANGEY skrifaði:
Hello! What a wondeful sweater! Is it possible to have the explanations in French, please? Thank you!
07.09.2024 - 16:29DROPS Design svaraði:
Dear Sylvette, you can select the language in the bar after the materials section, next to the print and comments buttons. Here you have the French version: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=10408&cid=8. Happy knitting!
08.09.2024 - 19:26
Alba skrifaði:
Hej! Jag blir förvirrad av A.7. Jag behöver göra tvärtom om det ska bli rätt. Jag har gjort ett liknande mönster förut och A.7 är fel. Den borde visa tvärtom. Dvs sätt två maskor på fältstickan framför och därefter en på flätstickan bakom. Inte så som det står nu.
03.08.2024 - 17:30DROPS Design svaraði:
Hej Alba, hvilket et af symbolerne anser du er fejl?
06.08.2024 - 14:15
Caroline skrifaði:
Jeg forstår ikke helt hvilken rapport jeg skal følge når jeg tager ud midt under ærmet, skal jeg læse rapport A.9/A.10 så alle masker i den rapport er brugt og så bagefter A.4? Er de rigtigt at det skal forståes sådan
31.07.2024 - 20:03DROPS Design svaraði:
Hej Caroline, du startede ved en markering, de nye masker strikkes i masken før markeringen og således over en ny maske for hver gang du tager ud :)
02.08.2024 - 11:16
Sylvie skrifaði:
Bonjour. Je tricote ce modèle en S et je ne comprends pas comment je dois tricoter A10 pour les manches. Cory
29.06.2024 - 19:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, le diagramme A.10 en taille S se tricote sur 10 mailles: 2 m envers et 6 m endroit (ou torsade en fonction des rangs). Bon tricot!
01.07.2024 - 08:43
Chelsea skrifaði:
Hallo, Ik zit vast met het vermeerderen van steken in de mouwen. Ik heb dus de 1ste vermeerdering gedaan, maar nu moet ik A9 beginnen (in maat xxl) dus die beginnen met de kleine kabel. Als ik dit doe met de vermeerderde steek en de 1ste van A9 schuift heel het patroon toch op? Of doe ik de vermeerderde steken in A4 tot ik een volledige A9 kan maken? Alvast bedankt!
28.06.2024 - 21:58DROPS Design svaraði:
Dag Chelsea,
Je laat het patroon zo ver mogelijk door lopen onder de mouwen en de steken die niet in patroon passen brei je in tricotsteek. Dus zorg ervoor dat de steken van het telpatroon over de rest van de mouw steeds mooi boven elkaar blijven.
02.07.2024 - 22:09
Barbro Tengberg skrifaði:
Hej! Tack för snabbt och förklarande svar. Jag har minskat 4 m i stället för 8 vid varje tillfälle för raglan. Hälsninga Barbro
03.06.2024 - 15:13
Barbro Tengberg skrifaði:
Tack för snabbt och förklarande besked. Jag har minskat för lite för raglan, bara minskat 4 m i stället för 8 m vid varje tillfälle. Hälsningar Barbro
03.06.2024 - 15:10
Ice Island#iceislandsweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með laskalínu, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 224-10 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 23 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 3,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki í. Prjónið frá byrjun á umferð þannig: Prjónið lykkju með prjónamerki í (þessi lykkja er alltaf prjónuð sem fyrsta lykkja í A.4), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur eins og áður fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur jafnóðum inn í A.9/A.10 þar til þú verður með pláss fyrir alla mynstureininguna, síðan eru næstu útauknar lykkjur prjónaðar í A.4. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. FRÁ RÉTTU: FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri). FRÁ RÖNGU: FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 1 lykkju brugðið (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handvegi.. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg. Berustykkið er síðan prjónað í hring upp að hálsmáli jafnframt sem lykkjum er fækkað fyrir laskalínu. Lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli mitt að framan. Síðan er afgangur af berustykki prjónað fram og til baka á hringprjóna til loka máls. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fijtið upp 272-288-304-344-360-392 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-24-28-36 lykkjur, prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.2 (= 18 lykkjur), A.3 (= 26 lykkjur), A.2 (= 18 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 44-52-60-52-60-76 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið A.2, A.3, A.2, prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-24-28-36 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 lykkju brugðið. Haldið svona áfram með stroff – ATH: Í mynsturteikningu A.2 og A.3 eru endurteknar einungis 2 fyrstu umferðir á hæðina. Nú er eftir 1 umferð þar til stykkið mælist 5 cm, fækkið lykkjum í stroffprjóni – þetta er gert þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 23-27-31-27-31-39 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-6-6-6-6-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri), prjónið síðustu umferð í A.3 (= 26 lykkjur og 2 lykkjur færri), prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri), prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 46-54-62-54-62-78 lykkjur og fækkið jafnframt um 13-13-13-13-13-17 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri), prjónið síðustu umferð í A.3 (= 26 lykkjur og 2 lykkjur færri), prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri), prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir síðustu 23-27-31-27-31-39 lykkjur og fækkið jafnframt um 7-7-7-7-7-9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 238-254-270-310-326-350 lykkjur. Stroffið er nú tilbúið. Setjið 1 prjónameri í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 120.-128.-136.-156.-164.-176. lykkju í umferð (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á síðar að fella af lykkjur fyrir handveg hvoru megin við þessi prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú byrjar mynstrið og fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið A.4 yfir fyrstu 17-21-25-21-25-31 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.6 (= 17 lykkjur), A.7 (= 24 lykkjur), A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.8 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.4 yfir næstu 33-41-49-41-49-61 lykkjur (prjónamerki í hlið situr í miðju að þessum lykkjum), prjónið A.5 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið A.6, A.7, A.6, prjónið A.8 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjum og prjónið A.4 yfir síðustu 16-20-24-20-24-30 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36 cm í öllum stærðum, fellið af fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. Nú eru ca 26-28-30-32-34-36 cm að loka máli. Stillið af að næsta umferð sé oddatala í umferð í mynsturteikningu, fellið af fyrstu 6-6-7-7-8-8 lykkjur fyrir handveg, haldið áfram með mynstur eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur á undan næstu lykkju með prjónamerki í, fellið af 11-11-13-13-15-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur í umferð og fellið af síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjurnar = 108-116-122-142-148-160 lykkjur eftir fyrir framstykki og 108-116-122-142-148-160 lykkjur eftir fyrir bakstykki. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 56-60-60-64-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 19-15-15-19-19-15 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 75-75-75-83-83-83 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Nú byrjar mynstrið og fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið A.4 yfir fyrstu lykkjuna í umferð (prjónamerki situr í þessari lykkju), prjónið A.9 (= 8-8-8-12-12-12 lykkjur – byrjið í mynsturteikningu við prjónamerki fyrir þína stærð og prjónið mynsturteikningu frá hægri til vinstri), prjónið A.6 (= 17 lykkjur), A.7 (= 24 lykkjur), A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.10 (= 8-8-8-12-12-12 lykkjur – byrjið við fyrstu lykkju í A.10 og prjónið frá hægri til vinstri að prjónamerki í þinni stærð). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 8-10-7-8-9-6 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-2½-2½-2½-2-2 cm millibili alls 11-15-17-15-17-19 sinnum = 97-105-109-113-117-121 lykkjur – ATH: Útauknar lykkjur eru fyrst prjónaðar inn í A.9/A.10 þar til nægilegt pláss er fyrir heila mynstureiningu á breiddina, síðan eru næst nýjar lykkjur prjónaðar í A.4. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-49-48-46-45-43 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. Stillið af að næsta umferð sé oddatölu umferð í mynsturteikningu og fellið lykkjur af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 6-6-7-7-8-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur í umferð og fellið af síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjur = 86-94-96-100-102-106 lykkjur. Klippið þráðinn. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 4,5 eins og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 388-420-436-484-500-532 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu. Byrjið umferð í skiptingunni á milli bakstykkis og vinstri ermi – setjið e.t.v. eitt prjónamerki hér til að merkja byrjun á umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en lykkjur hvoru megin við öll 4 prjónamerkin eru prjónaðar í sléttprjóni (= 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma). YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir laskalínu, jafnóðum og lykkjum er fækkað er einnig fellt af fyrir hálsmáli mitt að framan og síðasta umferðin er prjónuð fram og til baka frá miðju að framan. Þegar ekki er nægilega mikil til af lykkjum til að gera kaðal, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur. Lestu kaflann LASKALÍNA og HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 24-27-30-32-36-38 sinnum og síðan í hverri umferð alls 7-7-6-7-4-4 sinnum. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 55-57-59-60-62-64 cm (stillið af að næsta umferð sé oddatölu umferð í mynsturteikningu), fækkið um 6-6-6-10-10-10 lykkjur jafnt yfir miðju 24-24-24-32-32-32 lykkjur að framan – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Setjið síðan miðju 30-32-34-42-46-54 lykkjur á framstykki á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið áfram að byrjun á umferð. Klippið þráðinn frá. Byrjið frá röngu við háls og haldið áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-1-1-2-2-2 sinnum í hvorri hlið. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og hálsmáli eru 98-104-102-112-116-124 lykkjur eftir í umferð. Klippið þráðinn frá. Prjónið tvöfaldan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að aftan og prjónið upp ca 134-142-142-162-170-186 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan og á prjóni) á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Karisma. Í næstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir til að koma í veg fyrir að hálsmálið verði of vítt – prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt lykkjum jafnt yfir til 104-108-112-116-120-124 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 8-8-8-10-10-10 cm. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í hverri brugðinni einingu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, svo ekki myndist gat). Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 11-11-11-13-13-13 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5 og fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #iceislandsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.