Sharon skrifaði:
Hi! Am making the large size and knitted 1 cm more than I should, would this be a problem or is it necessary to pull back? I don’t think so but thought I would ask. I am also about to start decreasing for the armhole. The first part of the instructions says to decrease 4 stitches at beginning of next to rows. Are the increases made inside the garter edge or the first stitches decreased here are the edge stitches. Thanks for your response. S
29.11.2021 - 23:36DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, wheter to frog the piece depends on if you want your vest to be longer than the modell or not. As for the awlmoles the pattern says CAST off 4 stitches, and that should be sone at the beginning of the row. Happy Stitching!
30.11.2021 - 03:27
Sharon skrifaði:
Hi, got to use a size 5mm to get gauge. What needle size would you suggest for the small size? Thanks so much for your help.
24.11.2021 - 21:09DROPS Design svaraði:
Hi Sharon, If size 5 mm needle gives you the right guage then use this size for the S size top. We say that needle size is only a guide, to be adjusted to your knitting tension when necessary. Happy crafting!
25.11.2021 - 07:00
Anna Plato skrifaði:
Hur många maskor ska jag lägga upp Hur många ta in för ärmhål och hals Till västen visit Vienna i stl L?
24.11.2021 - 11:42DROPS Design svaraði:
Hej Anna. I storlek L lägger du upp 121 maskor. Till ärmhål maskar du först av 4 m på varje sida, sedan minskas det 1 maska i varje sida (enligt MINSKNINGSTIPS-2) 5 gånger. Mvh DROPS Design
24.11.2021 - 12:07
Agneta skrifaði:
Eftersom man stickar västen i 2 delar ett framstycke och ett bakstycke så stickar man väl på vanliga stickor och inte rundstickor. Rundstickan är väl bara till halsringningen.
21.11.2021 - 10:44DROPS Design svaraði:
Hej Agneta. Det är tänkt att man ska sticka delarna fram och tillbaka på en rundsticka, men vill du hellre använda vanliga parstickor så kan du självklart göra det. Mvh DROPS Design
22.11.2021 - 10:03
Anette skrifaði:
Ich nochmals. Hab es selbst rausgefunden. War ein Brett vor dem Kopf.
15.11.2021 - 15:42
Anette skrifaði:
Hallo, ich komme nicht weiter bei den Armausschnitten. Am Rücken erste Abnahme gemacht. Nä. Rh. 8/9 Maschen im Muster. Danach lt. Abnahmetipp 11 Maschen wie zuvor stricken?? Ich habe doch nur 9 im Rippenmuster. Verstehe ich nicht.🤦♀️🤷♀️.
15.11.2021 - 13:53DROPS Design svaraði:
Liebe Anette, bei den Armausschnitten soll man beidseitig innerhalb 11 Maschen abnehemen - siehe ABNAHMETIPP-2 (gilt für Abnahme für den Armausschnitt):: 1 Randmasche Kraus rechts, 8 M Rippenmuster + 2 M glatt rechts. Viel Spaß beim stricken!
16.11.2021 - 08:13
Annika Holmström skrifaði:
Hej, jag vet inte om jag tittar dåligt, men jag hittar inte var jag kan se vilken storlek jag ska välja av mönster 227-9 Visit Vienna. Kan ni säga mig var jag hittar det? / Med vänlig hälsning, Annika
21.10.2021 - 19:18DROPS Design svaraði:
Hej Annika. Längst ner på mönstret, under diagrammet hittar du en måttskiss med mått i cm på alla storlekar. Mvh DROPS Design
22.10.2021 - 08:31
Helle Bang Simmonds skrifaði:
Genial måde at lave ærmeåbning - det bliver sååå flot !
15.10.2021 - 18:14
Julie skrifaði:
Thanks for the reply. If I have to change the needle size for the 4.5mm to meet the gauge would I also have to adjust the 3.5mm needle size in some way?
14.10.2021 - 08:43DROPS Design svaraði:
Hi Julie, yes, if you change needles 4,5 for 3,5, you shoud use 2,5 for the diagram A.1. Happy knitting!
14.10.2021 - 08:49
Julie skrifaði:
When checking the guage for Visit Vienna Pattern, which needles size are we checking the guage for? The pattern calls for two needle sizes, a 4.5mm and a 3.5mm.
14.10.2021 - 08:14DROPS Design svaraði:
Hi Julie, you should use needles 4,5 for the gauge. Happy knitting!
14.10.2021 - 08:38
Visit Vienna#visitviennaslipover |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Puna. Stykkið er prjónað með köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 103 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 17) = 5,9. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman og ekki er fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Prjónið fyrstu 11 lykkjur eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 13 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (á við um úrtöku fyrir hálsmáli): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir hálsmáli þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan hálsmáli þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 103-113-121-133-149-163 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3,5 með DROPS Puna. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17-19-19-21-25-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1= 86-94-102-112-124-136 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, prjónið nú mynstur þannig (frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 12-12-12-14-16-18 lykkjur, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 13-13-13-15-17-19 lykkjur, 1 lykkja brugðið, A.1 yfir næstu 11-11-11-13-15-17 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm (stroffið í hvorri hlið mælist ca 3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu), prjónið þannig: Fellið af fyrstu 4-4-4-6-8-10 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg (fellið af með sléttum lykkjum) = 78-86-94-100-108-116 lykkjur. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, mynstur eins og áður yfir næstu 8 lykkjur, sléttprjón þar til 9 lykkjur eru eftir, mynstur eins og áður yfir næstu 8 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 1-3-5-6-8-10 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, fellið af miðju 36-36-40-40-44-44 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl (= 20-22-22-24-24-26 lykkjur) er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-3! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 18-20-20-22-22-24 lykkjur eftir á öxl. Prjónið mynstur og sléttprjón þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 35-37-37-39-39-41 cm (nú eru 76-80-84-88-92-96 lykkjur í umferð), setjið miðju 18-18-20-20-24-24 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl (= 29-31-32-34-34-36 lykkjur) er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu fækkar um 1 lykkju fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA-3! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 11-11-12-12-12-12 sinnum = 18-20-20-22-22-24 lykkjur eftir á öxl. Prjónið mynstur og sléttprjón þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Byrjið frá réttu efst við annan axlasauminn. Prjónið upp innan við 1 kantlykkju ca 120 til 148 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði á framstykki) á stuttan hringprjón 3,5 með Puna. Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2 og að kanturinn dragist ekki saman / verði of laus miðað við hálsmál. Prjónið e.t.v. fleiri / færri lykkjur. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur þar til kanturinn í hálsmáli mælist 4½ cm. Fellið af með snúnar lykkjur slétt yfir snúnar lykkjur slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #visitviennaslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.