Verena Gläser skrifaði:
Hallo, mit welchen Farben ist denn der lila Pulli von Nina gestrickt? Ich würde ihn so gerne nachstricken :-)
02.04.2025 - 12:56DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Gläser, sie hat Farben DROPS Kid-Silk 13, 16, 21 und 30 gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
02.04.2025 - 14:12
Kathie Rickman skrifaði:
Love this sweater
11.09.2024 - 18:44
Kathie Rickman skrifaði:
Love this sweater!
11.09.2024 - 18:44
Marie Noelle Marquet Bassani skrifaði:
Merci de votre réponse pour la longueur…mais je parlai de la « largeur » totale, taille S à partir du centre haut 8+4+22 = 34 cms et le 1/2 dos est coté en bas 47/2 = 23,5 cms ?! Merci encore! Marie
17.10.2022 - 09:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Marquet Bassani, j'ai peur de ne pas comprendre votre décompte, la largeur du bas du pull se fait à partir du nombre de mailles, ex en taille S vous avez 104 mailles pour le dos/devant, soit environ 95 cm de circonférence, soit 47 cm pour la largeur dos et autant pour la largeur devant. La longueur des raglans ne peut pas être ajoutée à la largeur du dos/devant, elle ne compte que pour la longueur des manches. Peut -être que cette leçon pourra vous aider à déchiffrer le schéma. Bon tricot!
17.10.2022 - 10:28
Marquet Bassani skrifaði:
Bonjour, dans les côtes du diagramme en cm, la largeur totale de 47 cms ne correspond pas à la taille des deux emmanchures de 22 +22 et l’encolure de 16 = 60 cms ?!? Merci de votre réponse, Marie
15.10.2022 - 14:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Massani, la hauteur totale (en taille S) se décompose ainsi: 4 cm d'épaule + 22 cm d'empiècement + 18 cm après l'empiècement + 6 cm de côtes soit: 4+22+18+6=50 cm. Bon tricot!
17.10.2022 - 09:16
Pia Liukku skrifaði:
Hei. Onnistuuko ohjeen soveltaminen niin että tuplaan ohjeen silmukkamäärät puolet ohuemmalla langalla.
05.09.2022 - 14:34DROPS Design svaraði:
Hei, tällöin sinun on tarkistettava neuletiheys. Neuletiheyden tulee olla sama kuin ohjeessa annettu tiheys. Ohjeessa tehdään kuitenkin paljon kavennuksia ja lisäyksiä, joten työstä ei tule saman muotoinen kuin ohjekuvassa. Paremman lopputuloksen saat tässä tapauksessa, jos neulot työn kaksinkertaisella langalla.
08.09.2022 - 17:24
Pia skrifaði:
Hei. Mikä on rinnanympärys koossa M ja L?
11.08.2022 - 09:21
Anne Chemin skrifaði:
Bonjour, y a t-il une autre méthode plus "classique" pour tricoter ce pull ? avec des aiguilles, sans le faire avec des aiguilles pour tricoter en rond ? Si oui pouvez-vous m\'envoyer le modèle ?Merci beaucoup.
21.01.2022 - 13:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chemin, nous avons effectivement parmi tous nos pulls des modèles tricotés en différentes parties et en rangs avec des coutures, mais celui-ci se tricote en rond et de haut en bas; retrouvez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites si besoin. Bon tricot!
21.01.2022 - 15:59
Anna-Maria skrifaði:
Har stickat denna tröja med en tråd kid-silk och en tråd stops air, det blev en fantastiskt skön tröja! Enkel modell och så varm och härlig, stickar en till åt en vän nu som såg min och önskade sig en egen!
11.11.2021 - 18:47
Juni Rawati skrifaði:
Armadillo
07.08.2021 - 06:23
Woodland Sparkle Sweater#woodlandsparklesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-2 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju í sléttprjóni (laskalína) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (= það eiga ekki að myndast göt). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 7,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 50-52-54-54-60-60 lykkjur á hringprjón 7 með einum þræði í hvorum lit í DROPS Kid-Silk (= 4 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjóið stroff svona í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 52-56-60-60-68-68 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið þannig – frá miðju að aftan: 7-8-9-9-11-11 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-16-18-18-22-22 lykkjur sléttprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-8-9-9-11-11 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið áfram í sléttprjóni og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið svona út í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 14-16-17-19-19-21 sinnum hvoru megin við laskalínu – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 164-184-196-212-220-236 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 23-26-28-31-33-36 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 36-40-42-44-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 46-52-56-62-66-72 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-40-42-44-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 23-26-28-31-33-36 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 104-116-124-136-148-160 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-18-19-19-19-19 cm. Skiptið yfir í hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-40-42-44-44-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 42-46-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-8-8 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Haldið áfram með úrtöku með 12-6-6-4-4-4 cm millibili alls 3-5-5-6-6-6 sinnum = 36-36-38-38-40-42 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-34-34-32-30-29 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 40-38-38-36-34-33 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #woodlandsparklesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.