Ally skrifaði:
Hello, when you are casting on the edge stitches on the top of the sleeve i.e. for size S you cast 3stitches at each end 3x. Do you do it as a back loop cast on? I have tried that and it gives a "step" how do you hide that when you sew it together. Or is there other technique?
03.12.2023 - 21:30DROPS Design svaraði:
Dear Ally, in this video you can see the 2 techniques we recommend for casting on on the side of the piece: https://www.garnstudio.com/video.php?id=94&lang=en. Happy knitting!
03.12.2023 - 23:21
Gerd Trana Hansen skrifaði:
Hvorfor er ikke str oppgitt i cm ? Umulig og strikke et plagg uten og vite str på det ferdige resultatet...
26.07.2023 - 10:21DROPS Design svaraði:
Hei Gerd. Om du ser på målskissen til genseren nederst på oppskriften vil du se alle mål ( i cm) du trenger å vite. mvh DROPS Design
26.07.2023 - 15:04
Evelien Gout skrifaði:
Nip it in the bud
16.08.2021 - 16:53
Jennifer Engström skrifaði:
Snowberries
14.08.2021 - 21:09
Marina skrifaði:
Boba tea
12.08.2021 - 23:36
Mara skrifaði:
Snowdrops or First Snow
04.08.2021 - 22:05
White Rabbit#whiterabbitsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með kúlum, puffermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-13 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 91 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 6,5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjónaðar eru til skiptist ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 2 lykkjur þannig: Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fækkið um 1 lykkju þannig: Fækkið lykkju í byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚRTAKA-3 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig og prjónað er neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður – fyrst er prjónað fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Síðan er stykkið sett saman með því að sauma öll stykkin saman. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 93-99-107-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka í 7 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-14-16-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 79-85-91-100-110-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú umferð með kúlum þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 1215-18-9-14-19 lykkjur, A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 40-40-40-66-66-66 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 20-20-20-22-22-22 lykkjur), prjónið fyrstu 13-13-13-14-14-14 lykkjur í A.1, 12-15-18-9-14-9 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til prjónað hefur verið í sléttprjóni í 5-5-5-6-6-6 cm frá síðustu kúlu – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Endurtakið mynstur svona með umferð með kúlum með 5-5-5-6-6-6 cm sléttprjón á milli hverra umferða. Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 71-77-81-90-98-108 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir miðju 53-53-53-58-58-58 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, jafnframt er fækkað fyrir handveg í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 0-0-0-2-4-6 sinnum og 1 lykkju í annarri hverri umferð 6-8-9-8-7-7 sinnum (= 6-8-9-12-15-19 lykkjur færri í hvorri hlið) = 59-61-63-66-68-70 lykkjur. Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm – stillið mynstrið af þannig að prjónaðar séu minnst 4 umferðir í sléttprjóni innan úrtaka fyrir hálsmáli byrjar, prjónið e.t.v. nokkrar auka umferðir í sléttprjóni í stað kúlna yfir miðju 29-29-29-32-32-32 lykkjur. Setjið nú miðju 13-13-13-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA-2 (á hægri öxl er lykkjum fækkað í byrjun umferðar og á vinstri öxl er lykkjum fækkað í lok umferðar). Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 8 sinnum í öllum stærðum = 15-16-17-17-18-19 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-99-107-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka í 7 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-14-16-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 79-85-91-100-110-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 71-77-81-90-98-108 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á framstykki = 59-61-63-66-68-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 27-27-27-30-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er fækkað um 1 lykkju = 15-16-17-17-18-19 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 16-16-18-18-20-20 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 31-31-35-35-39-39 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið (uppslátturinn er prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt). Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í öllum stærðum, prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 45-45-51-51-57-57 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt). Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3-3-3-3-2-2 lykkjur 3-5-4-2-3-3 sinnum, 1 lykkja 2-2-4-3-6-9 sinnum og 3-2-2-2-2-2 lykkjur 2-1-1-5-3-2 sinnum og 4-4-5-5-6-6 lykkjur 1 sinni = 87-91-97-99-105-107 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Prjónið nú hringinn í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi þar sem fitjaðar voru upp 4-4-5-5-6-6 lykkjur í hvorri hlið á ermakúpu. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona með ca 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 13-14-16-16-18-18 sinnum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 29-28-28-27-25-23 cm. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8-9-9-10-10-11 lykkjurnar, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 45-45-47-47-49-49 lykkjur og fækkið jafnframt um 15 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 8-9-9-10-10-11 lykkjur = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 15 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls ca 55-55-56-56-56-56 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við uppfitjunarkantinn á ermum og innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 88-100 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whiterabbitsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.