Magdalena skrifaði:
Hej! Jag har ett ullgarn hemma med masktäthet 18 bredd och 25 höjd, 4,5-5,5 tjocka stickor. Kan detta garn funka till detta mönster? Hur ska jag tänka? Tack!
21.10.2021 - 16:43DROPS Design svaraði:
Hej Magdalena. Du kan testa med lite tunnare stickor för att se om du kan få en stickfasthet på 21 maskor på bredden och 28 varv på höjden med slätstickning = 10 x 10 cm med det garnet. Isåfall kan du använda det till detta mönster. Annars låter det som det garnet skulle passa bättre till ett mönster som passar för garngrupp C. Mvh DROPS Design
22.10.2021 - 08:36
Tiny Cloud#tinycloudsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og axlarsæti. Stærð 3 - 14 ára.
DROPS Children 40-14 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-80-82-84-86-88 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-22-24-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 96-100-104-108-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Teljið 31-32-34-35-36-37 lykkjur og setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju = miðja að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er einnig gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerkið við hálsinn til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki á undan fyrstu lykkju í umferð (= hægri öxl að aftan þegar flíkin er mátuð). Annað prjónamerki: Teljið 14-14-16-18-18-18 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 34-36-36-34-36-38 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 14-14-16-18-18-18 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 34-36-36-34-36-38 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki (= bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 12-14-16-20-22-26 sinnum = 144-156-168-184-196-216 lykkjur - útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 4-5-6-7-8-9 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram með sléttprjón. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-10-8-7-7-7 sinnum = 184-196-200-212-224-244 lykkjur. Stykkið mælist ca 11-12-12-12-13-14 cm frá prjónamerki mitt að framan. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert af 4 prjónamerkjum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Nú eru 34-34-32-32-32-32 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-5-6-5-5-4 sinnum = 224-236-248-252-264-276 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 15-16-16-16-17-17 cm frá prjónamerki mitt að framan. Prjónið sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 15-16-16-17-18-19 cm frá prjónamerki mitt að framan – endið síðustu umferð þegar eftir eru 1-2-3-4-5-7 lykkjur í umferð. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 46-48-50-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 66-70-74-76-80-84 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 66-70-74-76-80-84 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-152-160-168-176-184 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 15-18-21-24-25-26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-48-50-50-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna 4 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. í miðju af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-3-3-4-4 cm millibili alls 7-8-8-9-9-10 sinnum á hæðina = 38-38-40-40-42-42 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 21-25-30-34-38-42 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 24-28-33-37-41-45 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tinycloudsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.