Julia Trulock skrifaði:
Thank you for the response. I still have a question. After the rib, I'm assuming that you switch to the 16 inch size 8 needle. But when do you switch to the 24 inch size 8 needle?
02.10.2026 - 11:54DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Trulock, you will switch to the longer circular needle when you will have increased too much stitches to fit the shorter circular needle. Happy knitting!
02.10.2026 - 16:01
Julia Trulock skrifaði:
After the first increases following the ribbed neckline, when do i switch to the longer (24 inch) size 8 needle?
01.10.2026 - 18:09DROPS Design svaraði:
Hi Julia, After working 1⅛" of rib, you change to US needle size 8, then knit 1 round and increase the stitch count. This is described in the text. Regards, Drops Team.
02.10.2026 - 06:24
Sap Martine skrifaði:
Hallo , Wat bedoel jullie met brei 1-1-0-0-1-1 rechts ? Alvast bedankt Sap martine
28.01.2022 - 17:44DROPS Design svaraði:
Dag Martine,
De reeks getallen corresponderen met de maten, als je de kleinste maat breit, neem je het eerste getal, als je de een na kleinste maat breit, neem je het tweede getal enzovoorts.
30.01.2022 - 12:43
Autumn Flower#autumnflowersweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki. Stærð 3 til 14 ára.
DROPS Children 40-2 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 9,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út á berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjóna, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-68-68-72-72-76 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 3 cm (= kantur í hálsi). Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-2-7-3-8-4 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 65-70-75-75-80-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 13-14-15-15-16-16 mynstureiningar með 5 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 26-28-30-30-32-32 lykkjur = 91-98-105-105-112-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 7-7-7-8-9-9 cm frá prjónamerki. Prjónið nú þannig: 1-1-0-0-1-1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 90-95-105-105-110-110 lykkjur (= 18-19-21-21-22-22 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 0-2-0-0-1-1 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 36-38-42-42-44-44 lykkjur = 127-136-147-147-156-156 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-12-12-13-15-15 cm. Prjónið nú þannig: 1-1-1-1-1-1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 125-135-145-145-155-155 lykkjur (= 25-27-29-29-31-31 mynstureiningar með 5 lykkjum), 1-0-1-1-0-0 lykkja slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 50-54-58-58-62-62 lykkjur = 177-190-205-205-218-218 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-15-16-17-18-19 cm, í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 176-188-196-200-212-220 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 26-28-29-30-32-33 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 52-56-58-60-64-66 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á nýjan þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 26-28-29-30-32-33 lykkjurnar (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 116-124-128-136-144-148 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-20-23-25-26-27 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 124-132-136-144-152-156 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Klippið frá og festið enda. ERMI: Setjið 36-38-40-40-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-7-8-9-10-11 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 20-25-29-31-35-38 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 23-28-32-35-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnflowersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.