Laila skrifaði:
Aivan ihana mekko vaikka millaisiin juhliin
19.01.2021 - 23:42
Christine Maranges skrifaði:
J'adore sa forme.
13.01.2021 - 06:56
Monica Belotti skrifaði:
"bon ton" , come l'abito, semplice ed elegante
12.01.2021 - 17:18
Milena skrifaði:
La version robe ou pull ont un travail de côtes et de jours dont la symétrie est bien équilibrée
11.01.2021 - 12:47
Maria skrifaði:
Summer breeze
10.01.2021 - 13:02
Ruxandra skrifaði:
Summer breeze
09.01.2021 - 10:03
Donna skrifaði:
Summer Madness
08.01.2021 - 13:25
Leray skrifaði:
Flowers
08.01.2021 - 11:49
Marioli skrifaði:
Vestido de diseño muy sencillo y delicioso
07.01.2021 - 23:14
Marioli skrifaði:
Vestido de diseño muy sencillo y delisioso
07.01.2021 - 23:14
Swing by Spring#swingbyspringdress |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri, blaðamynstri og stuttum blöðruermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-2 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um pils): Aukið út til skiptis fyrir og á eftir hverju merki (þ.e.a.s. fyrsta útaukning er gerð á undan hverju merki, önnur útaukning er gerð á eftir hverju merki o.s.frv.). Aukið út um 1 lykkju á undan hverju merki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við hvert merki (= 8 lykkjur fleiri alls). Aukið út um 1 lykkju á eftir hverju merki þannig: Prjónið að merki, prjónið 1 lykkju á eftir merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við hvert merki (= 8 lykkjur fleiri alls). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um í hlið á kjól): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-100-104-108-112-120 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stroffið mælist 2-2-3-3-3-3 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu merki! BERUSTYKKI: Prjónið A.1 umferðina hringinn (= 25-25-26-27-28-30 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.1 er lokið, eru 200-200-208-216-280-300 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 4-4-4-4-6-6 cm frá merki. Prjónið síðan A.2 umferðina hringinn (= 25-25-26-27-28-30 mynstureiningar með 8-8-8-8-10-10 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 er lokið, eru 275-300-312-351-392-420 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14-14-14-17-19-19 cm frá merki (þ.e.a.s. alls 16-16-17-20-22-22 cm frá uppfitjunarkanti). Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-44-50-58-63 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 62-66-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 75-84-88-99-116-126 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 62-66-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-42-44-50-58-63 lykkjur slétt (= ½ bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 167-184-200-223-256-276 lykkjur. Setjið 1 merki mitt á milli 8-8-12-12-12-12 nýrra lykkja undir hvorri ermi (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 83-92-100-111-128-138 lykkjur á framstykki og 84-92-100-112-128-138 lykkjur á bakstykki. Látið merkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 151-168-184-207-236-256 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 15-15-16-16-16-16 cm frá skiptingu. Í næstu umferð eru sett 8 merki í stykkið þannig: Prjónið 9-10-11-12-13-16 lykkjur slétt, setjið 1 merki, * prjónið 19-21-23-26-30-32 lykkjur slétt, setjið 1 merki *, prjónið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 9-11-12-13-13-16 lykkjur slétt. Aukið út um lykkjur fyrir pilsi þannig: Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju á undan hverju merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Aukið út til skiptis á undan og á eftir hverju merki í hvert skipti sem aukið er út í 6. hverri umferð alls 15 sinnum = 271-288-304-327-356-376 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar pilsið mælist 56-57-56-57-58-59 cm (nú eru eftir ca 8-8-11-11-11-11 cm að loka máli, prjónið e.t.v. að óskaðri lengd), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-0-6-3-4-4 lykkjur jafnt yfir = 272-288-310-330-360-380 lykkjur. Prjónið síðan A.3 umferðina hringinn (= 34-36-31-33-36-38 mynstureiningar með 8-8-10-10-10-10 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 408-432-434-462-504-532 lykkjur í umferð. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Kjólinn mælist ca 86-89-92-95-98-101 cm. ERMI: Setjið 62-66-68-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 70-74-80-88-92-96 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 12-11-10-8-7-5 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. kjólinn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-16-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 54-58-66-74-78-82 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Ermin mælist ca 17-16-15-13-12-10 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #swingbyspringdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.