Inga-Lill Juthe skrifaði:
Får inte ihop maskantalet. På L lägger man upp 297 maskor. När jag stickar mönstret blir det bara 296 maskor? Först 4 räta, sedan 8x36 maskor, avslutar varvet med 4 räta. Vad är det jag missat? Mvh Inga-Lill
24.04.2022 - 17:51DROPS Design svaraði:
Hei Inge-Lill Du har bare glemt å strikke 1 maske av A.1 etter at du har strikket A.1 36 ganger. Slik skal du strikke: Du har 297 maskor. Sedan stickas det mönster från rätsidan så här: 4 maskor rätstickning (= framkant), A.1 över de nästa 288 maskorna (= 36 rapporter à 8 maskor), sticka 1:a maskan i A.1 (så att mönstret blir likadant i varje sida), avsluta med 4 maskor rätstickning (= framkant). mvh DROPS Design
25.04.2022 - 13:33
Pia Anderberg skrifaði:
Undrar om det räcker att lägga till 3/4 nystan i stl XL om jag vill sticka lång ärm? Tack!
20.10.2021 - 14:36DROPS Design svaraði:
Hej Pia ja 3-4 extra nystan behöver du säkert, beroende på storlek och bredden på ärmen. Lycka till
21.10.2021 - 10:07
Christine Dieterich skrifaði:
In Country Roads Cardigan ist im Muster DROPS 223-5 glaube ich ein fehler: es werden 3 Maschen zusammen gestrickt, aber nur 2 Umschläge gemacht...
18.06.2021 - 10:05DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Dieterich, meinen Sie bei der 5. bzw der 15. Reihe in A.1? Hier werden nur 2 Maschen abgenommen: 1 Masche wie zum Rechtsstricken abheben, 2 Maschen rechts zusammenstricken, die abgehobene Masche über die zusammengestrickten ziehen - mit 1 Umschlag davor + 1 Umschlag danach bleibt die Maschenanzahl dieselbe. Viel Spaß beim stricken!
18.06.2021 - 13:34
Sommerflirt skrifaði:
Bare så fin til sommerkjoler!
09.03.2021 - 18:51
Mimmi skrifaði:
Oj va fin!
08.01.2021 - 06:50
Country Roads Cardigan#countryroadscardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð XS – XXL.
DROPS 223-5 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 2, 8, 14, 20, 26, 32 og 39 cm S: 2, 8, 14, 20, 27, 34 og 41 cm M: 2, 8, 15, 22, 29, 36 og 43 cm L: 2, 8, 15, 22, 29, 36 og 43 cm XL: 3, 10, 17, 24, 31, 38, og 45 cm XXL: 3, 10, 17, 25, 32, 39 og 47 cm ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur eins og áður (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp, á hringprjón frá miðju að framan, upp að handveg. Hér skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón. Að lokum er heklaður kantur í kringum opið á peysunni og neðst á ermum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 233-265-265-297-329-361 lykkjur á hringprjón 3 með Flora. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), A.1 yfir næstu 224-256-256-288-320-352 lykkjur (= 28-32-32-36-40-44 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið 1. lykkju í A.1 (þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið), endið með 4 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan). Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.1 og garðaprjóni í kanti að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar úrtaka fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 56-64-64-72-80-88 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið næstu 105-121-121-137-153-169 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur og prjónið síðustu 56-64-64-72-80-88 lykkjurnar í umfeerð. Héðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 56-64-64-72-80-88 lykkjur. Haldið áfram með 4 lykkjur garðaprjón í kanti að framan og A.1 eins og áður. Fellið af fyrir handveg, fellið af í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur 1-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-1-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 0-1-0-2-6-7 sinnum = 51-53-56-58-60-63 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-44-46-46-48-50 cm fellið af fyrstu 19-20-22-23-24-25 lykkjur frá réttu fyrir hálsmáli, síðan eru lykkjur felldar af í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 3 sinnum = 25-26-27-28-29-31 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-69-62 cm (21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). VINSTRA FRAMSTYKKI: = 56-64-64-72-80-88 lykkjur. Haldið áfram með 4 lykkjur garðaprjón í kanti að framan og A.1 eins og áður. Fellið af fyrir handveg, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur 1-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-1-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 0-1-0-2-6-7 sinnum = 51-53-56-58-60-63 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-44-46-46-48-50 cm fellið af fyrstu 19-20-22-23-24-25 lykkjur frá röngu fyrir hálsmáli, síðan eru lykkjur felldar af í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 3 sinnum = 25-26-27-28-29-31 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-69-62 cm (21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). BAKSTYKKI: = 105-121-121-137-153-169 lykkjur. Haldið áfram með A.1 eins og áður. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu og frá röngu: 3 lykkjur 1-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-1-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 0-1-0-2-6-7 sinnum = 95-99-105-109-113-119 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið nú af miðju 43-45-49-51-53-55 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja við hálsmál = 25-26-27-28-29-31 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 80-88-88-96-104-112 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 með Flora. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið 2 umferðir garðaprjón, prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur (= 10-11-11-12-13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-6-5-5-5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-4-1-1-1-1 cm millibili alls 4-3-6-7-6-5 sinnum = 88-94-100-110-116-122 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-15-12-13-12-10 cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Stykkið er nú prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram með A.1 og fækkið lykkjum fyrir ermakúpu í hvorri hlið, í byrjun á hverri umferð frá réttu og röngu þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum, 1 lykkja 8-10-12-10-11-16 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-25-24-25-25-25 cm, fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið af 4 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 26-26-25-26-26-26 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstri kant að framan. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í kringum allt opið á peysunni, byrjið neðst á hægra framstykki, heklið upp á hægra framstykki, í kringum hálsmál, niður á vinstra framstykki og meðfram öllum neðri kanti á peysu. Heklið með Flora og heklunál nr 3 þannig: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu loftlykkju, hoppið fram ca 1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Heklið alveg eins kant í kringum neðri kant á ermum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #countryroadscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.