White Meadow Top#whitemeadowtop |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-8 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um hliðar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið frá réttu og slétt frá röngu. ÚRTAKA (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman. Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3 kantlykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 60-64-70-78-86-94 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 3-5-8-7-11-15 lykkjur sem prjónaðar eru brugðið frá réttu og slétt frá röngu, prjónið A.1A (= 8 lykkjur), prjónið A.1B yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjur), prjónið A.1C (= 12 lykkjur), 3-5-8-7-11-15 lykkjur sem prjónaðar eru brugðið frá réttu og slétt frá röngu og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm, skiptið yfir á hringprjón 7. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 10-10-10-12-12-12 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Endurtaki útaukningu þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm = 64-68-74-82-90-98 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, aukið út um lykkjur áður en kaðlarnir byrja, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 5-7-10-9-13-17 lykkjur slétt, prjónið A.2C (= 12 lykkjur – mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu), prjónið A.2B yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2A (= 8 lykkjur), prjónið 5-7-10-9-13-17 lykkjur og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni = 74-78-84-94-102-110 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 5-7-10-9-13-17 lykkjur brugðið, prjónið A.3A (= 10 lykkjur), prjónið A.3B yfir næstu 36-36-36-48-48-48 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.3C (= 14 lykkjur), 5-7-10-9-13-17 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, en takið vel eftir að það á að fækka lykkjum fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystur 6-6-6-6-7-8 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferðir garðaprjón eru felldar af 3-3-3-3-4-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-3-6-5-8-11 sinnum. ATH: Í stærð XXL og XXXL er lykkjum fækkað fyrir handveg einnig eftir að A.3 hefur verið prjónað til loka. Haldið síðan áfram með A.4 yfir A.3 þar til öllum lykkjum hefur verið fækkað fyrir handveg – þær lykkjur sem ekki hefur verið fækkað um þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu þar til þeim hefur verið fækkað, síðan er haldið áfram með mynstur eins og áður. MYNSTUR EFTIR HANDVEG: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina og fækkað hefur verið um allar lykkjur fyrir handveg eru 58-58-58-68-68-68 lykkjur eftir í umferð og mynstrið heldur áfram frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.4A (= 10 lykkjur), prjónið A.4B yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.4C (= 12 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 20-20-20-22-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 17-17-17-21-21-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-46-47-49-51 cm. Setjið nú miðju 14-14-14-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3 sinnum = 17-17-17-21-21-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana, svo saumurinn verði flatur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 72 til 80 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið inn tvöfalt að röngu á flík. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsi verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitemeadowtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.