DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10208.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

White Meadow

Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og blöðruermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 220-7
DROPS Design: Mynstur sk-124
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL
Vegna áferðar þá dregst fram- og bakstykkið saman ca 6-7 cm miðað við mál á teikningu, en stykkið er teygjanlegt þannig að þú prjónar þá stærð sem þú notar venjulega.

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-150-150-200-200 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-125-150 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir) = 10 x 10 cm.
14 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði Kid-Silk = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10208.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið.

ÚRTAKA (á við um handveg):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman.
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3 kantlykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, prjónað er neðan frá og upp. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig að loka máli.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu. Síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna til loka máls. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 120-128-140-156-172-188 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og1 prjónamerki eftir 60-64-70-78-86-94 lykkjur (= í hliðum á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuð þegar auka á út í hliðum.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 5-7-10-9-13-17 lykkjur brugðið, prjónið A.1A (= 8 lykkjur), prjónið A.1B yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.1C (= 12 lykkjur), 5-7-10-9-13-17 lykkjur brugðið, prjónamerki *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 3 cm, skiptið yfir á hringprjón 7. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 10-10-10-12-12-12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtaki útaukningu þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm = 128-136-148-164-180-196 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, aukið út um lykkjur áður en kaðlarnir byrja, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: * 7-9-12-11-15-19 lykkjur brugðið, prjónið A.2A (= 8 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2C (= 12 lykkjur), prjónið 7-9-12-11-15-19 lykkjur brugðið, prjónamerki *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 148-156-168-188-204-220 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 7-9-12-11-15-19 lykkjur brugðið, prjónið A.3A (= 10 lykkjur), prjónið A.3B yfir næstu 36-36-36-48-48-48 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.3C (= 14 lykkjur), 7-9-12-11-15-19 lykkjur brugðið, prjónamerki *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, en takið vel eftir að lykkjur eru felldar af fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-12-12-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (= 6-6-6-6-7-8 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). ATH: Stillið af þannig að fyrsta umferð þegar prjónað er garðaprjón sé oddatölu umferð í mynstri, þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að snúa kaðli frá röngu þar sem stykkið er prjónað síðar fram og til baka.
Eftir 4 umferðir garðaprjón er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 3-3-3-3-4-5 lykkjur, prjónið 68-72-78-88-94-100 lykkjur eins og áður, fellið af 6-6-6-6-8-10 lykkjur (prjónamerkið situr mitt í þessum 6-6-6-6-8-10 lykkjum), prjónið 68-72-78-88-94-100 lykkjur eins og áður og fellið af síðustu 3-3-3-3-4-5 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 68-72-78-88-94-100 lykkjur.
Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-3-6-5-8-11 sinnum.
ATH: Í stærð XXL og XXXL fækkið lykkjum fyrir handveg einnig eftir að A.3 hefur verið prjónað til loka. Haldið áfram með A.4 yfir A.3 þar til lykkjum hefur verið fækkað fyrir handveg – þær lykkjur sem ekki hefur verið fækkað um þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónast brugðið frá réttu og slétt frá röngu þar til þeim hefur verið fækkað, síðan heldur mynstrið áfram eins og útskýrt er að neðan.
MYNSTUR EFTIR HANDVEG:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina og allar fækkað hefur verið um allar lykkjur fyrir handveg eru 58-58-58-68-68-68 lykkjur eftir í umferð og mynstrið heldur áfram frá réttu þannig:
3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.4A (= 10 lykkjur), prjónið A.4B yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.4C (= 12 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 20-20-20-22-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 17-17-17-21-21-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 68-72-78-88-94-100 lykkjur.
Byrjið frá röngu og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-46-47-49-51 cm. Setjið nú miðju 14-14-14-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3 sinnum = 17-17-17-21-21-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 36-40-40-40-44-44 lykkjur á sokkaprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem prjónuð er 1 lykkja slétt framan í og aftan í allar lykkjurnar í umferð (lykkjufjöldinn tvöfaldast) = 72-80-80-80-88-88 lykkjur.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 7. Prjónið sléttprjón hringinn með 1 þræði Kid-Silk. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar ermin mælist 37-37-37-34-34-33 cm, felið af fyrir handveg þannig (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu): Byrjið 3 lykkjum á undan byrjun á umferð, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg og prjónið sléttprjón út umferðina. Ermakúpan er núna prjónuð fram og til baka á hringprjóna til loka. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3-4-5-5-6-7 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð þar til ermin mælist 44-45-46-43-44-45 cm = ca 52-58-56-56-62-60 lykkjur eftir. Í næstu umferð frá réttu eru þær lykkjur sem eftir eru prjónaðar slétt saman 2 og 2. Fellið laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í – kantur í garðaprjóni meðfram handveg á að liggja utan á ermi og saumað er í ystu lykkjubogana svo það verði ekki opinn kantur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 72 til 80 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið stroffið inn tvöfalt að röngu á flík. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt framan og aftan í sömu lykkju
symbols = frá röngu: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri)
symbols = frá röngu: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (= 1 lykkja færri)

symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Anja wrote:

Voor maat L is 125 g kid silk niet voldoende om de mouwen te breien. Er is 150 g nodig

20.02.2024 - 17:31

country flag Margaret Spencer wrote:

Thank you for your quick response but I still don’t understand why the pattern needs 570 metres of one yarn and 840 m of another if they are being worked together

23.11.2023 - 16:11

DROPS Design answered:

Dear Margaret, the sleeves are worked only with one thread of Kid-Silk (aside from the cast-on edge and initial rib). That's why you will need more metres of Kid-Silk than Sky. Happy knitting!

26.11.2023 - 18:33

country flag Margaret Spencer wrote:

I love the look of this pattern and would like to make it but I’m not sure what materials to order. If it is made holding one strand of kidsilk and one strand of sky why does it need 840m I.e. 4 balls of kidsilk and 570m 3 balls of sky?

23.11.2023 - 15:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Spencer, you have to work with 2 different yarns worked together as there were just one, this means you need DROPS Sky and DROPS Kid-Silk. In size S for example, you will need 150 g Sky / 50 g a ball = 3 balls and 100 g Kid-Silk/25 g= 4 balls, you need then 3 balls Sky + 4 balls Kid-Silk. Happy knitting!

23.11.2023 - 15:53

country flag Kerstin Kaljusaar wrote:

Finns det någon video på hur man syr i ärmen?

28.03.2023 - 18:06

DROPS Design answered:

Hej Kerstin, Nej desværre, kanten skal ligge udenpå ærmet :)

13.04.2023 - 14:07

country flag Linnea wrote:

Hei! Spørsmål om mengde garn. Det står 150 g Sky, så jeg har nå kjøpt tre nøster. Når jeg ser på White Meadow Top, står det 150 g på den også. Hvordan er det mulig når denne genseren har ballongarmer? Går det virkelig ikke mer enn 3 nøster? (Str s)

04.10.2021 - 18:54

DROPS Design answered:

Hej Linnea. Ärmarna stickas med kun 1 tråd Kid-Silk (vrangborden stickas med 1 tråd Sky och 1 tråd Kid-Silk sammen), det är därför det inte är mer Sky i denna oppskrift. Mvh DROPS Design

06.10.2021 - 09:40

country flag Sofia wrote:

Hej, När jag läser igenom beskrivningen tolkar jag det som att mönstret man ser på framstycket även stickas på bakstycket, stämmer det? Jag vill endast sticka mönstret på framstycket och sticka bakstycket i slätstickning. Jag läser att mönstret gör att stickningen drar ihop sig 6-7 cm och undrar då om jag behöver minska antalet maskor när jag lägger upp för fram- och bakstycket?

30.08.2021 - 10:49

DROPS Design answered:

Hei Sofia. Om du ønsker glattstrikk på bakstykket må du regne ut hvor mange færre masker du skal legge opp på bakstykket. Det kan du regne ut fra strikkefastheten du får på glattstrikk i kvaliteten(e) du skal strikke med. Desverre er dette noe design avd ikke kan ta seg tid til å regne om. God Fornøyelse!

06.09.2021 - 11:30

country flag Linda wrote:

Hej jeg er nybegynder i strik. I opskriften står der at det er vigtigt at starte på en ulige p når man starter til ærmegab. En ulige p er det ment som fra vr siden?

22.03.2021 - 00:21

DROPS Design answered:

Hej Linda, første omgang skal være 1. eller 3. eller 5. pind i diagrammet for at få snoningerne på retsiden :)

22.03.2021 - 15:55

country flag Pernille wrote:

Er der en fejl i opskriften? Der står, at man skal strikke 4 pind ret, inden man lukker af til ærmer. Men på rundpind bliver det så glatstrik. På billedet ser det ikke sådan ud

06.03.2021 - 19:03

DROPS Design answered:

Hej Pernille, de sidste 4 pinde inden du lukker af til ærmegab strikkes i retstrik over selve ærmegabs maskerne. retstrik når du strikker rundt = hver 2.p ret og hver 2.p vrang :)

08.03.2021 - 14:36

country flag Halfers Renate wrote:

Ik ben bezig met de minderingen voor de armsgaten. Het achterpand begint met 68 steken. Ik maak maat S. Nu staat er dat ik 1 keer 2 steken moet minderen maar uiteindelijk zou ik op 58 steken uit moeten komen, wat betekent dat ik 5 keer zou moeten minderen. Wat moet ik doen? Wat lees ik fout? Graag uw antwoord.

03.03.2021 - 19:26

DROPS Design answered:

Dag Renate,

Je mindert inderdaad voor maat S slechts 1 steek aan elke kant, waardoor je 66 steken hebt. Maar aan het eind van patroon A.3 heb je 10 steken in plaats van 12 steken. Hierdoor kom je op 58 steken uit. Je doet dus niks fout, maar er komen nog minderingen in het telpatroon.

09.03.2021 - 20:20

country flag Els Scheir wrote:

Love this one.can't wait for the patorn to come out

08.02.2021 - 21:58