Gena skrifaði:
Thank you for your answer, but I am referring to the yarn overs inside the A1 design. Anyway, I found out these should not be twisted in the next row, so that the design can show well.
24.09.2024 - 16:09
Gena skrifaði:
Hello, when working A1, the yarn overs are worked twisted or not on the next row? When I knit them twisted the holes of the design are not very visible. Thank you.
23.09.2024 - 18:54DROPS Design svaraði:
Hi Gena, The yarn overs are worked twisted on the next round. They are worked on each side of A.1, which begins and ends with 2 knitted and 1 purled stitch before working the lace pattern. So your twisted yarn-overs should not affect this pattern. Happy crafting!
24.09.2024 - 07:03
Vasiliki skrifaði:
Hej , kan jag sticka tröjan med drops AIR
22.01.2024 - 22:43DROPS Design svaraði:
Hej. Ja det kan du göra. Se bara till att få rätt stickfasthet och att beräkna riktig garnåtgång. Mvh DROPS Design
24.01.2024 - 14:58
Elisa skrifaði:
Buonasera,non riesco a capire quando dice “A1 si alterna tra 16 e 17 maglie”. Ho fatto il primo giro di aumenti, il secondo giro dello schema ma il 3 giro non mi ritrovo con il motivo sottostante,
12.07.2022 - 19:01DROPS Design svaraði:
Buonasera Elisa, come può vedere dal diagramma, ci sono giri in cui A.1 avrà 16 maglie (con i quadrati neri) e giri in cui ne avrà 17. Buon lavoro!
13.07.2022 - 00:04
Laurence B skrifaði:
Bonjour Il y a une phase que je ne comprends pas dans le diagramme : à la 3 ieme ligne, au centre, après avoir fait la maille glissé puis 2 mailles ensemble puis la maille glissé par dessus les 2 mailles ensemble, il me reste donc une seule maille. Mais à la ligne suivante, il y a 2 mailles...donc ça me bloque, il me manque une maille du diagramme. Merci beaucoup pour votre explication
16.02.2022 - 19:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Laurence, au 3ème rang de A.1 (au milieu), vous ne faites pas une double diminution mais une petite torsade - cf avant-dernier symbole, autrement dit: vous glissez 1 maille comme pour la tricoter à l'endroit, tricotez les 2 mailles suivantes (pas ensemble, l'une après l'autre), et passez ensuite la maille glissée par-dessus ces 2 mailles = il vous reste bien 2 mailles. Cette vidéo montre comment réaliser ce type de petite torsade et pourra sans doute vous aider. Bon tricot!
17.02.2022 - 10:01
Mila skrifaði:
Bei der Letzten Runde der Halsblende erfolgen 12 Zunahmen. Es heißt meim Zunahmen-Tip " In der nächsten Runde die Umschläge rechts verschränkt stricken, um Löcher zu vermeiden. " Die nächste Runde ist die erste Runde der Passe. Was ist, wenn das Muster eine linke Masche vorschreibt, soll man die Zunahmenmasche der vorherigen Runde dann trotzdem rechts stricken?
29.08.2021 - 14:46DROPS Design svaraði:
Liebe Mila, dann stricken Sie die linke Masche auch verschränkt, damit diese Umschläge (= Zunahmen) keine Löcher bilden. Viel spaß beim stricken!
30.08.2021 - 07:59
Cathrine skrifaði:
Det står bare symboler= rett, symbols= vrang, men står ikke hvilke symboler det er. Kan dere si hvilke symboler som skal hvor? Jeg vil så gjerne strikke den, men det er vanskelig når det ikke er forklaring på symbolene.
22.08.2021 - 16:53DROPS Design svaraði:
Hei Cathrine, Åpne ruter er å strikke rett, ruter med kors are strikket vrang. God fornøyelse!
23.08.2021 - 09:10
Daisy Frantzen skrifaði:
Ook een mooi model, wordt nog moeilijk kiezen!
05.02.2021 - 11:41
Rebecca Newman skrifaði:
Please include this pattern - I really like it! I love knitting with Paris, patterns look so good in it!
11.01.2021 - 23:00
Rosanna skrifaði:
Modello semplice che rispecchia i miei gusti.
08.01.2021 - 20:33
Turning Leaves Sweater#turningleavessweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-5 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d.12) = 6,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Takið vel eftir að allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp á berustykki og fram- og bakstykki er reiknaður út frá að A.1 = 16 lykkjur, en A.1 skiptist á milli 16 og 17 lykkja. Ef þú hefur prjónað 1.-2.-5. eða 6. umferð í A.1 þegar lykkjufjöldinn er gefinn upp, þá ertu með 4 lykkjur fleiri í umferð. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Prjónið stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-8-12-8-8-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 88-88-96-96-100-100 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Fyrsta umferð er prjónuð þannig – frá miðju að aftan: 1-1-2-2-3-3 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 16 lykkjur) (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-10-12-12-12-12 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2-2-4-4-6-6 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1, (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-10-12-12-12-12 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1-1-2-2-3-3 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Nú eru 96-96-104-104-108-108 lykkjur í umferð (nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur og fyrsta útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð). Haldið áfram með þetta mynstur og aukið svona út hvoru megin við hvert A.1 í annarri hverri umferð (= 8 fleiri lykkjur í hverri útaukningsumferð). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út alls 18-22-23-27-28-33 sinnum. Nú eru 232-264-280-312-324-364 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 18-22-23-27-28-33 cm, ef stykkið mælist minna en þetta, haldið áfram að réttu máli, en prjónið án útaukningar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 35-39-41-45-47-52 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-54-58-66-68-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 70-78-82-90-94-104 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-54-58-66-68-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 35-39-41-45-47-52 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðarn prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-168-180-196-208-232 lykkjur. Prjónið sléttprjón og haldið áfram með A.1. Prjónið nú án þess að auka út hvoru megin við A.1. Haldið svona áfram með mynstur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 30-28-28-26-27-24 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt). Prjónið stroff í 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-54-58-66-68-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-60-66-74-78-90 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 7-4½-3-2-2-1½ cm millibili alls 6-8-11-13-15-17 sinnum = 40-44-44-48-48-56 lykkjur eftir í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 39-36-36-32-32-27 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 5 cm að loka máli (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-41-41-37-37-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #turningleavessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.