Victoria skrifaði:
Buenos días. Hermoso patrón. Hay un error en la leyenda de los símbolos, al menos en español. En la vuelta 3, en el centro, dice \"deslizar 1 punto y tejer los 2 siguientes juntos del derecho\", pero esos 2 puntos no deben tejerse juntos, o sino no cuadraría la vuelta 4. Espero que lo puedan corregir. Gracias y saludos. Victoria.
09.01.2025 - 00:16
Jonathan skrifaði:
Hallo :-) Ich bin bei der ersten Reihe, in der ich das Muster A1 Stricke, komme hier aber immer auf 17 Maschen oder lese ich das Muster verkehrt?
19.12.2024 - 17:37DROPS Design svaraði:
Lieber Jonathan, die 1. Reihe A.1 wird über 16 M gestrickt, aber durch den Umschlag ind er Mitte vom Diagram sind es 17 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
20.12.2024 - 11:27
Helen skrifaði:
Hej! jag förstår inte ökningen, var ska jag öka? det står: Fortsätt detta mönstret, och öka på varje sida av varje A.1 på vartannat varv (= 8 ökade maskor per ökningsvarv). Jag gör ju omslag på var sida om A1 varje varv, det blir ju ökningar, men jag får det inte till att stämma med antal maskor, eller att det blir ökningar varannat varv?
04.01.2023 - 21:37DROPS Design svaraði:
Hei Helen. Du skal ikke øke på hver side av A.1, men på hver 2. pinne. Det er forklart i oppskriften hvordan du skal øke til raglan første gang (på hver side av A.1). Deretter øker du slik på hver 2. pinne. Da skal maskeantallet stemme. Men husk: Maskeantall som er oppgitt på bærestykke og bol er beregnet ut fra at A.1 = 16 masker, men A.1 veksler mellom 16 og 17 masker. Dersom du akkurat har strikket 1.-2.-5. eller 6.pinne i A.1 når et maskeantall oppgis, har du 4 masker mer på pinnen. mvh DROPS Design
06.01.2023 - 12:03
Cristina Saraiva skrifaði:
Entre a 3 carreira e a 4 de A1, deve existir um erro, porque quando diz no meio para : deslizar 1 malha em meia, tricotar 2 malhas meia e passar a malha deslizada por cima das malhas tricotadas, ficamos só com uma malha, mas nas carreiras seguintes aparecem 2 malhas. Como é possível?
06.06.2022 - 18:11DROPS Design svaraði:
Bom dia, Há uma pequena diferença. A legenda do símbolo diz para se deslizar 1 malha, tricotar 2 malhas (não juntamente) e passar a malha que se deslizou por cima dessas 2 malhas para que as envolva. Ou seja, fica-se com 2 malhas. Bons tricôs!
07.06.2022 - 11:44
Meyre skrifaði:
Bonjour, c'est la première fois que je rencontre un tel problème, mais là vos explications me laissent perplexe. Pour les rangs 5 et 13 qui ont une double diminution ( maille rabattue sur 2 mailles ensemble =-2m), comment peut-on en récupérer 1 par la suite? De plus pour le raglan, il semblerait que l'augmentation du dos se fait au milieu du dos et non pas après la manche. Merci pour votre réponse.
02.04.2022 - 14:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Meyre, parlez-vous de la torsade faites aux rangs 3 et 7 du diagramme? Vous diminuez 1 maille seulement: vous glissez 1 m à l'endroit, tricotez les 2 mailles suivantes à l'endroit et passez la maille glissée par-dessus les 2 mailles tricotées; au rang suivant, vous n'avez que 2 mailles, au rang suivant vous faites 1 jeté entre ces 2 mailles = vous avez de nouveau 3 mailles; et ainsi de suite. Cette vidéo montre comment tricoter ce type de torsades. Les augmentations du raglan se font après le A.1 de la manche gauche et avant le M.1 de la manche droite = au début et à la fin du dos. Bon tricot!
04.04.2022 - 08:34
Lia skrifaði:
Hallo ik heb een probleem met het telpatroon A 1 wat moet ik doen met dat zwarte vakje groetjes lia
29.06.2021 - 22:36DROPS Design svaraði:
Dag Lina,
Dat is een steek die niet bestaat omdat hij op de vorige naald geminderd was, dus als je het zwarte vakje tegenkomt ga je gelijk verder met het volgende vakje, namelijk averecht op de goede kant.
02.07.2021 - 09:32
Carina skrifaði:
Sidder og slås med A.1. Kan ikke få det til at passe med, at der i A.1 på pind 4, skal være to masker (maske 8 og 9 i diagrammet), der skal strikkes ret fra retsiden el vrang fra vrangsiden. Er der ikke kun en maske tilbage efter forrige pind, hvor der man tager 1 m løst af, strikker 2 ret sammen og løfter den løse m over?
02.06.2021 - 15:38DROPS Design svaraði:
Hej Carina, de 2 masker strikkes ikke ret sammen, de strikkes ret og du løfter den ene maske over, så du har 2 masker tilbage :)
04.06.2021 - 14:12
Turning Leaves#turningleavesjacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-6 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 6,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT (ofan frá og niður): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroffi í hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 9-9-8½-9-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Takið vel eftir að allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp á berustykki og fram- og bakstykki er reiknaður út frá að A.1 = 16 lykkjur, en A.1 skiptist á milli 16 og 17 lykkja. Ef þú hefur prjónað 1.-2.-5. eða 6. umferð í A.1 þegar lykkjufjöldinn er gefinn upp, þá ertu með 4 lykkjur fleiri í umferð. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á hringprjón (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er stroff prjónað þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan). Prjónið stroff í 3 cm, endið eftir umferð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni) þar sem aukið er út um 14-10-14-10-10-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 98-98-106-106-110-110 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1-1-2-2-3-3 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 16 lykkjur) (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-10-12-12-12-12 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2-2-4-4-6-6 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1, (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-10-12-12-12-12 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1-1-2-2-3-3 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Nú eru 106-106-114-114-118-118 lykkjur í umferð (nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur og fyrsta útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð). Haldið áfram með þetta mynstur og aukið svona út hvoru megin við hvert A.1 í annarri hverri umferð (= 8 fleiri lykkjur í hverri útaukningsumferð). Uppslátturinn er prjónaður snúinn bruðið og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út alls 18-22-23-27-28-33 sinnum. Nú eru 242-274-290-322-334-374 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 18-22-23-27-28-33 cm, ef stykkið mælist minna en þetta, haldið áfram að réttu máli, en prjónið án útaukninga. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 40-44-46-50-52-57 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 46-54-58-66-68-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 70-78-82-90-94-104 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 46-54-58-66-68-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 40-44-46-50-52-57 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðarn prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-206-218-242 lykkjur. Prjónið kanta að framan í garðaprjóni eins og áður, sléttprjón og haldið áfram með A.1. Nú er prjónað án þess að auka út hvoru megin við A.1. Haldið svona áfram með mynstur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 30-28-28-26-27-24 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 2-2-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 164-180-192-208-220-224 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið þannig – frá röngu: 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið stroff í 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-54-58-66-68-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-60-66-74-78-90 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 7-4½-3-2-2-1½ cm millibili alls 6-8-11-13-15-17 sinnum = 40-44-44-48-48-56 lykkjur eftir í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 40-36-36-33-32-28 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 5 cm að loka máli (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-41-41-38-37-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #turningleavesjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.