Cornelia skrifaði:
Ich verstehe nicht, warum beim Ärmel die Verkreuzung in der 4. Reihe (Rückreihe) erfolgen soll.
14.01.2022 - 21:40DROPS Design svaraði:
Liebe Cornelia, Danke für den Hinweis; Diagram A.4 wurde korrigiert, so daß die Zöpfe bei den Ärmeln genauso wie beim Rumpfteil gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!
10.03.2022 - 11:57
Sari Lesonen skrifaði:
Ihan hyvännäköinen pusero. Näissä dropsin ohjeissa häiritsee suunnattomasti vaan se että lähes kaikki neuleet ovat armottoman lyhyitä napapaitoja. Joutuu itse laskemaan silmukkamäärät sopiviksi jos haluaa sopivan mittaisen neuleen. Silloin ei lankamäärät pidä paikkaansa. Harmillista
26.04.2021 - 12:49
Maija skrifaði:
White nights
12.01.2021 - 10:31
Maria skrifaði:
Lamb's Ears
10.01.2021 - 23:27
Bright Sand Shore#brightsandshoresweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með köðlum, kúlum og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-35 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 58 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 9) = 6,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): Lykkjum er aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig til loka. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 212-240-256-280-304-328 lykkjur á hringprjóna 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir = 214-242-258-282-306-330 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 10-8-12-18-24-30 lykkjur, A.2 (= 43-52-52-52-52-52 lykkjur), A.3 (= 44-53-53-53-53-53 lykkjur), A.1 yfir næstu 20-16-24-36-48-60 lykkjur, A.2 (= 43-52-52-52-52-52 lykkjur), A.3 (= 44-53-53-53-53-53 lykkjur), endið með A.1 yfir síðustu 10-8-12-18-24-30 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = hlið. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. prjónið næstu umferð þannig – ATH! Passið uppá að næsta umferð sé oddatölu umferð í mynstri, þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að kaðlinum sé snúið frá röngu þegar stykkið er prjónað fram og til baka: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af næstu 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 101-115-123-135-147-159 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu 101-115-123-135-147-159 lykkjur í umferð (= bakstykki). BAKSTYKKI: = 101-115-123-135-147-159 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og haldið áfram með úrtöku í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-3-5-7 sinnum og 1 lykkju 0-2-3-4-4-5 sinnum = 97-107-109-115-119-121 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 35-39-39-43-47-47 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja = 30-33-34-35-35-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir hvern og einn af 2-3-3-3-3-3 síðustu köðlum = 26-27-28-29-29-31 lykkjur, fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 101-115-123-135-147-159 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og haldið áfram með úrtöku í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-3-5-7 sinnum og 1 lykkju 0-2-3-4-4-5 sinnum = 97-107-109-115-119-121 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið miðju 29-33-33-37-41-41 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, jafnframt er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal = 25-29-29-33-37-7 lykkjur á þræði). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 30-33-34-35-35-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir hvern og einn af 2-3-3-3-3-3 síðustu köðlum = 26-27-28-29-29-31 lykkjur, fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 58-58-62-62-66-66 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, stroffprjón (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram í stroffprjóni þar til stykkið mælist 6 cm, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem auknar eru út 9 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 67-67-71-71-75-75 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 yfir næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur, A.4 (= 21 lykkja), A.1 yfir næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 8 cm aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 7-4-4½-2½-2-1½ cm millibili 5-8-7-11-12-15 sinnum = 77-83-85-93-99-105 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 39-39-38-37-36-35 cm. Fellið nú af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Felllið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4 sinnum, 1 lykkju 1-1-3-4-4-6 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 46 cm í öllum stærðum. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 47 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 76 til 112 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur á þráðum að framan og lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroffprjón (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið áfram í stroffprjóni eins og áður þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brightsandshoresweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.