Fontaine wrote:
Bonjour, pour la manche, le diagramme A6, la torsade du rang 4 se fait elle sur l’envers?J’ai un doute, elle se faisait sur l’endroit pour le pull.Merci
21.03.2024 - 14:18DROPS Design answered:
Bonjour Mme Fontaine, vous avez raison, les torsades de A.6 doivent se faire sur l'endroit - commencez A.6 par le 2ème rang pour qu'il y ait 3 rangs avant les premières torsades (tant que le diagramme n'aura pas été corrigé). Merci pour votre retour. Bon tricot!
21.03.2024 - 16:00Wendy wrote:
Good day this is a beautiful piece, is there anywhere that I can get the pattern in PDF format please?
24.06.2023 - 10:06DROPS Design answered:
Dear Wendy, you can click on the print option and, when it asks you to select the printer, you can choose to "Save as PDF". Happy knitting!
25.06.2023 - 13:45Anne Dubois wrote:
Pour l'arrondi de la manche, comment interpréter "rabattre 2 mailles de chaque côté jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 46cm". Il me reste 6 rgs pour arriver à 46cm. Dois-je repartir ces 2m en 2x1m sur mes 6rgs restants ou dois-je rabattre en 1x2m au 5ème et 6ème rg ? Merci pour votre aide.
31.03.2023 - 12:27DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dubois, rabattez 2 mailles au début de chaque rang sur l'endroit puis au début du rang suivant sur l'envers et répétez ces 2 rangs jusqu'à ce que la manche mesure 46 cm; s'i vous reste encore 6 rangs, vous allez tricoter 3 fois ces 2 rangs au total. Bon tricot!
11.04.2023 - 09:58Lyne Roberts wrote:
What is the best cast on method for this pattern.
21.02.2023 - 03:35DROPS Design answered:
Dear Mrs Roberts, there is no specific cast-on method required here, just use your usual technique, making sure it won't be too tight - find all our videos showing how to cast on stitches here. Happy knitting!
21.02.2023 - 10:12Lyne Roberts wrote:
What bust sizes are your patterns.Thankyou
12.02.2023 - 00:20DROPS Design answered:
Dear Lyne, you can see the half-bust measurements of the garment in cm indicated in the schematic under the pattern instructions (41-43-45-47-49-51). Each number corresponds to a specific size: 41 is for the smallest size and 51 is for the largest size. Happy knitting!
12.02.2023 - 20:47Lyne Roberts wrote:
I wish to knit this pattern but there's no back photo.Does it include pattern?
06.02.2023 - 08:58DROPS Design answered:
Dear Mrs Roberts, yes it does, you will work pattern A.3 and A.4 on back piece (with A.2 on each side of the jacket). Happy knitting!
06.02.2023 - 10:28Depaux wrote:
Bonjour madame j'aie bien reçu votre message et je vous remercie encore le modèle est bright sand shore cardigan je le tricote en bleu foncer j'aie du mal à comprendre les diagrammes du modèle après les cotes heureusement que je comment le modelé en gros plans du gilet en photo que je regarde en très gros plant Mercie pour votre conseille Mercie a vous madame depaux
06.12.2022 - 19:42DROPS Design answered:
Bonjour Mme Despaux, lisez bien les diagrammes en commençant en bas à droite (1er rang = sur l'endroit) et de droite à gauche sur l'endroit puis de gauche à droite sur l'envers. Les 5 m de bordure devant de chaque côté sont comprises dans le nombre de mailles à monter et vous n'avez pas besoin de les ajouter. Les manches se tricotent dans un point de riz fantaisie (cf diagramme A.2). Bon tricot!
07.12.2022 - 08:07Gouince wrote:
Je ne comprends pas pour le diagramme j'aimerais faire taille moyen je ses pas où je doit regarder pour le diagramme et dommage que l'ont voie pas le dos merci beaucoup pour votre réponse
08.11.2022 - 14:39DROPS Design answered:
Bonjour Mme Gouince, cette leçon explique comment lire les diagrammes et devrait vous aider - en même temps, suivez bien les explications écrites qui indiquent comment tricoter les diagrammes. Nous n'avons malheureusement pas de photos du dos et n'avons plus le pull, mais le motif va se trouver dans le dos également, tout comme indiqué dans les explications. Bon tricot!
08.11.2022 - 16:50Babsi wrote:
Bei den kraus rechts gestrickten Blenden: werden KEINE verkürzten Reihen gearbeitet? Ich frage wegen der Höhe...! Oder wird das durch die Zopfmuster nivelliert?
27.05.2021 - 18:12DROPS Design answered:
Liebe Babsi, hier wird keine verkürzte Reihe gestrickt, sollten Sie einige wollen, dann können Sie gerne einige stricken. Beachten Sie, ob Ihnen die Höhe unterschiedlich sein und verkürtzen Reihen verlangt. Viel Spaß beim stricken!
28.05.2021 - 07:54
Bright Sand Shore Cardigan |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með köðlum, kúlum og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-19 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 220 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 70. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 70. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): Lykkjum er aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli): S: 3, 10, 17, 24, 31, 39 og 47 cm M: 3, 10, 17, 25, 33, 41 og 49 cm L: 3, 11, 19, 27, 35, 43 og 51 cm XL: 3, 11, 19, 27, 36, 44 og 53 cm XXL: 3, 11, 19, 28, 37, 46 og 55 cm XXXL: 3, 12, 21, 30, 39, 48 og 57 cm ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig til loka. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 220-240-260-280-304-332 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjóna 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 223-243-263-283-307-335 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 41-48-48-48-48-48 lykkjur), A.2 yfir næstu 22-16-26-36-48-62 lykkjur, A.3 (= 43-52-52-52-52-52 lykkjur), A.4 (= 44-53-53-53-53-53 lykkjur), A.2 yfir næstu 22-16-26-36-48-62 lykkjur, A.5 (= 41-48-48-48-48-48 lykkjur), endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 54-58-63-68-74-81 lykkjur í umferð (= hægra framstykki), fellið af næstu 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 103-115-125-135-147-161 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu 54-58-63-68-74-81 lykkjur í umferð (= vinstra framstykki). HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): = 54-58-63-68-74-81 lykkjur. Haldið áfram með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og mynstri eins og áður og haldið áfram með úrtöku fyrir handveg í hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-3-5-7 sinnum og 1 lykkju 0-2-3-4-4-5 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Í næstu umferð frá réttu eru fyrstu 20-19-20-21-23-23 lykkjur (við miðju að framan) settar á þráð fyrir hálsmáli. Til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn, fækkið að auki um 2 lykkjur jafnt yfir fyrsta kaðal í A.1 = 18-17-18-19-21-21 lykkjur á þræði. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 28-31-32-33-33-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir hvern og einn af 1-2-2-2-2-2 síðustu köðlum = 26-27-28-29-29-31 lykkjur, fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): = 54-58-83-68-74-81 lykkjur. Haldið áfram með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og mynstri eins og áður og haldið áfram með úrtöku fyrir handveg í hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-3-5-7 sinnum og 1 lykkju 0-2-3-4-4-5 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Í næstu umferð frá röngu eru fyrstu 20-19-20-21-23-23 lykkjur (við miðju að framan) settar á þráð fyrir hálsmáli. Til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn, fækkið að auki um 2 lykkjur jafnt yfir fyrsta kaðal í A.5 = 18-17-18-19-21-21 lykkjur á þræði. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 28-31-32-33-33-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir hvern og einn af 1-2-2-2-2-2 síðustu köðlum = 26-27-28-29-29-31 lykkjur, fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. BAKSTYKKI: = 103-115-125-135-147-161 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og haldið áfram með úrtöku í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-3-5-7 sinnum og 1 lykkju 0-2-3-4-4-5 sinnum = 99-107-111-115-119-123 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 37-39-41-43-47-47 lykkjur fyrir hálsmáli, hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja = 30-33-34-35-35-37 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir hvern og einn af 2-3-3-3-3-3 síðustu köðlum = 26-27-28-29-29-31 lykkju, fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 58-58-62-62-66-66 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, stroffprjón (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram í stroffprjóni þar til stykkið mælist 6 cm, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem auknar eru út 9 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 67-67-71-71-75-75 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.2 yfir næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur, A.6 (= 21 lykkja), A.2 yfir næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 8 cm aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 7-4-4½-2½-2-1½ cm millibili 5-8-7-11-12-15 sinnum = 77-83-85-93-99-105 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 39-39-38-37-36-35 cm. Fellið nú af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Felllið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4 sinnum, 1 lykkju 1-1-3-4-4-6 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 46 cm í öllum stærðum. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 47 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum. Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 84 til 120 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þráðum að framan og lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið). Prjónið síðan stroffprjón þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram í stroffprjóni eins og áður þar til stroffið mælist 3 cm, JAFNFRAMT þegar stroffið mælist ca 1 cm er fellt af fyrir síðasta hnappagatinu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Depaux wrote:
Bonjour Madame oui j'aie recommender les cotes avec les mailles qui sont indicer sur le patron je vous remercie pour les conseille que vous me donnée
08.12.2022 - 16:44