Loreta skrifaði:
So ein komplizierte Anleitung hab noch nie erlebt..
16.08.2021 - 21:47DROPS Design svaraði:
Liebe Loreta, gerne können Sie Ihre Frage hier stellen, so können wir Ihnen weiterhelfen, gerne wird Ihnen auch Ihr DROPS Laden weiterhelfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!
17.08.2021 - 10:29
Duhm skrifaði:
Hallo, ich verstehe beim Rumpfteil nicht wie man in jeder 6. Reihe und 4. Reihe abnimmt. Insgesamt 8 also eigentlich 6. Reihe doch nur 1 mal und 4. Reihe 7 mal oder? Und wie strickt man rechtes und linkes Vorderteil separat?
16.08.2021 - 08:09DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Duhm, die 1. Abnahme für V-Ausschnitt wird bei 29-36 cm gestrickt, dann stricken Sie 5 Reihen, und *bei der nächsten Hinreihe nehmen Sie noch mal für den V-Auschnitt, stricken Sie dann 3 Reihen* und von *-* insgesamt 7 Mal stricken = es sind jeweils 8 Maschen für den V-Ausschnitt abgenomen. Gleichzeitig, nach 34-40 cm stricken Sie jedes Teil separat fertig, dh die Maschen von linken Vorderteil und Rückenteil stilllegen und das rechte Vorderteil bis Schulter stricken, Faden abschneiden, linkes Vorderteil bis Schulter stricken und dann Rückenteil bis Schulter stricken. Viel Spaß beim stricken!
16.08.2021 - 08:35
Inger skrifaði:
Kan det passe at der kun skal lukkes 6 masker af til ærmegab ?
11.07.2021 - 22:24DROPS Design svaraði:
Hej Inger, ja det stemmer hvis du strikker den i str XL :)
13.07.2021 - 13:33
Sarah skrifaði:
Hallo, ich würde gerne eine einfarbige Jack stricken, wie viel Garn wird dafür insgesamt benötigt? Ich vermute wohl etwas weniger als die vollen 250g? Vielen Dank :)
08.07.2021 - 11:00DROPS Design svaraði:
Liebe Sarah, ja vermutchlich, leider haben wir die Jacke nicht mehr, Ihr DROPS Laden kann Ihnen sicher damit weiter helfen (auch telefonisch oder per E-Mail). Viel Spaß beim stricken!
08.07.2021 - 13:35
Köhler skrifaði:
Ich verstehe leider nicht, wie man die rechte und die linke blende strickt. Gibt es dazu Videos? Das ist doch schon abgekettet oder? Und was bedeutet bei der linken blende "in einer Hin-Reihe ab der HINTEREN MITTE ca. 72 bis 88 Maschen innerhalb 1 Rand-Masche aus dem ganzen Rand bis nach unten auffassen "
27.05.2021 - 21:13DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Köhler, die Maschen von den zwei Blende werden separat gestrickt und später zusammengenäht; die Maschen werden in einer Hinreihe (= Vorderseite/Ausserseite) aufgefasssen, bei der rechten Blende: von der unteren Rand bis zur Mitte des hinteren Halsrandes, bei der linken Blende fassen Sie die Maschen von dem hinteren Halsrand bis zur der untereren Rand. Viel Spaß beim stricken!
28.05.2021 - 08:26
Juli skrifaði:
Was ist beim Rumpf damit gemeint, dass man in jeder 6. Reihe ein mal “zunehmen” soll und in jeder 4. Reihe “7 mal”? Mir ist die Zunahme nicht ganz klar, ist damit vielleicht die V-Ausschnitt Abnahme gemeint?
11.05.2021 - 20:53DROPS Design svaraði:
Liebe Juli, ja genau, hier soll man abnehmen (Anleitung wird korrigiert) und nicht zunehmen. Viel Spaß beim stricken!
12.05.2021 - 07:03
Reuhl skrifaði:
Guten Tag, ich verstehe nicht wie man den Markierungsfaden fest macht. Kann man statt Faden auch einfach an die Nadel einen Markierer machen? Ich verstehe auch nicht genau, für was das sein soll und wie die Annahme dann funktionieren mit dem Markierer. Vielen Dank im Voraus!
28.04.2021 - 08:36DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Reuhl, der Markierugsfaden setzen Sie wie einen Markierer ein - siehe dieses Video. In diesem Video zeigt man (für Ärmel) wie man beiseitig von dem Markierungsfaden abnimmt. Viel Spaß beim stricken!
28.04.2021 - 11:20
Veerle Torfs skrifaði:
Dit is niet het patroon van een vest maar van een trui met V-hals. Waar vind ik het patroon van dit vest?
02.04.2021 - 10:33DROPS Design svaraði:
Dag Veerle,
Het patroon beschrijft een vest met een v-hals zoals op de afbeelding te zien is. Het vest wordt heen en weer gebreid van midden via het achterpand naar midden voor. Vanaf de armsgaten worden de beide voorpanden en het achterpand apart verder verder gebreid.
02.04.2021 - 11:47
Arianna skrifaði:
Korra’s Cardigan
08.01.2021 - 20:21
Doris skrifaði:
March
08.01.2021 - 16:33
Blue Sunrise Jacket#bluesunrisejacket |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli og blöðruermum með röndum. Stærð XS - XXL.
DROPS 221-23 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. V-HÁLSMÁL: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Hægra framstykki: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Vinstra framstykki: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 kantlykkju garðaprjón. RENDUR: 2 umferðir með 2 þræðir ljós beige. 4 umferðir með 1 þræði ljós beige + 1 þræði ljós sægrænn. 4 umferðir með 2 þræðir ljós sægrænn. 10 umferðir með 2 þræðir gallabuxnablár. 4 umferðir með 1 þræði gallabuxnablár + 1 þræði ljós sægrænn. 4 umferðir með 1 þræði gallabuxnablár + 1 þræði fjólublár 8 umferðir með 2 þræðir ljós lavender. 2 umferðir með 2 þræðir ljós beige. 4 umferðir með 2 þræðir fjólublár. 2 umferðir með 2 þræðir gallabuxnablár. 2 umferðir með 1 þráður gallabuxnablár + 1 þráður ljós lavender. Prjónið síðan með 2 þráðum ljós lavender til loka. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13) = 8,8. Í þessu dæmi eru prjónaðar ca 8 og 9. hver lykkja slétt saman, lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón upp að handveg. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg og framstykki og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum er stykkið sett saman og prjónaðir eru kantar fram og til baka frá miðju aftan í hnakka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 116-124-136-144-156-172 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5 með 2 þráðum í litnum ljós lavender. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram svona með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-13-17-17-17-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 103-111-119-127-139-154 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið nú prjónamerki 26-28-30-32-35-39 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 51-55-59-63-69-76 lykkjur á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum fyrir handveg. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-31-33-34-36-36 cm, byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 6.-6.-6.-6.-6.-0. hverri umferð 1-1-1-1-1-0 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 7-7-7-7-8-10 sinnum (= alls 8-8-8-8-9-10 sinnum). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-36-37-38-39-40 cm, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið þar til 1-1-1-2-3-5 lykkjur eru eftir á undan fyrsta prjónamerki (= framstykki), fellið af næstu 2-2-2-4-6-10 lykkjur fyrir handveg (= 1-1-1-2-3-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið næstu 49-53-57-59-63-66 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 2-2-2-4-6-10 lykkjur fyrir handveg (= 1-1-1-2-3-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið út umferðina. Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið og úrtöku fyrir V-hálsmáli. Þegar allar úrtökur fyrir V-hálsmáli hafa verið gerðar eru 17-19-21-22-23-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-23-24 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. VINSTRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið og úrtöku fyrir V-hálsmáli. Þegar allar úrtökur fyrir V-hálsmáli hafa verið gerðar eru 17-19-21-22-23-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-23-24 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: = 49-53-57-59-63-66. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 18-18-19-20-21-22 cm frá skiptingu, fellið af miðju 13-13-13-13-15-16 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 17-19-21-22-23-24 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 28-28-28-32-32-32 lykkjur á sokkaprjóna 5 með 2 þráðum í litnum ljós beige. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón nr 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 56-56-56-64-64-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist 20 cm frá uppfitjunarkanti, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 4-4-5-3½-4-4½ cm millibili alls 6-6-5-8-6-5 sinnum = 44-44-46-48-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 52-52-51-50-48-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 54-54-53-53-52-52 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2-2-2-3-4-5 cm efst á ermi. FRÁGANGUR: Frágangurinn er gerður með 2 þráðum í litnum ljós lavender. Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handveg – sá teikningu. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 5 og 2 þræði í litnum ljós lavender. Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp 72 til 88 lykkjur innan við 1 kantlykkju frá neðri kanti mitt aftan í hnakka (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, jafnframt eru lykkjur auknar út með uppslætti nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði þannig: * Byrjið frá réttu neðst í hægra framstykki og prjónið upp 72 til 88 lykkjur innan við 1 kantlykkju frá neðri kanti mitt aftan í hnakka (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, jafnframt er aukið út með því að slá uppá prjóninn nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri), endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Nú er stroffið prjónað þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 1 cm, fellið af fyrir 4-4-4-5-5-5 hnappagötum jafnt yfir. Efsta hnappagatið er staðsett ca 1 cm fyrir neðan þar sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjaði og neðsta hnappagatið ca 4 cm frá neðri kanti. 1 hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur slétt saman. ATH: Fallegast er að fella af í brugðinni einingu (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 5 og 2 þræði í litnum ljós lavender. Byrjið frá réttu mitt aftan í hnakka og prjónið upp 72 til 88 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli aftan í hnakka og síðan niður meðfram framstykki (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, jafnframt eru lykkjur auknar út með uppslætti nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri), endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Prjónið nú stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Saumið saman 2 kanta að framan mitt aftan í hnakka innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluesunrisejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.