Christina Tännérus Carlé skrifaði:
Namnförslag: Marie
09.01.2021 - 14:10
Merike skrifaði:
Hygge it is.
09.01.2021 - 09:23
Kiki skrifaði:
Summer Sweater Weather
09.01.2021 - 01:03
Manjola skrifaði:
Desire of sea
08.01.2021 - 11:05
Dorthe 🇩🇰 skrifaði:
Shyllar
07.01.2021 - 23:47
Shyllar skrifaði:
Den er superhyggelig
07.01.2021 - 23:47
Anna skrifaði:
Stripes of the Ocean
07.01.2021 - 20:07
Laura skrifaði:
Sunset at the sea
07.01.2021 - 18:35
Liesbeth Merckx skrifaði:
Seashell Sweater
07.01.2021 - 17:36
Lis Faarvang skrifaði:
Hygge-stortrøjen
07.01.2021 - 16:53
Evening Sun#eveningsunsweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa með axlarsæti úr DROPS Big Delight. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð XS - XXL.
DROPS 221-21 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 74 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 2,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 74-76-82-84-90-92 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Big Delight. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-26-34-36-38-40 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 100-102-116-120-128-132 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 17-17-19-20-21-22 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-22-22 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 34-35-38-40-42-44 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-22-22 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 17-18-19-20-21-22 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjur við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Nú er einungis aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram hringinn og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 19-23-23-28-31-36, síðan í annarri hverri umferð 10-10-11-12-12-12 sinnum = 216-234-252-280-300-324 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 20-22-23-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram að réttu máli án þess að auka út fleiri lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 33-36-39-43-47-51 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 42-44-48-54-56-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 66-73-78-86-94-102 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 42-44-48-54-56-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 33-37-39-43-47-51 lykkjur (= ½ bakstykki). Prjónið síðan fram og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-166-180-196-212-228 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 26-26-26-25-24-24 cm frá skiptingu, aukið út um 22-24-28-30-32-34 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 174-190-208-226-244-262 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkju og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 42-44-48-54-56-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5. Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 52-54-60-66-68-72 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 5-5-6-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 0-0-1-1-1-1 lykkja hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 0-0-10-7-6-4 cm millibili alls 0-0-2-4-4-5 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-37-37-35-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Ermin mælist ca 43-42-42-40-39-37 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #eveningsunsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.