Diane De Martin skrifaði:
Bonjour pour le col, il est dit de faire les côtes 2 end. 2 env. pendant 4 cm, et au dernier rang augmenter de 32 mailles. Est-ce que ces augmentations sont en côtes ou en jersey ? Merci!
23.09.2024 - 17:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme De Martin, pour augmenter, on fait des jetés (cf AUGMENTATIONS-1 au dernier tour des côtes, ces jetés seront tricotés torse à l'endroit (= en jersey) au 1er tour de l'empiècement. Bon tricot!
24.09.2024 - 08:49
Véronique skrifaði:
Bonjour, je me suis lancée dans les aiguilles circulaires. Dans les explications, je ne comprends pas bien lorsque vous écrivez "après ajout 4 mailles par tour, il faut ajouter 3 mailles tous les 2 tours". À quel marqueur je n'augmente pas ? Merci
03.02.2023 - 09:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Véronique, pour les manches marteau, on doit augmenter 4 mailles seulement à chaque fois: 2 pour le devant et 2 pour le dos, on augmente ainsi d'abord 27 à 47 fois tous les tours, puis 3 fois (pas 3 mailles, autrement dit, augmentez 4 mailles aux mêmes marqueurs qu'auparavant) tous les 2 tours = vous augmentez ainsi: (1 tour sans augmenter, 1 tour avec augmentations), puis 3 fois tous les 4 tours (3 tours sans augmenter, 1 tour avec augmentations), etc... Bon tricot!
03.02.2023 - 13:16
Lydia FLEURY BOUGE skrifaði:
Je serais intéressée par ce modèle mais je ne sais pas tricoter en rond, pourrais je le tricoter à plat si oui comment faire ? merci pour votre réponse, très bonne journée. Salutations
06.02.2022 - 09:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Fleury Bouge, cette leçon vous donnera quelques astuces pour adapter un modèle pour le tricoter sur aiguilles droites, il est parfois peut-être plus simple de tricoter certains modèles en rond, n'hésitez pas à vous entrainer à l'aide de nos vidéos pour apprendre à tricoter en rond, nombreuses sont celles qui ont osé essayé et ont finalement adopté les aiguilles circulaires. Bon tricot!
07.02.2022 - 10:01
Hilde Luyts skrifaði:
Beste, Maat M’ 84 steken opzetten na boord 28 steken meerderen.Na de eerste 4 steken gemeerderd te hebben staat er dat je dan nog enkel op’t voor en achterpand moet meerderen 31X dan nog 7X 4 steken per rij. Ik kom dan op 206 steken. Waar haal ik de andere 56 steken . Of begrijp ik het verkeerd? Zo te zien op de foto wordt inderdaad enkel gemeerderd bij het voor en achterpand. Dankjewel voor je antwoord. Mvg, Hilde
17.03.2021 - 21:56DROPS Design svaraði:
Dag Hilde,
Je meerdert inderdaad alleen op de panden en je meerdert 31 keer iedere naald en dan 3 keer om de naald, daarna op iedere 4e naald 3 keer en iedere 6e naald 1 keer. Je meerder totaal dus 38 keer = 152 steken gemeerderd. Met de 112 opgezette steken heb je dan in totaal 264 steken na de minderingen voor de zadelschouder.
21.03.2021 - 11:34
Hilde Luyts skrifaði:
Beste, Maat M’ 84 steken opzetten na boord 28 steken meerderen.Na de eerste 4 steken gemeerderd te hebben staat er dat je dan nog enkel op’t voor en achterpand moet meerderen 31X dan nog 7X 4 steken per rij. Ik kom dan op 206 steken. Waar haal ik de andere 56 steken . Of begrijp ik het verkeerd? Zo te zien op de foto wordt inderdaad enkel gemeerderd bij het voor en achterpand. Dankjewel voor je antwoord. Mvg, Hilde
17.03.2021 - 21:54
Janine skrifaði:
Sea Breeze
05.03.2021 - 09:28
Nastassia skrifaði:
"Raindrops"
08.01.2021 - 14:14
Blue Glaze Sweater#blueglazesweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa með útaukningu fyrir axlarsæti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-9 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Á berustykki eru auknar út lykkjur hvoru megin við axlalykkjurnar. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-88-96-96-100 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið áfram með stroff hringinn í 4 cm, í síðustu umferð eru auknar út 24-28-32-32-32-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 104-112-120-128-128-132 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Teljið 19-21-23-24-24-25 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 14-14-14-16-16-16 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 38-42-46-48-48-50 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 14-14-14-16-16-16 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 19-21-23-24-24-25 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjur við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram hringinn og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 27-31-33-39-43-47 sinnum, aukið síðan út í annarri hverri umferð 3 sinnum og í 4. hverri umferð 3 sinnum og í 6. hverri umferð 1 sinni (alls eru auknar út 4 lykkjur 34-38-40-46-50-54 sinnum) = 240-264-280-312-328-348 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 23-25-26-29-30-32 cm frá prjónamerki við hálsmál. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið yfir fyrstu 36-40-42-46-50-54 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi, prjónið 72-80-84-92-100-108 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi, prjónið yfir síðustu 36-40-42-46-50-54 lykkjurnar (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-172-184-200-220-240 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 18-18-19-17-18-18 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir = 176-192-208-224-248-272 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 nýjum lykkjum undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. Það á síðar að fækka lykkjum við þetta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-3½-2-1-1-1 cm millibili alls 4-5-7-10-11-12 sinnum = 46-48-50-52-52-54 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 21-19-19-16-16-15 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueglazesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.