Ellen Nielsen skrifaði:
Hej! Jeg er venstrehåndet og strikker modsatte vej end højrehåndede. Det er gået OK indtil nu. Men nu er jeg stærkt udfordret. Kan I hjælpe med, hvordan man skal gøre med udtagninger til sadelskulder som venstrehåndet? Med venlig hilsen, Ellen.
17.03.2024 - 10:50DROPS Design svaraði:
Hej Ellen, det kan vi desværre ikke. Der er lavet mange undersøgelser om det spørgsmål og det siges at langt de fleste venstrehåndet strikker med højre hånd... Held og lykke :)
19.03.2024 - 14:56
Christina Tännérus Carlé skrifaði:
Namnförslag: Elise
09.01.2021 - 14:21
Merike skrifaði:
I would suggest ´fuzz-ball´ :)
09.01.2021 - 09:47
Blue Glaze#blueglazecardigan |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-10 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 FRÁ RÉTTU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-3 FRÁ RÖNGU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-7½-8-8-8½ cm millibili. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Á berustykki eru lykkjur auknar út hvoru megin við axlalykkjur. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-104-104-108 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan) á hringprjóna 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með stroff fram og til baka í 4 cm, í síðustu umferð eru auknar út 26-30-34-34-34-34 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 114-122-130-138-138-142 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að framan) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Teljið 24-26-28-29-29-30 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 14-14-14-16-16-16 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 38-42-46-48-48-50 lykkjur frá 2. prjónamerki (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 14-14-14-16-16-16 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 24-26-28-29-29-30 lykkjur eftir á framstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Stykkið er prjónað áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og aukið út á eftir 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-3. Þ.e.a.s. aukið er út í hverri umferð og mismunandi er aukið út frá réttu og frá röngu, þannig að lykkjurnar liggja fallega. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 27-31-33-39-43-47 sinnum, síðan er aukið út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) 3 sinnum, í 4. hverri umferð (= önnur hver umferð frá réttu) 3 sinnum og í 6. hverri umferð (= þriðju hverri umferð frá réttu) 1 sinni (alls eru auknar út 4 lykkjur 34-38-40-46-50-54 sinnum) = 250-274-290-322-338-358 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 23-25-26-29-30-32 cm frá prjónamerki við háls. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið yfir fyrstu 41-45-47-51-55-59 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi, prjónið 72-80-84-92-100-108 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi, prjónið yfir síðustu 41-45-47-51-55-59 lykkjurnar (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-182-194-210-230-250 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 18-18-19-18-19-19 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 22-22-26-26-30-34 lykkjur jafnt yfir = 188-204-220-236-260-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 nýjum lykkjum undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-3½-2-1-1-1 cm millibili alls 4-5-7-10-11-12 sinnum = 46-48-50-52-52-54 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 21-19-19-16-16-15 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueglazecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.