Raffaella skrifaði:
Il primo giro dello schema non si fanno aumenti, si inizia ad aumentare al primo giro successivo. Giusto? Comunque bellissimo modello!
24.03.2021 - 14:01DROPS Design svaraði:
Buonasera Raffaella, se fa riferimento ai diagrammi A.1, A.2 e A.3 gli aumenti iniziano sul 1° giro. Buon lavoro!
24.03.2021 - 20:09
Raffaella skrifaði:
Non mi trovo nel primo giro: inizio gli aumenti al secondo marcatore, al 4 segnapunti ho 34 maglie e lo schema A3 ne prevede 5. Sbaglio di sicuro ma non capisco dove!
24.03.2021 - 13:30DROPS Design svaraði:
Buonasera Raffaella, ci può spiegare meglio a che punto delle spiegazioni sta facendo riferimento? Buon lavoro!
24.03.2021 - 20:08
Milena skrifaði:
Les jours ne sont pas trop rapprochés, laissant la place au jersey et à la qualité de la laine. Cela crée un effet de calme
11.01.2021 - 12:45
Mela skrifaði:
Serenity
10.01.2021 - 01:45
Low Tide#lowtidesweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-3 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 5,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 82-88-92-98-102-104 lykkjur á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 8½-9 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-14-10-36-32-30 lykkjur jafnt yfir = 98-102-102-134-134-134 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn). Skiptið yfir á hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Setjið fyrsta prjónamerki í byrjun á umferð. Annað prjónamerki: Teljið 16-18-18-22-22-22 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 33-33-33-45-45-45 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 16-18-18-22-22-22 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 33-33-33-45-45-45 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Prjónið mynstur og aukið jafnframt út eins og útskýrt er að neðan: Prjónamerkið er staðsett hér, prjónið 16-18-18-22-22-22 lykkjur slétt, prjónamerkið er staðsett hér, prjónið A.1 yfir næstu 4 lykkjur, A.2 yfir næstu 24-24-24-36-36-36 lykkjur, A.3 yfir næstu 5 lykkjur, prjónamerkið er staðsett hér, prjónið 16-18-18-22-22-22 lykkjur slétt, prjónamerkið er staðsett hér, prjónið A.1 yfir næstu 4 lykkjur, A.2 yfir næstu 24-24-24-36-36-36 lykkjur, A.3 yfir næstu 5 lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram hringinn og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 15-16-18-20-22-25 sinnum = 158-166-174-214-222-234 lykkjur (fyrstu 14 útauknu lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1/A.3, prjónið síðan afgang af útauknum lykkjum í sléttprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 7-7-8-9-10-11 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram hringinn með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Aukið svona út í hverri umferð 2-0-2-4-2-4 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 7-9-9-9-11-8 sinnum og í hverri umferð 2-0-0-2-2-2 sinnum = 202-202-218-274-282-290 lykkjur. Stykkið mælist ca 15-15-17-20-22-21 cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 36-34-38-50-50-48 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-8-8-6-6-9 sinnum = 242-266-282-322-330-362 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, mælist stykkið ca 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 48-52-56-64-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-81-85-97-101-113 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 73-81-85-97-101-113 lykkjur (= bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-214-226-250 lykkjur. Haldið áfram hringinn með mynstur eins og áður. Nýjar 8-8-10-10-12-12 lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 20 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og síðasta umferð í mynsturteikningu eða 7 umferð á undan. Aukið nú út um 26-28-30-34-36-40 lykkjur jafnt yfir = 188-206-220-248-262-290 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 48-52-56-64-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 56-60-66-74-76-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 0-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 1-2-3-4-5-6 sinnum = 54-56-60-66-66-68 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 29-27-26-26-24-23 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-16-18-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-46-46-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist 34-32-31-31-29-28 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lowtidesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.