Liz skrifaði:
Bonjour, je fais le modèle 3/4 ans. J'ai fini les aug. (grâce aux jetés avant et après les A3 et A4) et j'ai bien 168 m. Par contre, je n'ai pas 12 cm depuis le marqueur (cad après les côtes du col). Comment continuer le tricot pour faire des jours (trous) avec des jetés sans augmenter le nombre de mailles ? Même question pour le corps, si on ne fait plus de jetés de chaque côté des torsades, il n\'y a plus de jours (trous) de part et d\'autre des torsades ? Merci !
25.02.2024 - 12:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Liz, il est possible que votre tension en hauteur soit différente à celle du modèle, dans ce cas, continuez simplement à tricoter, sans augmenter, jusqu'à la hauteur indiquée. Pour conserver les trous sans augmenter, faites 1 diminution après/avant le jeté avant/après chaque torsade. Bon tricot!
26.02.2024 - 10:26
Helstein skrifaði:
Hallo,ich verstehe nicht wie kommt man auf 200Maschen a Ende zunahmen Passe wenn ich am Halsblende 96 habe und Zunahmen sind 14x8 =112Maschen Also 96+112 macht 208 Maschen und nicht 200 Margarete
03.01.2024 - 15:35DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Helstein, in die letzte Größe sind es 96 Maschen nach der 1. Raglanzunahmen. Dann wird es noch 13 Mal 8 Maschen für den Raglan zugenommen = 104 Maschen + die 96 Maschen sind 200 Maschen. Beachten Sie daß die 1. Zunahmen schon erklärt sind, so wird man insgesamt 14 Mal zunehmen, dh 13 Mal extra nach der 1. beschriebenen Runde. Viel Spaß beim stricken!
03.01.2024 - 15:48
Schneider Catherine skrifaði:
Les explications pour le col sont fausses quand on compare le nombre de mailles de debut et les explications du col on n a pas le meme nombre de mailles. si on fait les dim de A3 a on n arrive pas non plus au nombre de mailles que vous indiquez. voiila a corriger. bonne annee
02.01.2024 - 14:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Schneider, pouvez-vous nous indiquer dans quelle taille vous avez relevé une erreur? Nous vous expliquerons avec plaisir comment procéder si vous ne tombez pas juste. Merci pour votre compréhension.
03.01.2024 - 08:50
Marie skrifaði:
Bonjour, je commence le pull en taille 5/6 ans. Pouvez vous me confirmer qu'il n'y a pas d'erreur de frappe ou de diagramme, car A1 et A2 sont identiques ! Bien cordialement
26.12.2023 - 13:35
Julie skrifaði:
Hei, Jeg har kommet til bærestykket: «Fortsett med A.3 og A.4 og glattstrikk over de resterende maskene og øk til raglan på hver 2.omgang totalt 10-11 (12-12-13-14) ganger (inkludert den første økningen som er forklart over) = 144-156 (168-176-184-200) masker.» Jeg ser ikke noe instruksjoner til hvordan man skal gjøre raglan? Er det bare normal raglan strikk, hvor på bærestykket skal man evt gjøre dette?
07.12.2023 - 21:42DROPS Design svaraði:
Hei Julie, Du øker til raglan ved å lage 1 kast på hver side av hver A.3/A.4 og 1 kast i hver A.3/A.4 (står beskrevet etter beskrivelsen av første økningen til raglan). De kastene på hver side av A.3/A.4 er strikket rett på neste omgang (skal bli hull). God fornøyelse!
08.12.2023 - 08:11
STÉPHANIE BLAIS skrifaði:
Bonjour, j'ai débuter le tricot en taille 2 ans. jusqu'ici tout allait bien mais je ne comprends les 12 augmentations tous les deux tours???!! :) "Continuer ainsi avec A.3 et A.4 et en jersey au-dessus des mailles restantes et augmenter 10-11 (12-12-13-14) fois au total tous les 2 tours (y compris les 1ères augmentations expliquée ci-dessus)= 144-156 (168-176-184-200) mailles." Merci de votre aide et du tempms accordé. cordialmeent. Stéphanie
31.10.2023 - 14:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Blais, vous devez augmenter pour le raglan 12 fois au total tous les 2 tours, au tout 1er tour de l'empiècement, vous avez augmenté 8 m à intervalles réguliers et dans les diagrammes, vous aviez 60 mailles + 4 m (1 dans chaque A.4/A.4) + 8 m + 12 fois 8 m pour le raglan, vous aurez 168 mailles au total quand les augmentations du raglan seront terminées. Bon tricot!
31.10.2023 - 16:37
MINA skrifaði:
Hello, I\'m just asking what to knit after yoke?is that only A3 A4 we have to knit? and make holes first?or we have to work all yarn over and make holes?
19.10.2023 - 18:15
Mina skrifaði:
I wanted to know about knitting after nackedege and yoke. What to knit now? Firstly it’s A4 and A4? Or all the stitches in one row? Any how I will get that design with holes?
19.10.2023 - 16:09DROPS Design svaraði:
Dear Mina, after neck edge is done, work in stocking stitch (increasing on first round) with A.3 and A.4 on each raglan line and increase for each raglan before and after each A.3/A.4, starting the diagrams on first row. After the first 3 rows in diagrams have been done, repeat the 7 rows in A.3a/A.4a, at the same time, increase for the raglan as stated for the size, the holes are done by working the yarn overs (increases for raglan) in the front loop on next round. Happy knitting!
20.10.2023 - 07:53
MINA skrifaði:
Hello, It'S not bake in my post I Wrote but neck and yoke. AND I need help to knit further. HOW TO Knit after this? Should I Knit A3 A4 first with all yarn over or should I first A3 and A4 and then next round overs with all increased? THANKS.
19.10.2023 - 14:16DROPS Design svaraði:
Dear Mina, could the previous answer help you? The first rows in A.3/A.4 will be worked only once, until the first cable has been worked, then you repeat the 7 rows marker with A.3a/A.4a in diagrams. Happy knitting!
19.10.2023 - 16:00
MINA skrifaði:
Hello, I'm Mina. I want help to knit baby leaf sweater. I have knit back and yoke. Need help to knit further down the design. should Knit A3and A4 without working over other yarn overs?
19.10.2023 - 13:39DROPS Design svaraði:
Dear Mina, when you have to work A.3/A.4 you start with yarn overs on first row, and cable on 3rd row, then you repeat A.3a and A.4a, this means only the 7 rows marked in diagrams. Happy knitting!
19.10.2023 - 15:58
Baby Leaf Sweater#babyleafsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með laskalínu og köðlum, ofan frá og niður. Stærð 6 mánaða – 8 ára.
DROPS Baby & Children 38-9 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Berustykkið er prjónað síðan með köðlum og laskaútaukningu á hringprjóna. Stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram hringinn á hringprjóna með köðlum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 52-52 (60-60-68-68) lykkjur á sokkaprjóna/hringprjóna 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Umferðin byrjar ca fyrir miðju að aftan. Prjónið síðan stroff þannig: Hálft bakstykki: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 4-4 (4-4-8-8) lykkjur, A.1 (= 5 lykkjur). Hægri ermi: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 6-6 (10-10-10-10) lykkjur (þ.e.a.s. það er byrjað og endað með 2 lykkjur brugðið). Framstykki: A.2 (= 5 lykkjur), * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 10-10 (10-10-14-14) lykkjur (þ.e.a.s. það er byrjað og endað með 2 lykkjur brugðið), A.1 yfir 5 lykkjur. Vinstri ermi: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 6-6 (10-10-10-10) lykkjur (þ.e.a.s. það er byrjað og endað með 2 lykkjur brugðið). Hálft bakstykki: A.2 yfir 5 lykkjur, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, yfir síðustu 6 lykkjur (þ.e.a.s. það er byrjað og endað með 2 lykkjur brugðið). Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 3 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið berustykki þannig: BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð þannig: Hálft bakstykki: Prjónið 3-3 (3-3-7-7) lykkjur slétt á meðan aukið er út um 0-1 (2-3-1-3) lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 (= 7 lykkjur). Hægri ermi: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4-4 (8-8-8-8) lykkjur slétt á meðan aukið er út um 4-4 (0-2-2-2) lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Framstykki: A.4 (= 7 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8-8 (8-8-12-12) lykkjur slétt á meðan aukið er út um 0-2 (4-6-2-6) lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 yfir 7 lykkjur. Vinstri ermi: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4-4 (8-8-8-8) lykkjur slétt á meðan aukið er út um 4-4 (0-2-2-2) lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Hálft bakstykki: A.4 yfir 7 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt á meðan aukið er út um 0-1 (2-3-1-3) lykkjur jafnt yfir. Nú hafa verið auknar út alls 8-12 (8-16-8-16) lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert A.3/A.4 (= alls 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu) og 1 lykkja í hverju A.3/A.4 (= 4 lykkjur) = alls 72-76 (80-88-88-96) lykkjur í umferð. Uppslátturinn hvoru megin við A.3/A.4 er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt. Seinni uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Haldið áfram með A.3 og A.4 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 10-11 (12-12-13-14) sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan) = 144-156 (168-176-184-200) lykkjur. Þegar A.3a og A.4a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.3a og A.4a á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir allar útaukningar mælist stykkið ca 10-11 (12-12-13-14) cm frá prjónamerki. Prjónið áfram eins og áður án útaukningar þar til stykkið mælist 11-12 (13-14-15-16) cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið yfir fyrstu 21-23 (25-26-29-32) lykkjur eins og áður, setjið næstu 28-30 (32-34-36-38) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið eins og áður yfir næstu 44-48 (52-54-56-62) lykkjur, setjið næstu 28-30 (32-34-36-38) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 23-25 (27-28-27-30) lykkjur eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100-108 (116-120-124-136) lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.3/A.4 eins og áður. Lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 13-15 (17-20-23-26) cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli), prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 13-15 (17-18-21-24) sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 0-2 (4-3-4-1) lykkjur jafnt yfir, A.3a eins og áður, 6 lykkjur slétt á meðan aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir, A.4a eins og áður, 28-32 (36-38-40-46) lykkjur slétt á meðan aukið er út um 4-4 (4-6-4-6) lykkjur jafnt yfir, A.3a eins og áður, 6 lykkjur slétt á meðan aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir, A.4a eins og áður, 15-17 (19-20-19-22) lykkjur á meðan aukið er út um 4-2 (0-3-0-5) lykkjur jafnt yfir = 112-120 (128-136-136-152) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 12-16 (20-20-24-24) lykkjur, 1 lykkja brugðið, A.3b yfir A.3a, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 6 lykkjur, 1 lykkja brugðið, A.4b yfir A.4a, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 30-34 (38-42-42-50) lykkjur, 1 lykkja brugðið, A.3b yfir A.3a, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 6 lykkjur, 1 lykkja brugðið, A.4b yfir A.4a, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 18-18 (18-22-18-26) lykkjur (þ.e.a.s. það er byrjað og endað með 2 lykkjur slétt). Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 16-18 (20-23-26-29) cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 30-33 (36-40-44-48) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 28-30 (32-34-36-38) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-36 (38-40-42-44) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja undir ermi. Það á að fækka lykkjum síðar hvoru megin við þetta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3-2½ (3½- 5-5½-6) cm millibili alls 3-4 (4-4-4-4) sinnum = 28-28 (30-32-34-36) lykkjur. Þegar stykkið mælist 13-15 (18-22-25-29) cm frá skiptingu, aukið út 0-0 (2-0-2-0) lykkjur jafnt yfir = 28-28 (32-32-36-36) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar ermin mælist 16-18 (21-25-28-32) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babyleafsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.