Lotte skrifaði:
Hallo Marianne, ik ben begonnen met de trui in maat 122/128. Met dus 80 steken als ik aan de raglan wil beginnen. Maar de verdeling van 16-7-31-7-15 komt uit op een totaal van 76. Ik heb dus 4 steken 'te veel'. Wat doe ik verkeerd?
15.06.2021 - 13:01DROPS Design svaraði:
Dag Lotte,
Je voegt de markeerdraden in de steken en niet tussen 2 steken. Zou dat het verschil van 4 steken kunnen verklaren?
16.06.2021 - 16:17
Izabella skrifaði:
Hej! Jättefin tröja! Ser dock att garnåtgång inte står någonstans i mönstret. Står inte heller vilka de andra storlekarna är förutom den största och minsta storleken. Tror det kan vara bra att skriva ut detta då det ändå är relevant.
30.04.2021 - 09:17DROPS Design svaraði:
Hej Izabella. Tack för info, det hade missats på dem svenska översättningen men har nu lagts till. Du kanske behöver uppdatera sidan för att det ska synas! Mvh DROPS Design
30.04.2021 - 13:09
Maria Müller skrifaði:
Hallo, ich finde diesen Pullover super! Was mich jedoch stört: Für das Klima in Westeuropa ist ein Pullover aus Garngruppe B bereits grenzwertig zu warm, für einen patentgestrickten Pullover gilt dies doppelt. Ich würde mich deshalb sehr freuen, wenn sie ein sehr ähnliches Strickmuster in zweifarbigen Patent gestrickt mit Garnen aus der Garngruppe A veröffentlichen könnten. Danke.
17.04.2021 - 14:10
Marianne Nilsson skrifaði:
I översikten för olika mönster står att detta mönster stickas i Air men i själva mönstret står att det ska stickas i Merino extra fine. Vad jag förstår har garnerna olika stickfasthet. Vilket garn gäller?
05.04.2021 - 23:09DROPS Design svaraði:
Hej Marianne, så er det blevet rettet, tröjan strikkes i DROPS Merino Extra Fine :)
06.04.2021 - 14:09
The Outdoors#theoutdoorssweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni. Stærð 12 mánaða – 10 ára.
DROPS Baby & Children 38-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 6. og 7. hverja lykkju saman. KLUKKUPRJÓN : UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-*. Endurtakið umferð 2 og 3. KLUKKUPRJÓNSLYKKJA: Þegar lykkjurnar eru taldar þá er uppslátturinn ekki talinn sem eigin lykkja. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð í 1 umferð þar sem uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman (þ.e.a.s. 2. umferð í klukkuprjónsmynstri). AUKIÐ ÚT ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í. Aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju (1 lykkja brugðið + uppsláttur) þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni. Prjónið næstu 5 lykkjur í klukkuprjóni eins og áður. Aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju eins og útskýrt er að ofan. Endurtakið við öll prjónamerkin (= alls 16 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstur – það eru engir uppslættir í 3 útauknu lykkjunum, þannig að í fyrstu umferð á eftir útaukningu er slétta lykkjan prjónuð án uppsláttar. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í 1 umferð þar sem uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman (þ.e.a.s. umferð 3 í klukkuprjónsmynstri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Á UNDAN LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan brugðinni lykkju með prjónamerki, prjónið næstu 3 lykkjur og tilheyrandi uppslætti slétt saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Á EFTIR LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI (þ.e.a.s. byrjið strax eftir brugðna lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslátt á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + slétt lykkja og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR HÁLSMÁL: Fitjið upp 70 (74-76-76-80-80) lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10 (6-4-4-0-0) lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1= 60 (68-72-72-80-80) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð er ca mitt að aftan). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð í klukkuprjóni, setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar (öll prjónamerkin eru sett í slétta lykkju) – sjá KLUKKUPRJÓNSLYKKJA, þannig: Hoppið yfir fyrstu 10 (12-14-14-16-16) lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= skiptingin á milli bakstykkis og hægri ermi), hoppið yfir næstu 7 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= skipting á milli hægri ermi og framstykki), hoppið yfir næstu 21 (25-27-27-31-31) lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= skipting á milli framstykkis og vinstri ermi), hoppið yfir næstu 7 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= skipting á milli vinstri ermi og bakstykkis), nú eru 11 (13-13-13-15-15) lykkjur eftir í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er eitt prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á auka út hvoru megin við hvert prjónamerki. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni, JAFNFRAMT í næstu umferð (= 2. umferð í klukkuprjónsmynstri) byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 8. hverri umferð alls 6 (6-6-7-7-8) sinnum = 156 (164-168-184-192-208) lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, haldið áfram í klukkuprjóni þar til stykkið mælist 13 (14-15-16-17-18) cm frá prjónamerki – endið eftir 2. umferð í klukkuprjóni. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 22 (24-24-28-28-32) lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 33 (33-35-37-39-41) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 45 (49-49-55-57-63) lykkjur (= framstykki), setjið næstu 33 (33-35-37-39-41) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 23 (25-25-27-29-31) lykkjur í umferð (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100 (108-108-120-124-136) lykkjur. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni. Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar án klukkuprjónsuppsláttar í fyrstu umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 14 (16-19-22-25-28) cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður saman með lykkjum. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 33 (36-40-44-48-52) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 33 (33-35-37-39-41) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 38 (38-40-42-44-46) lykkjur. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni. Í fyrstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar sem prjónaðar voru upp undir ermi án klukkuprjónsuppsláttar. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé 1 umferð þar sem lykkjurnar eru prjónaðar brugðið, setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju undir ermi (= 1 lykkja brugðið). Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 = 34 (34-36-38-40-42) lykkjur. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 7 (8-13-16-18-20) cm = 30 (30-32-34-36-38) lykkjur. Þegar ermin mælist 11 (14-19-23-26-30) cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist 15 (18-23-27-30-34) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #theoutdoorssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.