Helga Eitel skrifaði:
Vorder- und Rückenteil auf dieselbe Nadel Nr. 6 legen und 2 Rd. glatt rechts stricken u. die 4 Maschen an den beiden Seiten über dem Schlitz kraus re. stricken. Ich nehme an dass das nur in Hin- und Rückreihen erfolgen kann und nicht in Runden. Ist das richtig? Ich danke Ihnen für die Hilfe damit ich weiterstricken kann.
05.04.2025 - 16:06DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Eitel, jetzt stricken Sie in Runden, die 4 Maschen an den beiden Seiten stricken Sie bei der 1. Runde rechts und bei der 2. Runde links (die anderen Maschen stricken Sie rechts bei den beiden Runden). Viel Spaß beim Stricken!
07.04.2025 - 08:04
Lilian skrifaði:
Vilket tvättråd skall man gå efter, det är ju 2 olika garner med olika tvättråd?
23.01.2025 - 20:14DROPS Design svaraði:
Hej Lilian, För det första, överväg att bara vädra plagget istället för att tvätta det. Om du tvättar ett plagg som gjorts i kombination med 2 garn, är den allmänna riktlinjen att följa tvättråden för det ömtåligaste garnet som här är DROPS Brushed Alpaca Silk.
24.01.2025 - 09:14
Helene skrifaði:
Hejsa. Kan ikke finde hvor der står hvilken pind strikkefastheden er strikket på ? :))
23.12.2024 - 18:56
Carole Ann Watt skrifaði:
How do i work out how mny balls wool i need im a begginner
08.12.2024 - 19:33DROPS Design svaraði:
Dear Carole Ann, all this info you can find in the header of the pattern, near the main photo. Pattern is written for sizes S/M – L, fits head size: 54/56 - 58 cm. Measurements: Circumference at the bottom after the split: Approx. 90-94 cm. Height: Approx. 49-53 cm. For this sizes you need 150-150 g of DROPS Karisma yarn (= 3 balls per each size) and 50-50 g of DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 balls per each size). Happy knitting!
08.12.2024 - 20:10
Helga Eitel skrifaði:
Ich finde es schade dass kein Video das zu strickende Objekt betrifft sondern allgemeine und sicherlich bekannte Techniken erklärt.
28.11.2024 - 18:21DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Eitel, gerne können Sie hier Ihre Frage stellen, so können wir Ihnen helfen. Viel Spaß beim Stricken!
29.11.2024 - 08:17
Mette Løkken-Gylder skrifaði:
Kan jeg bruke Drops Nepal på denne oppskriften ? Forsøkte med garnbytte kalkulatoren men forstod nok ikke helt hvordan jeg skulle gjøre det. Jeg har 3 nøster Nepal liggende og håpet jeg kunne bruke de på denne fine ballaklavaen
30.04.2024 - 21:04DROPS Design svaraði:
Hei Mette, Drops Karisma tilhører garngruppe B, mens Nepal tilhører garngruppe C. Det betyr at Nepal er litt tykkere og du må bruke en mindre pinnestørrelse for å få riktig antall masker/rad på prøvelappen din. Lykke til!
02.05.2024 - 06:40
Regina Gidion skrifaði:
Guten Abend, herzlichen Dank für die für die wundervolle Anleitung für die Schalmütze, sie ist sehr gelungen und sitzt perfekt. Leider reichen 50 g DROPS BRUSHED ALPACA SILK nicht einmal für die kleinere Mütze. Ist es möglich, dies zu ändern? Liebe Grüße Regina
11.01.2022 - 18:14DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Gidion, Brushed Alpaca Silk ist 25 g ein Knäuel, haben Sie mehr als 2 Knäuel verbraucht? Stimmt Ihre Maschenprobe in der Breite sowie in der Höhe (= 14 M x 20 Reihen)? Danke im voraus!
12.01.2022 - 06:52
Nanna skrifaði:
Heisann. Jeg har laga denne igår og har endra oppskriften litt. Jeg har sydd inn en snor inni kanten, slik at jeg kan stramme den hvis det er kalt. Kanskje det er et tips for andre. Jeg laga to små hull i kanten etter 4.5 cm også når jeg sydde kanten fast la jeg snoren inni, og gjennom hullene.
09.01.2022 - 09:38
Majken skrifaði:
Hej Hvordan måler jeg str. på huen ?
21.10.2021 - 16:29DROPS Design svaraði:
Hej Majken, når du holder strikkefastheden som står i opskriften, så kommer hun til at passe de to hovedmål som står øverst i opskriften. Du måler omkredsen på hovedet fra panden og rundt om baghovedet. God fornøjelse!
22.10.2021 - 12:06
Cornelia Van Nimwegen skrifaði:
Graag antwoord op hoe patroon 214-71. Op laptop uit te printen
16.03.2021 - 10:21DROPS Design svaraði:
Dag Cornelia,
Dit kun je doen via de knop 'Afdrukken' onder de materialenlijst. Klik op de knop 'Afdrukken' en dan op 'Patroon'. In het pop-up venster dat vervolgens in beeld komt klik je rechts boven op de link 'Het patroon afdrukken'.
21.03.2021 - 11:41
Warm Snuggles#warmsnugglesbalaclava |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð balaclava / húfa / lambhúshetta úr DROPS Karisma og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með kanti í stroffprjóni.
DROPS 214-71 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 71 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim 67 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 8,4. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum á undan hverju prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir hverju prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (á við um í hvorri hlið við miðju að framan): Fækkið lykkjum innan við ystu 4 lykkjur við miðju að framan. Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 4 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 4 fyrstu lykkjur eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 4 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 4 lykkjum, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 síðustu lykkjurnar eins og áður (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING-2 (á við um miðju aftan á húfu): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki eins og útskýrt er að neðan. Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (prjónamerkið situr á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, neðan frá og upp eftir klauf. Síðan er stykkið sett saman og prjónað er áfram í hring á hringprjóna. Lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli, síðan er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Húfan er saumuð saman í toppi. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum op að framan. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 71-75 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Karisma og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið alls 4 umferðir stroff. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 63-66 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til framstykkið mælist 5-6 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Geymið stykkið og prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á framstykki og prjónið á sama hátt og framstykkið (framstykki og bakstykki eru alveg eins). Setjið síðan stykkið saman fyrir hálsmál eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Setjið framstykki og bakstykki á sama hringprjón 6 = 126-132 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón og prjónið jafnframt 2 umferðir garðaprjón yfir 4 lykkjur í klauf í hvorri hlið. Setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar, þ.e.a.s. í skiptinguna á milli framstykki og bakstykki. Setjið síðan 5 næstu prjónamerki með 21-22 lykkja millibili. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 6 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 = 12 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 4-5 sinnum á hæðina = 78-72 lykkjur eftir. Prjónið 2 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð er fækkað um 6-0 lykkjur með því að fækka um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki (á einungis við um stærð S/M) = 72-72 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 21-23 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru lykkjur felldar af fyrir op mitt að framan, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 10-10 lykkjur sléttprjón, fellið af 16-16 lykkjur fyrir op í hálsmáli og prjónið sléttprjón út umferðina = 56-56 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að aftan). Prjónið síðan húfuna eins og útskýrt er að neðan. HÚFA: Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað í hvorri hlið við miðju að framan og aukið er út við miðju að aftan eins og útskýrt er að neðan. FÆKKIÐ LYKKJUM Í HVORRI HLIÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN: Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-4 sinnum í hvorri hlið. ÚTAUKNING MITT AÐ AFTAN: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt að aftan – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 3-5 sinnum. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 54-58 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 28-30 cm frá prjónamerki mitt að aftan, þ.e.a.s. frá þar sem lykkjur voru felldar af við miðju að framan – eða prjónið að óskaðri lengd (þetta mál er hæðin á opi mitt að framan). Stykkið mælist ca 49-53 cm ofan frá og niður að uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið húfuna saman í toppi innan við affellingarkant. KANTUR Í KRINGUM OP AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst í opi að framan þar sem lykkjur voru felldar af og prjónið upp ca 108 til 120 lykkjur í kringum op að framan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði Karisma og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6-6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #warmsnugglesbalaclava eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-71
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.