Argene Revelant wrote:
Bonjour, j'aime beaucoup vos modèles, mais, pour celui-ci, je ne vois pas le diagramme. Merci
28.01.2024 - 15:32DROPS Design answered:
Bonjour Mme Revelant et merci. Le diagramme A.1 se trouve tout à la fin des explications, il se tricote sur 4 mailes et 4 rangs. Bon tricot!
29.01.2024 - 12:14Jacqueline wrote:
I understand where I should be making the increased stitches but can you please advise me how I include these extra stitches within the A1 pattern thank you for your help
11.01.2024 - 15:31DROPS Design answered:
Dear Jacqueline, when the first stitch before/after the increase is the first stitch in A.1, work the new st as the last st in A.1, the work the next increase as the the 3rd st in A.1, next 2 increases will be worked as 2nd and 1st = you have increased a whole repeat. Repeat one more time. Until one whole repeat will be increased (4 new sts), pattern will not fit, just work them as in diagram. Happy knitting!
12.01.2024 - 07:34Inge wrote:
Ich möchte die Kindermütze Northern Spirit Kids Stricken. Gleich zu Beginn stellt sich mir die Frage wie die Erklärung des Mittelteils beginnt. Maschen anschlagen ist klar. 1.;Reihe links Stricken ebenso. Danach steht KRAUS RECHTS- siehe A1. \r\nFür mich bedeutet kraus rechts: vor- und Hinreihe rechts Stricken. \r\nDas kann aber nicht gemeint sein. In welcher Richtung wird das Mittelteil gestrickt. Von vorne nach hinten?\r\nIch hoffe, Sie können mir weiterhelfen.
12.11.2023 - 13:44DROPS Design answered:
Liebe Inge, man will das Mittelteil von vorne (angeschlagene Maschen) nach hinten stricken, mit Muster A.1 und 1 Randmasche kraus rechts, die Randmaschen bzw die 1. und die letzte Masche jeder Reihe wird rechts gestrickt; dazwischen stricken Sie A.1 (= 2 Maschen glatt rechts, 2 Maschen Krausrechts). Viel Spaß beim stricken!
13.11.2023 - 08:43Merete Justesen wrote:
Ja, men så er der også kun 9cm plus de sidste par pinde under halsen og så bliver stykket under halsen meget kortere end på billedet. Jeg tænker at det må være en fejl i opskriften.
05.12.2022 - 15:37DROPS Design answered:
Hei Merete. Fra du legger opp masker under haken strikkes det ca 15 cm (6 cm +9 cm), fra merket fra toppen er det strikket 18 cm når alle økninger/fellinger er gjort, og når man ser på bildet virker målene å stemme med hverandre. 15 cm +18 cm + de siste omgangene/avfellingene = ca 34 cm. Om du ønsker den lengre og du har nok garn, kan du fint strikke den lengre. mvh DROPS Design
05.12.2022 - 15:55Merete Justesen wrote:
Efter første udtagning til hals står der strik 9 cm fra mærket. Mærket sidder ved udtagningen til hals og derfra er der allerede strikket 6 cm. Kan det passe at der kun skal strikkes 3 cm efter første udtagning? For så bliver stykket under hals ikke så langt som på billederne. Strikker str 3-5 år
05.12.2022 - 12:38DROPS Design answered:
Hei Merete. Når du har lagt opp 12 nye masker (under haken), settes det et nytt merke. Strikk for forklart i oppskriften til arbeidet måler 6 cm, øk deretter alle 2 rett til 3 rett. Strikk videre til arbeidet måler 9 cm fra merket, altså 3 cm fra siste det ble økt masker. Og nå økes det igjen. Strikk 1 omgang med 3 masker rett / 3 masker riller. Strikk 1 omgang vrang. Deretter felles det løst av med rett. Arbeidet måler ca 34 cm fra midt på midtpartiet og ned. mvh DROPS Design
05.12.2022 - 14:45Jocelyne wrote:
Je ne vois comment faire une augmentation à 7 mailles du bord et continuer à réaliser le diagramme, dans la mesure où je rajoute une maille et le diagramme tourne sur 2 mailles merci pour votre aide
02.04.2022 - 17:30DROPS Design answered:
Bonjour Jocelyne, effectivement, après la 1ère augmentation, le motif ne tombera pas juste, tricotez les mailles comme un nouveau motif en largeur, après 4 augmentations, vous aurez augmenté 1 motif complet, après 8 augmentations, vous aurez augmenté 2 motifs complets. Bon tricot!
04.04.2022 - 08:40Emma wrote:
Stämmer det att det på mittpartiet, när man stickar 24maskor, blir det en rand på 4maskor och på andra sidan en rand på 6maskor(kantmaskan inte medräknad).
21.10.2021 - 23:38DROPS Design answered:
Hej Emma. Inte helt säker på att jag förstår vad du menar. Vartannat varv i A1 kommer vara slätstickat och vartannat resårstickat (2 rm/2 am) med 1 kantmaska i rätstickning på varje sida. Mvh DROPS Design
22.10.2021 - 08:25Sølvi Myhre wrote:
Hei jeg skal strikke denne i Merino extra fine Bruker jeg samme pinnenr som til Lima?
24.09.2021 - 10:10DROPS Design answered:
Hej Sølvi. Ja det skulle jag tro, men det kommer an på hur stramt du stickar. Du ska ha den pinne som gör att du får den stickfasthet som uppges i oppskriften. Mvh DROPS Design
24.09.2021 - 10:43Britta wrote:
Jeg er i tvivl om hvor udtagningerne præcis skal laves. I opskriften står der: “Tag ud indenfor de yderste 7 masker mod midt foran”. Er det lige før de 7 sidste masker inden mærketråden i midten af huen? Eller er det på et vilkårligt sted blandt de første og sidste 7 masker i hver side af huen? Eller lige før den 7. Maske?
08.03.2021 - 20:33DROPS Design answered:
Hej Britta, du tager ud mod ansigtet, indenfor de yderste 7 masker :)
11.03.2021 - 09:49
Northern Spirit Kids |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð balaclava / lambhúshetta / húfa fyrir börn úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað í áferðamynstri með kanti í stroffprjóni. Stærð 2 til 12 ára.
DROPS Children 37-28 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um í hvorri hlið við miðju að framan): Aukið út innan við ystu 7 lykkjurnar við miðju að framan. Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, þ.e.a.s. 2 fyrstu lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, næstu 2 lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni, næstu 2 lykkjur í sléttprjóni o.s.frv. ÚRTAKA (á við um mitt aftan á húfu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki mitt að aftan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Miðjueiningin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju framan á höfði og aftur. Lykkjur eru prjónaðar upp hvoru megin við miðjueininguna. Síðan er húfan prjónuð fram og til baka á hringprjóna, áður en lykkjur eru fitjaðar upp fyrir háls mitt að framan. Síðan er afgangur af húfunni prjónaður í hring á hringprjóna til loka máls. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum opið að framan. MIÐJUEINING: Fitjið upp 24-28-32-32 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3,5 með Lima. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi eins) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-11-11-13 cm, fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 22-26-30-30 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá. Prjónið síðan húfuna eins og útskýrt er að neðan. HÚFA: Prjónið nú upp lykkjur hvoru megin við miðjueiningu, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið upp 21-25-25-29 lykkjur meðfram hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-26-30-30 lykkjur á prjóni og prjónið upp 21-25-25-29 lykkjur meðfram annarri hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni = 64-76-80-88 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt að aftan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið mitt að framan – mynstrið á að passa fallega yfir lykkjur í miðjueiningu. Aukið síðan út í hvorri hlið við miðju að framan og fækkið lykkjum mitt að aftan eins og útskýrt er að neðan – lestu kaflann um útaukningu og úrtöku áður en þú prjónar áfram! ÚTAUKNING Í HVORRI HLIÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN: Þegar stykkið mælist 8-8-9-9 cm frá þar sem prjónamerkið var sett í, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum í hvorri hlið. ÚRTAKA MITT AÐ AFTAN: JAFNFRAMT þegar auka á út í 5. skiptið, fækkið um 2 lykkjur mitt að aftan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 4 sinnum (útaukningar og úrtaka endar samtímis). Eftir þessar útaukningar og úrtöku eru 72-84-88-96 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 18-18-19-19 cm frá þar sem prjónamerki var sett, á að fitja upp lykkjur fyrir háls mitt að framan. Mátið e.t.v. húfuna og prjónið að óskaðri lengd. Fitjið upp 12-12-16-16 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 84-96-104-112 lykkjur í umferð. Takið prjónamerkið frá úr stykkinu og setjið 1 prjónamerki í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú háls eins og útskýrt er að neðan. HÁLS: Prjónið nú stykkið í hring á hringprjón. Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur – passið uppá að mynstrið gangi jafnt upp alla leiðina hringinn. Þegar stykkið mælist 5-6-7-8 cm frá prjónamerki undir hálsi, aukið út allar 2 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir allar 2 lykkjur slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð) = 105-120-130-140 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 8-9-10-11 cm frá prjónamerki. Aukið nú allar 2 lykkjur garðaprjón til 3 lykkjur garðaprjón með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir allar 2 lykkjur garðaprjón = 126-144-156-168 lykkjur. Prjónið 1 umferð með 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón (uppslátturinn er prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið 1 umferð brugðið. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 32-34-36-38 cm frá miðju á miðjueiningu og niður. KANTUR Í KRINGUM OP AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst í opi að framan, þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir háls og prjónið upp ca 136-140-148-152 lykkjur í kringum opið að framan innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 3 með Lima. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5-6-6-6 cm – stillið af að stroffið passið fallega yfir lykkjur í miðjueiningu og við háls þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið stroffið inn að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |