Bente Karin skrifaði:
Nydelig, denne må strikkes.👍😀
06.02.2021 - 12:03
Karin Brauns skrifaði:
Der Pulli ist zeitlos schön. Warm aber auch für den Sommer am Abend oder kühlen Tagen
13.01.2021 - 18:17
Julie skrifaði:
Spring snow
11.01.2021 - 04:42
Santos skrifaði:
I am curious to see how this is done.
10.01.2021 - 08:26
Mela skrifaði:
Carmen
10.01.2021 - 01:38
Carola Wijma skrifaði:
Snowdrops
08.01.2021 - 07:02
Inke skrifaði:
Sunlightgrid
07.01.2021 - 23:22
Liesbeth Merckx skrifaði:
Queen's Gambit Sweater
07.01.2021 - 17:32
Liga skrifaði:
"Basket Case " 😅🤣
07.01.2021 - 16:33
Galatea#galateasweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Kid-Silk og 1 þræði DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-3 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚRTAKA-1 (á við ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 6,25. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Byrjun á umferð er á milli vinstri ermi og bakstykkis. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Stykkið er prjónað með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-72-84-84-96-96 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Kid-Silk og 1 þræði BabyAlpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff í 4 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Prjónið síðan þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), A.2 yfir næstu 12-12-18-18-24-24 lykkjur (= 2-2-3-3-4-4 með 6 lykkjum), A.3 (= 3 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón, A.1, A.2, A.3, 2 lykkjur sléttprjón, A.1, A.2 yfir næstu 12-12-18-18-24-24 lykkjur (= 2-2-3-3-4-4 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.3, 2 lykkjur sléttprjón, A.1, A.2, A.3, 1 lykkja sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur, öll útaukning er teiknuð inn í A.1 og A.3. Aukið er út til skiptis í 8 og 16 lykkju í annarri hverri umferð. Í hvert skipti sem A.1 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 2 mynstureiningar fleiri af A.2 á breidd. Aukið út í annarri hverri umferð, alls 18-20-20-22-24-26 sinnum = 288-312-324-348-384-408 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 16-18-19-20-21-24 cm. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en prjónið nú án útaukningar í hlið á A.1 og A.3, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 21-23-26-28-32-35 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, næsta umferð er prjónuð þannig (haldið áfram með mynstur eins og áður): Prjónið 75-81-87-93-105-111 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 69-75-75-81-87-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 75-81-87-93-105-111 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 69-75-75-81-87-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. Klippið þráðinn frá. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-180-192-204-228-240 lykkjur. Haldið áfram með A.2 yfir allar lykkjur, passið uppá að mynstrið passi yfir mynstur frá berustykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25-25-24-24-22-21 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 69-75-75-81-87-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9 lykkjum undir ermi = 78-84-84-90-96-102 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 9 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram með mynstur hringinn eftir A.2, passið uppá að mynstrið passi við mynstur frá berustykki. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkju mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 14-16-16-17-19-20 sinnum = 50-52-52-56-58-62 lykkjur. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, prjónið þær í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-32-31-26-24 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA-2 = 40-42-42-46-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 42-41-37-36-31-29 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #galateasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.