Thu wrote:
Hei Jeg skal strikke ensfarget størrelse 11/12 år, hvor mange nøster beregner dere da?
07.09.2022 - 12:19DROPS Design answered:
Hej Thu, så skal du bruge ca 350 gram :)
07.09.2022 - 15:24Vibeke Skou wrote:
Hej! Jeg har haft strikket Happy Stripes str. 10-12 for et års tid siden, og jeg mener bestemt, den var strikket i dobbelt garn. Husker jeg forkert? Blusen blev væk, så nu skal jeg strikke en ny, men opskriften er ikke i dobbelt garn. Jeg kan se, at voksenstørrelserne er i dobbelt garn.
25.04.2022 - 15:53DROPS Design answered:
Hej Vibeke, det kan være at du strikkede efter Dame i den mindste størrelse ... :)
26.04.2022 - 14:46Minna wrote:
Hei, minulta puuttuu muutama lisäys aivan alussa enkä saa nyt täsmäämään. Olen kohdassa, jossa hihat otetaan apulangoille. Kysymys: tuleeko rajakohta ( jossa ne keskimmäiset 2 silmukkaa, joiden viereen tehtiin aina lisäykset) etu- ja takakappaleille vai hihoihin? Ymmärtäisin, että etu- ja takakappaleelle. Silloin minun silmukat menisivät (suurin koko): takakappale 65, hiha 44;, etukappale 68, hiha 38).
20.11.2021 - 15:56Melanie Bauer wrote:
Hallo, wieviel gramm wolle benötige ich für große 146/152??
22.09.2021 - 21:20DROPS Design answered:
Liebe Frau Bauer, da wir den Pullover mit Streifen gestrickt haben, können wir Ihnen leider nicht die Garnmenge in nur eine Farbe geben - lassen Sie sich mal bei einem ähnlichen Modell mit nur 1 Farbe und selbe Maschenprobe inspirieren oder gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden weiterhelfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!
23.09.2021 - 08:41Frieda wrote:
Wie hoch ist der Gesamtverbrauch bei Größe 146/152 - ich möchte einfarbig, ohne Streifen, stricken.
29.03.2021 - 13:33DROPS Design answered:
Liebe Frieda, da wir den Pullover mit Streifen gestrickt haben, können wir Ihnen leider nicht die Garnmenge in nur eine Farbe geben. Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden weiterhelfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!
06.04.2021 - 08:54Céline wrote:
Bonjour La quantité en une seule couleur est indiquée pour le modèle adulte. Dommage de ne pas l'avoir pour le modèle enfant. Merci quand même de votre réponse
14.12.2020 - 20:47Céline wrote:
Bonjour, comme Etoile, je souhaiterai connaitre le poids total du pull terminé pour pouvoir le faire en une seule couleur. cordialement
12.12.2020 - 22:55DROPS Design answered:
Bonjour Céline, comme expliqué à Étoile, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chaque modèle à chaque demande, vous pouvez vous inspirer d'un modèle uni dans une laine du groupe C. Bon tricot!
14.12.2020 - 08:37Liv Holshagen wrote:
Strikker minste str. Skal begynne på bolen. 106m. Det er for og bakstykkemasker samt 8 m man skal legge opp ekstra (i siden under ermet). Disse 106 m skal altså strikkes videre på rundpinne? Men leser man på ermer, skal 33 m samt 4 ekstra (som allerede er inkl i bolen) strikkes opp. Hvordan gjør man dette i praksis? Jeg står fast.
01.10.2020 - 14:06DROPS Design answered:
Hei Liv. Du har 49 masker (bakstykket)+ 4 nye masker + 49 masker (forstykket) + 4 nye masker = 106 masker til bolen. Erm maskene er satt på en tråd, 33 masker x 2. Når bolen er ferdig strikket og du starter på ermene, strikker du de 33 maskene du har satt på 1 tråd og så strikker du opp 4 nye masker i de 4 nye maskene du la opp på bolen (under ermet). Ta gjerne et titt på videoen: Hvordan strikke en genser ovenfra og ned. Den viser ikke hvordan du strikker opp i de nye maskene på bolen, men hvordan du legger opp nye masker til erme, men kanskje lettere å skjønne teknikken ved å se en video. God Fornøyelse!
05.10.2020 - 10:36Eva wrote:
Ønsker strikke happy stripes genseren i Drops Nepal. Stemmer det at eg skal strikke med dobbelt garn? Det blir vel veeeeeldig tykt?
14.09.2020 - 13:45DROPS Design answered:
Hei Eva. Nei, denne genseren strikkes bare med 1 tråd. Men voksen versjonene (DROPS 202-1) strikkes med dobbelt tråd. mvh DROPS design
14.09.2020 - 14:07
Happy Stripes |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air eða DROPS Nepal eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og laskalínu. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 34-22 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 53 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. RENDUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið A.1 einu sinni, síðan er prjónað A.2 áfram og endurtekið til loka (á við um bæði fram- og bakstykki og ermar). LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um miðju undir ermum): Aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 54-54-58-62-64-68 lykkjur á hringprjón 4,5 með blár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-8-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 60-60-64-68-72-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), setjið 1 prjónamerki eftir 21-21-23-25-25-31 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 9-9-9-9-11-11 nýjar lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir 21-21-23-25-25-31 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 9-9-9-9-11-11 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi). Héðan er nú prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Umferðin byrjar við fyrsta prjónamerki, í skiptingunni á milli ermi og bakstykkis. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 19-19-21-23-23-29 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-7-7-9-9 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 19-19-21-23-23-29 lykkjur slétt (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-7-7-9-9 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fyrstu útaukningu fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram með sléttprjón, rendur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 13-14-15-16-17-17 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem var útskýrð að ofan). Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 164-172-184-196-208-220 lykkjur á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum, án útaukningar, þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Næsta umferð er prjónuð í röndum og sléttprjóni eins og áður, en byrjið umferð 1 lykkju fyrri (á undan 2 lykkjum í sléttprjóni á milli erma og bakstykkis). Prjónið 49-51-55-59-61-67 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 33-35-37-39-43-43 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 49-51-55-59-61-67 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 33-35-37-39-43-43 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 106-110-118-130-134-146 lykkjur í umferð. Setjið stykkið saman og haldið áfram í sléttprjóni og röndum eins og áður. Þegar stykkið mælist 12-14-17-20-23-26 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og blár. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 5,5. Klippið frá og festið enda. ERMI: Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykkinu á hringprjón/sokkaprjóna 5,5 (= 33-35-37-39-43-43 lykkjur). Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 37-39-41-45-49-49 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-6-6 lykkjur og byrjið á umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með rendur alveg eins og á fram- og bakstykki (það er mikilvægt að halda áfram í sömu umferð og á fram- og bakstykki eftir berustykki). Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2-2½-3-4-5-6 cm millibili alls 8-8-8-7-6-6 sinnum = 53-55-57-59-61-61 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 18-22-26-30-34-38 cm frá skiptingu. Skiptið yfir í blár og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1-3-1-3-1-1 lykkju/lykkjur = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar slétt saman út umferðina = 26-26-28-28-30-30 lykkjur. Prjónið stroff með 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 5,5. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina alveg eins. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Maria wrote:
Har lige strikket denne i str. 98/104. Nem opskrift og flot resultat. Tak for en god opskrift.
11.12.2023 - 10:03