Vladimíra Fidrmucová wrote:
Dobrý den, děkuji za vaše krásné stránky o pletení a háčkování. Některé modely ze starších katalogů nejsou přeloženy do českého jazyka . Mohla bych vás poprosit o přeložení tohoto svetru do českého návodu ? Děkuji Vlaďka
23.05.2023 - 15:51DROPS Design answered:
Dobrý den, Vlaďko, díky za zpráci a za tip - český návod přidáme během 1-2 dnů. Hezký den! Hana
23.05.2023 - 18:06Lena wrote:
Varv 9 mönster A 3 I början på varvet Storlek L Den svarta triangeln. Består den av fyra maskor ? Hur görs den ? Finns inte i beskrivningen Lena
22.01.2023 - 16:18DROPS Design answered:
Hei Lena. Nei, det er 2 ikoner og hvert ikon går over 2 masker. mvh DROPS Design
23.01.2023 - 14:22Pia wrote:
På linje 9 er det trekant hvor 3 m blir til 1.da blir det 2 m for lite videre!? Hvordan får jeg de igjen?
15.10.2022 - 16:39DROPS Design answered:
Hei Pia. Nå er det 4 diagrammer der det er en 9. linje. Hvilken tenker du på? Hvilken str./diagram strikker du etter? I disse digrammene minsker det med 2 masker og 3 steder økes det med kast før og etter "trekanten", så da er maskeantallet likt. Vi skal hjelpe deg så godt vi kan, men da er det fint om du skriver hvilken str. du strikker, hvilket diagram og hvor i oppskriften du er. mvh DROPS Design
24.10.2022 - 13:01Samantha wrote:
I\'m very confused about the ribbing. Do we do A1 and then A2 at the other end and then turn it and do A2 and A1? Or do we do A1 and A2 just like before?
15.05.2022 - 18:18DROPS Design answered:
Dear Samantha, you always work A.1 over A.1 and A.2 over A.2. So, when you turn, you will do A.2 and at the end of the row A.1. Happy knitting!
15.05.2022 - 23:04Nicky wrote:
In the diagram explanation the large triangle states to pass 1 stitch as if to knit then knit two together - this is 3 stitches. However in the pattern chart, the triangle is over 4 stitches.
16.02.2022 - 07:15DROPS Design answered:
Dear Nicky, when you see a large triangle over 4 sts, this should be divided into 2 symbols: 8th symbol first = place 1 stitch on cable needle in front of piece, purl 1, knit 1 from cable needle then 7th symbol: place 1 stitch on cable needle behind piece, knit 1, purl 1 from cable needle. Happy knitting!
16.02.2022 - 11:23Lilit Cornen wrote:
Bonjour,\r\nPouvez vous m\'expliquer comment tricoter le grand triangle ? Merci d\'avance
03.01.2022 - 23:02DROPS Design answered:
Bonjour Mme Cornen, suivez attentivement les diagrammes, les motifs au sein de ces mêmes diagrammes ne se répètent pas sur le même nombre de rangs, mais répétez simplement ces rangs. par ex. A.3 en S-M-L: les 10 premières mailles se tricotent sur 10 rangs, les 7 mailles suivantes sur 6 rangs (= 5 rangs entre chaque torsade), les 9 rangs du triangle ajouré sur 8 rangs et les 9 dernières mailles sur 4 rangs. Bon tricot!
04.01.2022 - 07:45Nicky wrote:
Can you tell me What size cable needle is needed
02.01.2022 - 18:57DROPS Design answered:
Dear Nicky, it is always good to use the same size cable needle as the needle you are using to knit your pattern, or maybe a bit thinner needle woul make it easier to oprate (at the same time, it might fall out of the stitches more easily). Happy Knitting!
03.01.2022 - 02:08Lotta Wiflof wrote:
Hej, när sjalkragen är färdigökad står det att den ska vara 17 maskor i strl L. Men i slutet på höger framstycke står det att sjalkragen är 29 maskor. Hur går detta till om inga fler maskor ska ökas?
29.05.2021 - 21:21DROPS Design answered:
Hej Lotta, de sista m tar du från halsmaskorna, så du har 29m på stickan som du stickar enlig beskrivningen :)
02.06.2021 - 11:45Anja Vanhuylebrouck wrote:
Telpatroon de driehoek over 4 vakjes staat niet in de lijst met uitleg hoe je die brei Mijn vraag is hoe brei ik die Vriendelijke groeten anja
08.03.2021 - 06:44DROPS Design answered:
Dag Anja,
Dat is niet 1 symbool maar twee symbolen naast elkaar, namelijk het 7e en 8e symbool in de lijst.
09.03.2021 - 11:48
Marigold Sunshine |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað með köðlum, gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-4 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3 og A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH: A.3 og A.4 sýna 1 mynsturteikningu á hæðina, en mynsturteikningin nær yfir mismunandi fjölda umferða á hæðina þar sem hver kaðall/gataumferð nær yfir mismunandi fjölda umferða á hæðina. Minnsti kaðall með gataumferðum í A.3 og A.4 breytist á milli 3 og 2 lykkja. Lykkjufjöldinn í uppskrift getur þess vegna verð með frávik um 1 lykkju eftir því hvar í kaðli þú ert. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 252 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þessum 238 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 9,2. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. Fækkið ekki lykkjum yfir kanta að framan. ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir handveg innan við 6 ystu lykkjurnar að handvegi eins og útskýrt er að neðan. Fækkið lykkjum á eftir 6 ystu lykkjurnar við handveg þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 5 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 6 ystu lykkjum við handveg þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 5 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni/áferðamynstri. ÚTAUKNING-2 (á við um sjalkraga): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir kraga innan við ystu lykkju að miðju að framan (þ.e.a.s. innan við lykkju sem er steypt af). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = Byrjið frá réttu og prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat). Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 2, 9, 15, 22 og 28 cm M: 2, 9, 16, 23 og 29 cm L: 2, 9, 16, 23 og 30 cm XL: 2, 8, 14, 20, 26 og 31 cm XXL: 2, 8, 14, 20, 26 og 32 cm XXXL: 2, 9, 15, 21, 27 og 33 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg. Prjónið síðan bakstykki og framstykki til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 252-276-296-328-364-396 lykkjur (meðtaldar 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 7 fyrstu lykkjurnar (= kantur að framan), * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með A.2 yfir 7 lykkjur sem eftir eru (= kantur að framan). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í A.1/A.2) – JAFNFRAMT er fækkað um 26-30-34-36-40-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 226-246-262-292-324-352 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki 64-69-73-82-90-97 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 98-108-116-128-144-158 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Sjá MYNSTUR og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í A.1, prjónið A.3 (= 35-35-35-42-42-42 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til 42-42-42-49-49-49 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.4 (= 35-35-35-42-42-42 lykkjur) og endið með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið síðan út í hliðum, aukið út fyrir sjalkraga og fellið af fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan (útaukning fyrir sjalkraga og úrtaka fyrir handveg kemur í einhverjum stærðum að gerast á sama stað): ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 10 cm í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 7-7-7-8-8-8 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið (= alls 16 lykkjur fleiri). SJALKRAGI: Þegar stykkið mælist ca 29-30-31-32-33-34 cm (á að prjóna nokkrar umferðir eftir síðasta hnappagati), aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan fyrir sjalkraga – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið út fyrir sjalkraga í annarri hverri umferð þannig (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 8-8-10-10-12-12 sinnum (þ.e.a.s. eftir síðustu útaukningu fyrir kraga eru 15-15-17-17-19-19 lykkjur í kanti að framan/sjalkraga). HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá röngu þannig: Prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-5-7-9-11-13 lykkjur á undan fyrsta prjónamerki, fellið af 6-10-14-18-22-26 lykkjur fyrir handvegi, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-5-7-9-11-13 lykkjur á undan næsta prjónamerki, fellið af 6-10-14-18-22-26 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður út umferðina. Prjónið síðan framstykkin og bakstykkið til loka hvert fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Haldið áfram fram og til baka eins og áður með A.1 yfir kanti að framan/sjalkraga, A.3 (= 35-35-35-42-42-42 lykkjur) og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir handveg svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 6-7-8-11-15-17 sinnum. Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 67-69-72-76-80-83 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm, prjónið 1 umferð frá réttu eins og áður – JAFNFRAMT í þessari umferð er fækkað um 8-8-8-11-11-11 lykkjur jafnt yfir 35-35-35-42-42-42 lykkjur í A.3 = 59-61-64-65-69-72 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 26-26-29-29-32-32 lykkjur slétt (= sjalkragi) og fellið af 33-35-35-36-37-40 lykkjur sem eftir eru á öxl. Klippið frá. Prjónið síðan HÆGRI KRAGI eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI KRAGI: Haldið eftir 26-26-29-29-32-32 lykkjum á hringprjón 3. Það á að prjóna kragann í garðaprjóni með stuttum umferðum út að hálsi. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka þannig: * prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar 26-26-29-29-32-32 lykkjurnar, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfri fyrstu 20-20-23-23-26-26 lykkjur *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7-7-8-8 cm lengst inn þar sem stykkið er styst (kraginn mælist ca 14-14-14-14-16-16 cm lengst út þar sem stykkið er breiðast). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu: VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Haldið áfram fram og til baka eins og áður í sléttprjóni, A.4 (= 35-35-35-42-42-42 lykkjur) og A.2 yfir kant að framan/sjalkraga. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir handveg svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 6-7-8-11-15-17 sinnum. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 67-69-72-76-80-83 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm, prjónið 1 umferð frá réttu eins og áður – JAFNFRAMT í þessari umferð er fækkað um 8-8-8-11-11-11 lykkjur jafnt yfir 35-35-35-42-42-42 lykkjur í A.3 = 59-61-64-65-69-72 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 33-35-35-36-37-40 lykkjur fyrir öxl og prjónið sléttar lykkjur yfir 26-26-29-29-32-32 lykkjur sem eftir eru (= sjalkragi). Prjónið síðan VINSTRI KRAGI eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI KRAGI: = 26-26-29-29-32-32 lykkjur. Byrjið frá röng og prjónið garðaprjón fram og til baka þannig: * prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar 26-26-29-29-32-32 lykkjur, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfri fyrstu 20-20-23-23-26-26 lykkjur *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7-7-8-8 cm lengst inn þar sem stykkið er styst (kraginn mælist ca 14-14-14-14-16-16 cm lengst út þar sem stykkið er breiðast). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu: BAKSTYKKI: = 100-106-110-118-130-140 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir handveg svona í annarri hverri umferð alls 6-7-8-11-15-17 sinnum = 88-92-94-96-100-106 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið nú af miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 33-35-35-36-37-40 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Fitjið upp 64-72-72-76-76-80 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-12-14-12-12 lykkjur jafnt yfir = 56-58-60-62-64-68 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það aðeins síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 9-9-9-9-10-10 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 3½-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 11-13-15-18-21-22 sinnum = 78-84-90-98-106-112 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-46-46-45-44-43 cm (nú eru eftir 9-10-11-12-13-14 cm fyrir ermakúpu að loka máli, prjónið e.t.v. að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur, prjónið sléttprjón út umferðina = 72-78-84-92-100-106 lykkjur eftir. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er fellt af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 5-7-9-9-11-12 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist ca 55-55-56-56-56-56 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 56-56-57-57-57-57 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaum innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið kragann saman við miðju að aftan (passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður). Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka með sauminn inn að röngu. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Pia wrote:
På linje 9 er det trekant hvor 3 m blir til 1. Da blir det jo 2 masker for lite videre!? Hvordan får jeg de igjen?
15.10.2022 - 16:36