DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Golden Puffs

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað í sléttprjóni og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-17
DROPS Design: Mynstur bm-071
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
450-450-500-550-600-700 g litur 45, sítróna

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
26 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með áferðamynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 232 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 44) = 5,3.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni/áferðamynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 232-260-288-312-352-384 lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 44-52-56-60-68-76 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 188-208-232-252-284-308 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 94-104-116-126-142-154 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING = 192-212-236-256-288-312 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 18 cm í öllum stærðum, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-20-20-24-24-32 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út um 8-10-10-12-12-16 lykkjur á framstykki og 8-10-10-12-12-16 lykkjur á bakstykki) = 208-232-256-280-312-344 lykkjur.
Prjónið síðan A.1 hringinn.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – munið eftir ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Þessar 4 lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni fram að næstu útaukningu í hvorri hlið.
Endurtakið útaukningu í hvorri hlið þegar stykkið mælist 30 cm = 216-240-264-288-320-352 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur sitt hvoru megin við prjónamerki brugðið. Haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður.
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 102-114-126-138-154-170 lykkjur, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 102-114-126-138-154-170 lykkjur og fellið af síðustu 3 lykkjur fyrir handveg. Klippið frá. Framstykki og bakstykki er síðan prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 102-114-126-138-154-170 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið, fellið af 2 lykkjur 0-0-2-3-5-7 sinnum í hvorri hlið og fellið af 1 lykkju 1-2-4-6-10-12 sinnum í hvorri hlið = 100-104-104-108-108-112 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 40-44-44-48-48-52 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 28 lykkjur eftir á öxl í öllum stærðum.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
= 102-114-126-138-154-170 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið, fellið af 2 lykkjur 0-0-2-3-5-7 sinnum í hvorri hlið og fellið af 1 lykkju 1-2-4-6-10-12 sinnum í hvorri hlið = 100-104-104-108-108-112 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður.
Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, setjið miðju 26-30-30-34-34-38 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráð. Hvor öxl er síðan prjónuð hvor fyrir sig.
Haldið áfram með mynstur og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og síðan 1 lykkju 3 sinnum = 28 lykkjur eftir á öxl í öllum stærðum.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir í stuttan hringprjón eftir þörf.
Fitjið upp 64-68-72-76-80-84 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með BabyMerino.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-16-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 50-52-56-58-60-62 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það aðeins síðar þegar auka á út mitt undir ermi.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 11-9-11-9-11-9 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 15-17-18-20-23-25 sinnum = 80-86-92-98-106-112 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 50-50-49-48-47-46 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur (= mitt undir ermi) og prjónið sléttprjón út umferðina.
Nú er prjónuð ermakúpa fram og til baka á hringprjón 3 þannig:
Haldið áfram í sléttprjóni og fellið JAFNFRAMT af lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-0-0 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-4-5-5-5-5 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 2-2-3-5-8-11 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist ca 56-56-57-57-58-59 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 57-57-58-58-59-60 cm ofan frá og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaum innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 108 til 134 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 128-136-136-148-148-160 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4).
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3 til 3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.11.2019
FRAM- OG BAKSTYKKI:..Endurtakið útaukningu í hvorri hlið þegar stykkið mælist 30 cm = 216-240-264-288-320-352 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur sitt hvoru megin við prjónamerki brugðið.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Golden Puffs

@ena_teje, Spain

Golden Puffs

Małgorzata, Poland

Golden Puffs

Ola, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Patricia Arnault wrote:

Bonjour , j'aimerai remplacer le point texturé par le point "rayon de miel". Aurais je assez de laine .?(600g pour XL) merci

05.12.2023 - 13:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Arnault, tricotez un échantillon des deux points pour vérifier également les mesures, car il vous faudra davantage de mailles en point rayons de miel que pour le point texturé, et par conséquent, il vous faudra probablement plus de laine; tricotez votre échantillon et quand vous avez les bonnes mesures, défaites-le pour mesurer la longueur de fil utilisé en comparaison avec celui du point texturé (qui demande déjà plus de mailles que le jersey, car on doit augmenter). N'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS, on pourra vous aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

05.12.2023 - 16:11

country flag Ulla wrote:

Jeg har lige strikket en str. L og alle mål er overholdt og passer og jeg brugte 8,25 nøgle baby merino fra drops.

20.03.2023 - 09:20

country flag Lieve wrote:

Kan ik deze trui met Drops Lima breien? bij voorbaat hartelijk dank

11.12.2022 - 18:59

DROPS Design answered:

Dag Lieve,

Lima valt in garengroep B, dus dat is een dikker garen waardoor je een andere stekenverhouding krijgt. De dunnere variant van Lima is DROPS Flora. Dit garen heeft dezelfde samenstelling en is goed te gebruiken voor dit patroon.

12.12.2022 - 20:48

country flag Lis Skov wrote:

Hej vil bare lige høre hvorfor ærmets længe er længst ved størrelse s og kortes ved størrelse xxxl, for mig er det ikke logisk.

27.10.2022 - 09:39

DROPS Design answered:

Hej Lis, 7) Hvorfor er ærmerne kortere i de større størrelser? Den totale bredde fra (håndled til håndled) vil være længere i de større størrelser, også selvom selve ærmet er kortere. De større størrelser har længere ærmekuppel samt bredere skuldervidde. Dette resulterer i en god pasform i alle størrelser.

27.10.2022 - 09:47

country flag Anja Pedersen wrote:

Hej. Er det muligt at strikke denne uden det nederste stykke glatstrik, så strukturmønsteret starter lige efter ribkanten? Mvh Anja

25.09.2022 - 13:36

DROPS Design answered:

Hei Anja. Det kan du fint gjøre, bare sjekk at maskeantallet passer med diagrammet i den str. du skal strikke og husk økningene (de økte maskene strikkes fortløpende inn i mønstret, men det vil ikke stemme 100% før man har økt nok masker til at mønstret går opp. mvh DROPS Design

26.09.2022 - 11:52

country flag Joy Bieber wrote:

Hejsa . Lukket masker af bagstykke , str L skal ende på 104 masker ? ! Men uanset hvordan , så ender jeg på 112 . Også når jeg regner det ud giver det også det . Hvad er der galt . Pfh tak Alt andet mht maske tal passer .

02.08.2022 - 08:56

DROPS Design answered:

Hej Joy, du har 126 masker, lukker først 3 masker af, så 2 masker 2 gange=4 og sidst 1maske 4 gange =4 totalt 11 masker i hver side. 126 - 11 - 11 = 104 masker :)

05.08.2022 - 09:05

country flag Sandra wrote:

Hi there....I don't understand the increases at the side. I have just increased 4 stitches at 20cm and if I knit these stitches then the pattern becomes 4 knitted stitches at the side (instead of 2) and to keep the pattern I then need to purl 4 stitches after the 3 knitted rows. This couldn't be right could it? Not sure what will happen when I reach 30cm!

07.10.2021 - 21:22

DROPS Design answered:

Dear Sandra, you knit the increased stitches as you would knit the next stitch in the pattern. Because of the increases in some rows you will NOT have enough stitches for a full repeat. Happy Stitching!

08.10.2021 - 01:35

country flag Cynthia Ward wrote:

I don't understand how ours line up if I follow the instructions and chart, especially after adding stitches. I'm where it says "repeat this increase when the piece measures 30 cm = 11 3/4” = 216-240-264-288-320-352 stitches on the needle, purl the 2 stitches with the marking thread between them. Continue the pattern as before. My piece measures this at the 3 knitted rows. It doesn't respect the chart if I add purls here???? 30 years knitting and this pattern lacks vital info.

07.05.2021 - 22:27

DROPS Design answered:

Dear Cynthia, the stitches increased on the sides will be knitted with sticting stitch, until the increas at 30 cm, then you will purl 1 stitch before and 1 stitch after the marker. These stitches are not incorporated in the pattern, but knitted on two sides of the stitches knitted with the pattern. Happy Knitting!

07.05.2021 - 23:02

country flag Hanne Petterson wrote:

Er det sømandsbobler i denne opskrift, eller? Kan ikke forstå hvordan diagrammet skal blive til boblerne.

22.03.2021 - 09:48

DROPS Design answered:

Hei Hanna. Ingen sømandsbobler, men strukturmønster strikket etter diagram A.1, som gir et lite boblete utseende. mvh DROPS design

22.03.2021 - 14:06

country flag Michelle Westcott wrote:

Hi, can you please explain putting stitches into a thread and working these first so as not to cut the strand. Many thanks

16.03.2021 - 22:35

DROPS Design answered:

Dear Michelle, it means, that forst, you knit the stitches, then, put the stitches already knitted on a stitchholder or a piece of yarn. This way, you will not have to cut the yarn, but can countinue to knit with it for the rest of the row. Happy Knitting!

17.03.2021 - 01:31