DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Harvest Gold

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað með v-hálsmáli og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-7
DROPS Design: Mynstur sk-050
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 16, sítróna

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 240 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 40) = 6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

V-HÁLSMÁL:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir A.2 þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan A.3 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 240-260-285-310-335-365 lykkjur á hringprjón 3 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 40-44-49-54-55-61 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 200-216-236-256-280-304 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki (= 100-108-118-128-140-152 lykkjur á framstykki og bakstykki). Byrjið umferð við annað prjónamerkið (= í hlið). Prjónið nú sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Þegar stykkið mælist 6-7-8-6-7-8 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 7-7-7-8-8-8 cm millibili alls 4 sinnum = 184-200-220-240-264-288 lykkjur (= 92-100-110-120-132-144 lykkjur á milli 2 prjónamerkja fyrir framstykki og bakstykki). Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm er mynstur A.1 prjónað yfir miðju 22 lykkjur á framstykki. Lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður (= 35-39-44-49-55-61 lykkjur í sléttprjóni hvoru megin við A.1 á framstykki). Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm fellið af 2-3-4-5-7-9 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið (= 4-6-8-10-14-18 lykkjur hafa verið felldar af fyrir handveg í hvorri hlið). Nú eru 88-94-102-110-118-126 lykkjur á bakstykki. Hversu margar lykkjur eru eftir á framstykki kemur til með að fara eftir prjónfestunni og hversu margar umferðir í mynstri A.1 hafa verið prjónaðar á hæðina. Prjónið síðan fram- og bakstykki fram og til baka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka með mynstri A.1, sléttprjóni og prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi og v-hálsmáli þannig:

Handvegur:
Fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-0-1-2-3-5 sinnum og 1 lykkja 3-4-5-6-7-6 sinnum (= alls 5-7-11-15-20-25 lykkjur felldar af í hvorri hlið meðtaldar fyrstu 2-3-4-5-7-9 lykkjurnar sem felldar voru af hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið).

V-hálsmál:
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina skiptist framstykkið fyrir miðju fyrir hægri og vinstri öxl. Nú eiga að vera jafn margar lykkjur fyrir hægri og vinstri öxl og stykkið er skipt mitt í mynsturteikningu A.1. Setjið lykkjur fyrir vinstri öxl á þráð og prjónið hægri öxl þannig:

Hægri öxl:
Byrjið frá réttu og prjónið mynstur frá v-hálsmáli þannig: A.2 yfir fyrstu 12 lykkjur, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona fram og til baka (affelling fyrir handveg heldur áfram ef henni er ekki lokið) og í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 8-7-7-6-6-5 sinnum og í 4. hverri umferð 5-6-7-8-9-10 sinnum (alls 13-13-14-14-15-15 lykkjur færri) = 33-35-35-36-36-36 lykkjur. Prjónið síðan með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm (handvegurinn mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm). Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 12 lykkjur (= kantur í hálsi), prjónið sléttar lykkjur yfir þær 21-23-23-24-24-24 lykkur sem eftir eru og fækkið jafnframt um 5-5-5-5-5-4 lykkjur jafnt yfir = 16-18-18-19-19-20 lykkjur + 12 lykkjur fyrir kant í hálsi! Snúið og fellið af 16-18-18-19-19-20 lykkjur fyrir öxl. Prjónið nú fram og til baka yfir 12 lykkjur (= kantur í hálsmáli) þannig:
Prjónið A.2 fram og til baka yfir 12 lykkjur. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl, prjónið stuttar umferðir í mynstri eins og áður með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og prjónið yfir fyrstu 8 lykkjur, snúið og prjónið til baka, snúið og prjónið yfir fyrstu 3 lykkjur, snúið og prjónið til baka, prjónið yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* 2 sinnum (þetta er gert til að kanturinn í hálsmáli falli betur í hnakka – hliðin sem er lengst frá hnakka verður aðeins lengri en hlið sem er næst hnakka).
Haldið síðan áfram með A.2 þar til kantur í hálsmáli mælist ca 14-14-15-15-15-15 cm meðfram lengri hlið frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Vinstri öxl:
Byrjið frá réttu og prjónið mynstur frá handveg þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón þar til 12 lykkjur eru eftir á prjóni, A.3 yfir síðustu 12 lykkjur (= að v-hálsmáli).

Haldið svona áfram fram og til baka, jafnframt heldur úrtaka áfram fyrir handvegi og í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 8-7-7-6-6-5 sinnum og í 4. hverri umferð 5-6-7-8-9-10 sinnum (alls 13-13-14-14-15-15 lykkjur færri) = 33-35-35-36-36-36 lykkjur. Prjónið síðan með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm (handvegurinn mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm). Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 21-23-23-24-24-24 lykkjur og fækkið jafnframt um 5-5-5-5-5-4 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðan A.3 yfir þær 12 lykkjur sem eftir eru (= kantur í hálsmáli) = 16-18-18-19-19-20 lykkjur + 12 lykkjur í A.3. Snúið og prjónið yfir fyrstu 12 lykkjur, fellið síðan af 16-18-18-19-19-20 lykkjur fyrir öxl. Klippið frá. Byrjið frá réttu og prjónið A.3 fram og til baka yfir 12 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl, prjónið stuttar umferðir í mynstri eins og áður með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og prjónið yfir fyrstu 8 lykkjur, snúið og prjónið til baka, snúið og prjónið yfir fyrstu 3 lykkjur, snúið og prjónið til baka, prjónið yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* 2 sinnum (þetta er gert til að kanturinn í hálsi falli betur í hnakka – hliðin sem er lengst frá hnakka verður aðeins lengri en hlið sem er næst hnakka).
Haldið síðan áfram með A.3 þar til kantur í hálsmáli mælist ca 14-14-15-15-15-15 cm meðfram lengri hlið frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

BAKSTYKKI:
Nú eru 88-94-102-110-118-126 lykkjur á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir handveg alveg eins og á framstykki (= alls 5-7-11-15-20-25 lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið) = 82-86-88-90-92-94 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm fellið af miðju 42-42-44-44-46-46 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 16-18-18-19-19-20 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm (handvegurinn mælist 19-20-21-22-23-24 cm). Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 50-55-55-60-60-65 lykkjur á sokkaprjón 3 með Sky.
Prjónið 1 umferð slétt síðan er prjónað stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-11-9-12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 43-44-46-48-50-53 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Jafnframt þegar stykkið mælist 11-11-12-11-11-9 cm frá uppfitjunarkanti er aukið út um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í 7-6-5-5-4-4. hverri umferð alls 14-16-18-19-21-22 sinnum = 71-76-82-86-92-97 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 48-48-47-46-44-42 cm. Fellið af miðju 4-6-8-10-14-14 lykkjur undir ermi fyrir handveg (= 2-3-4-5-7-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið síðan stykkið fram og til baka með sléttprjóni, JAFNFRAMT í byrjun á hverri umferð er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 2 lykkjur 4-4-3-3-2-2 sinnum, 1 lykkju 0-0-5-7-12-16 sinnum, 2 lykkjur 4-4-3-2-2-1 sinni og 3 lykkjur 2-2-2-2-1-1 sinni = 23-26-28-30-32-33 lykkjur til baka. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist alls 55-55-56-56-57-57 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið báða kantana í hálsi saman innan við affellingarkantinn. Saumið síðan kant í hálsi við hnakka aftan á bakstykkið. Saumið innan við 1 kantlykkju garðaprjón í kant í hálsmáli og innan við affellingarkant á bakstykki. Saumið ermar við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjóninn framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið frá kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 4 lykkjur slétt frá kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = prjónið 2 lykkjur brugðið saman
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Mireille wrote:

Bonjour, J'arrive aux diminutions des emmanchures des manches. Avant de rabattre les mailles, est indiqué le nombre de mailles restantes après les diminutions : pour la taille S, ce serait 23. Or, quand je fais les calculs, je ne tombe pas sur le même nombre de m restantes : 4 fois 2 mailles -> 8m, 0fois 1 maille -> 0, 4 fois 2m -> 8, 2fois 3m -> 6m, soit 22m, soit 71-22=49m. Comment arriver à 23m ? Merci à vous. M

04.04.2024 - 12:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mireille, vous commencez avec 71 mailles, vous rabattez 4 m au milieu sous la manche = 67 mailles, puis vous rabattez 4 x 2 m de chaque côté (donc 8 m de chaque côté x 2 côtés = 16 ), il reste 67-16=51 mailles, puis vous rabattez encore 4 x 2 mailles de chaque côté x 2 côtés = 16 mailles, il reste 51-16=35 mailles, puis vous rabattez 2 x 3 mailles de chaque côté x 2 côtés = 12 mailles au total, il reste: 35-12= 23 mailles. Bon tricot!

04.04.2024 - 12:58

country flag Mireille wrote:

Bonjour, J'arrive aux diminutions des emmanchures des manches. Avant de rabattre les mailles, est indiqué le nombre de mailles restantes après les diminutions : pour la ta. Or, quand je fais les calculs, je ne tombe pas sur le même nombre de m restantes : 4 fois 2 mailles -> 8m, 0fois 1 maille -> 0, 4 fois 2m -> 8, 2fois 3m -> 6m, soit 22m, soit 71-22=49m. Comment arriver à 23m ? Merci à vous. M

04.04.2024 - 12:28

country flag Mireille wrote:

Merci à vous pour toutes les réponses et les prises en compte des remarques ! Belle journée.

04.04.2024 - 12:21

country flag Mireille wrote:

Bonjour, il semble qu'il manque un mot dans la partie "On doit avoir le même nombre de mailles pour chaque épaule et l'ouvrage doit être divisé au de A.1. ", en fin de phrase, entre "au" et "de A.1". J'en ai déduis que c'est le mot "milieu" entre les 2 . Est-ce cela ? Si oui, peut-être faire une modification pour éviter toute ambiguïté, même si c'est évident... Belle journée.

01.04.2024 - 15:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mireille, et merci, effectivement, il fallait lire "au milieu de", correction faite, merci encore. Bonne continuation!

02.04.2024 - 15:27

country flag Mireille wrote:

Bonjour, Est indiqué pour les manches de prendre les aiguilles doubles pointes 3,5. Or, dans le récapitulatif du matériel nécessaire du début de la fiche, seules les aiguilles doubles pointes 3 sont indiquées. Ne serait-ce pas une erreur pour les manches (prendre finalement les aiguilles en 3), sachant que ce sont les aiguilles 3 qui sont utilisées pour le base des dos&devant ? Merci à vous.

01.04.2024 - 15:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mireille, effectivement, on doit tricoter les manches avec les aiguilles 3, correction faite, merci pour votre retour. Bon tricot!

02.04.2024 - 15:25

country flag Sylvie wrote:

Le nombre de mailles pour les manches est de 50 pour un small. J’ai tricote les côtes et les diminutions et je l’ai essayé . Il semble qu’il y ait au moins 10 mailles de trop pour faire un bas de manche comme sur l’image du modèle . Que le conseillez-vous ?

09.05.2023 - 23:10

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, rappelez-vous qu'il faut davantage de mailles en côtes avec des aiguilles 3,5 qu'en jersey avec des aiguilles 4; le bas de la manche va faire environ 20 cm; si vous avez un poignet plus fin et souhaitez une manche plus fine, il vous faudra adapter le nombre de mailles en conséquence. Bon tricot!

10.05.2023 - 08:22

country flag Sylvie wrote:

Je fais la fin de l’épaule et je ne comprends pas pourquoi on rabat pour continuer A2 pendant 2 cm et ensuite comment faire les rangs raccourcis . Merci

03.05.2023 - 18:06

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, les mailles de A.2 d'un côté et de A.3 de l'autre côté du devant vont former la bordure d'encolure cousue le long de l'encolure dos. Les rangs raccourcis permettent de former un joli arrondi (le côté extérieur est plus long que le côté intérieur qui sera cousu le long de l'encolure dos). Dans cette vidéo, nous montrons comment faire ce type d'encolure (au point mousse, et sans rangs raccourcis); elle vous aidera sans doute à visualiser la technique. Bon tricot!

04.05.2023 - 07:56

country flag Lena wrote:

Håller på med V-ringningen och höger axel. Alla minskningar ska ske från rätan, minska 7ggr vartannat varv står det. Menas då vartannat rätavarv?

02.03.2022 - 11:11

DROPS Design answered:

Hej Lena. Nej, vi menar vartannat varv (inte vartannat rät varv). Mvh DROPS Design

02.03.2022 - 11:44

country flag Katherine McCamy wrote:

Sleeve decrease for cap. Start w 86, minus 10, minus 6, minus 7, minus 4, minus 6 equals 53. Patterns wants 30. Should pattern read decrease each end, not at beginning of each row?

31.12.2021 - 22:08

DROPS Design answered:

Dear Katherine, the pattern asks to decrease at the beginning of each row, shich means both sides of the sleeves. I hope this helps, Happy Stitching.

03.01.2022 - 01:52

country flag Bente Saksgård wrote:

Hvor er diagrammene?

25.09.2021 - 23:32

DROPS Design answered:

Hej Bente. De finns längst ner på opskriften, over måleskitsen. Mvh DROPS Design

27.09.2021 - 08:31