DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Silver Birch

Prjónað eyrnaband með kaðli og hálsskjól úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk eða DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í stroffprjóni og sléttprjóni.

DROPS 226-56
DROPS Design: Mynstur z-946
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M – M/L – L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 - 58/60 cm

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-150-150 g litur 9020, ljós perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-75-75 g litur 38, krít

Eða notið:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100 g litur 03, ljós grár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 38, krít

EYRNABAND:

STÆRÐ:
S/M – M/L – L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 - 58/60 cm
Hæð: 12 - 13 - 14 cm.

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 9020, ljós perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25-25-25 g litur 38, krít

Eða notið:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 03, ljós grár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25-25-25 g litur 38, krít

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
S/M – M/L – L/XL
Axlabreidd: ca 30-32-34 cm.
Hæð án kants í hálsmáli: ca 24-26-28 cm.

DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100 g litur 9020, ljós perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 38, krít

Eða notið:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100 g litur 03, ljós grár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 38, krít

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm fyrir kant í hálsmáli.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hvoru prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR (á við um eyrnaband):
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning A.1 til A.5 er notuð við frágang á eyrnabandi.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna eins og hólkur. Endarnir eru síðan saumaðir saman þannig að það myndast kaðall fyrir miðju framann á eyrnabandinu.

EYRNABAND:
Fitjið upp 40-44-48 lykkjur á sokkaprjóna 5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Eða 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið hringinn þannig: Prjónið 12-14-16 lykkjur sléttprjón, prjónið mynsturteikningu A.6 (= 15 lykkjur) og prjónið 13-15-17 lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist ca 49-51-53 cm, eða að óskaðri lengd – eyrnabandi á að sitja aðeins þétt. Fellið af með sléttum lykkjum.

FRÁGANGUR:
Stykkið er nú hólkur með opi í hvorum enda, leggið hólkinn flatan – passið uppá að hólkurinn sé ekki snúinn. Nú á að loka opum í endum með saumi í hvorri hlið, saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur – sjá strikaðar línur í mynsturteikningu A.1.
Stykkið er núna flatur rétthyrningur, brjótið rétthyrninginn á lengdina þannig að hann liggi tvöfaldur – sjá mynsturteikningu A.2.
Nú á að leggja löngu hliðarnar á eyrnabandinu inn í hvora aðra í lögum án þess að snúa stykkinu – sjá mynsturteikningu A.3. Endarnir á eyrnabandinu liggja nú til skiptis innan í og utan á hvorum öðrum og endarnir liggja kant í kant – sjá mynsturteikningu A.4.
Nú á að sauma í gegnum öll lögin þannig:
Saumið meðfram strikuðu línunni í mynsturteikningu A.5 (þ.e.a.s. yfir endana á stykkinu), saumið með þéttu spori með 1 spori í hverja lykkju – það er mikilvægt að sauma í gegnum öll lögin þannig að saumurinn sjáist ekki þegar stykkinu er snúið við.
Klippið þráðinn frá og festið. Snúið stykkinu þannig að saumurinn sé að innanverðu á eyrnabandinu.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Stykkið byrja neðst niðri á framstykki. Lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig yfir axlir.
Síðan eru lykkjur auknar út við hálsmál áður en axlalykkjur eru settar saman og bakstykkið er prjónað áfram. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónað er stroff.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 44-48-52 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið og næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Prjónið síðan með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 4 cm og næsta umferð er frá réttu.

Prjónið eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 26-30-34 lykkjur, prjónið eins og áður yfir síðustu 9 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út frá réttu þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 10 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður út umferðina.
Í næstu umferð er prjónað eins og áður, en uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið.
Endurtakið útaukningu með ca 2½ cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 4-4-5 sinnum í hvorri hlið = 52-56-62 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 17-18-19 cm, nú á að taka lykkjur frá fyrir hálsmáli og í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig:
Prjónið yfir fyrstu 21-22-24 lykkjur eins og áður og setjið þær síðan á þráð fyrir vinstri öxl, fellið af næstu 10-12-14 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið út umferðina. Axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
= 21-22-24 lykkjur. Byrjið frá röngu og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 15-16-18 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-26-28 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið eitt prjónamerki í stykkið til að mæla frá (= mitt ofan á öxl).
Prjónið þar til stykkið mælist 3-4-5 cm frá prjónamerki á öxl og næst aumferð er frá röngu, nú eru fitjaðar upp lykkjur við hálsmál í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum og 2 lykkjur 2 sinnum = 21-22-24 lykkjur. Stykkið mælist 7-8-9 cm frá prjónamerki á öxl. Klippið þráðinn og setjið lykkjurnar á nýjan þráð / hjálparprjón, nú er vinstri öxl prjónuð.

VINSTRI ÖXL:
Setjið til baka fyrstu 21-22-24 lykkjur af þræði á prjóninn. Byrjið frá réttu og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 15-16-18 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 24-26-28 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið eitt prjónamerki í stykkið til að mæla frá (= mitt ofan á öxl).
Prjónið þar til stykkið mælist 3-4-5 cm frá prjónamerki á öxl og næst aumferð er frá réttu, nú eru fitjaðar upp lykkjur við hálsmál í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum og 2 lykkjur 2 sinnum og fitjið upp 10-12-14 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 31-34-38 lykkjur. Stykkið mælist ca 7-8-9 cm frá prjónamerki á öxl.
Nú er vinstri og hægri öxl sett saman og bakstykkið er prjónað áfram héðan. Setjið til baka lykkjur frá hægri öxl á prjón 5 og prjónið yfir þessar lykkjur frá réttu = 52-56-62 lykkjur.

BAKSTYKKI:
Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri eins og áður, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10½-12-12 cm frá prjónamerki á öxl og fækkið lykkjum innan við ystu 10 lykkjur í hvorri hlið frá réttu þannig:
Prjónið mynstur eins og áður yfir ystu 10 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 12 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og dragið lyftu lykkjunni yfir, prjónið eins og áður yfir síðustu 10 lykkjur.
Endurtakið úrtöku að innanverðu við 10 ystu lykkjur í hvorri hlið með ca 2½ cm millibili þar til fækkað hefur verið alls 4-4-5 sinnum í hvorri hlið = 44-48-52 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-24 cm frá prjónamerki á öxl – stillið af að bakstykkið verði jafn langt og framstykkið (fyrir utan stroff).
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Prjónið áfram með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist ca 4 cm og næsta umferð er frá réttu. Stykkið mælist ca 24-26-28 cm frá prjónamerki á öxl. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 4 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið við prjónamerki á öxl og prjónið upp ca 96-102-110 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið og jafnið lykkjufjöldann út til 100-104-108 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist ca 24 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!

Mynstur

symbols = brugðið
symbols = slétt
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Silver Birch

Catharina, Sweden

Silver Birch

Stefanie Beiert, Germany

Silver Birch

Hanaa Al Dalati, Norway

Just Daisy (hat) + Silver Birch (neck warmer)

Valeria Gerontopoulos, France

Silver Birch

BeiertS, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-56

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Maria wrote:

Hei! tarvitseeko puikkokokoa vaihtaa jos korvaa kid silkin alpaca silkilla?

18.11.2023 - 11:43

DROPS Design answered:

Tarkoitatko DROPS Brushed Alpaca Silk -lankaa? Tämä lanka on Kid-Silk -lankaa paksumpi lanka, joten neuletiheys muuttuu ja sinun tulee vaihtaa ohuempiin puikkoihin.

21.11.2023 - 18:15

country flag Janneke Arts wrote:

Het patroon voor de hoofdband beschrijft 40-44-48 steken rond breien op een rondbreinaald van 80 cm. Het lukt me dan niet de uiteinden te verbinden en rond te breien, wat doe ik fout? Ook met een kortere naald lukt het niet. Kan de hoofdband misschien alleen met losse naalden gebreid worden?

29.12.2022 - 11:55

DROPS Design answered:

Dag Janneke,

Je zou dit ook met sokkenbreinaalden kunnen doen of de 'MAGIC LOOP' techniek kunnen gebruiken zoals uitgelegd in deze video.

01.01.2023 - 11:40

country flag Gina wrote:

Sehr schön. Ich stricke gleich ein zweites Set.

13.11.2022 - 18:12

country flag Anette wrote:

Något är fel på beskrivningen, plocka upp 110 m, öka sedan till 108 m.Hur många maskor skall det totalt vara på kragen i halsvärmaren? Mvh Anette

20.09.2022 - 21:39

DROPS Design answered:

Hej Anette, det skall stå justera til 100-104-108 maskor. Tack för info :)

22.09.2022 - 14:31

country flag Elena wrote:

Schalkragen: Wenn man den Umschlag auf der Rückseite links verschränkt strickt, ensteht ein ziemlich grosses Loch. Auf dem Bild ist dies nicht zu sehen. Handelt es sich hierbei eventuell um einen Fehler in der Anleitung? Ich habe es jetzt 4x probiert und komme immer zum gleichen Ergebniss.

22.05.2022 - 00:34

DROPS Design answered:

Liebe Elena, versuchen Sie, Ihre Umschläge nicth zu locker zu stricken, ein kleines Loch kann immer entstehen, das aber nach Waschen immer noch kleiner aussehen soll. Sonnst können Sie auch eine andere Technick benutzen: aus dem Querfaden z.B. oder Ihre Lieblingstechnik. Viel Spaß beim stricken!

23.05.2022 - 08:13

country flag Kitty Neijssel wrote:

Deze vraag gaat over de halswarmer. Ik heb 110 steken opgenomen langs de hals. Volgens de beschrijving zou ik nu 108 steken moeten meerderen. Dus alle steken verdubbelen. Dan zijn er 220 steken (moet door 4 deelbaar zijn) Zijn dat niet heel erg veel steken? De col op de foto lijkt wel ruim maar zó wijd? Klopt dit?

25.12.2021 - 12:26

DROPS Design answered:

Dag Kitty,

Dat klopt inderdaad niet. Er moet staan meerder verdeeld naar... Het is nu aangepast. Je hoeft dus maar een paar steken te meerderen.

28.12.2021 - 19:49

country flag Carmen Maria Garcia Diaz wrote:

Perfecto

24.08.2021 - 12:58

country flag Ina wrote:

Winter love

04.08.2021 - 15:56

country flag Emily wrote:

Frosty feelings

03.08.2021 - 19:57