Roussel skrifaði:
Modèle 215/31 pour faire les diminutions des emmanchures sur ce modèle je tricote la taille 38/40 il faut diminuer 3 mailles ensuite 0 maille dois je sauter après la virgule pour continuer mes diminutions ou faire 4aller retours sans diminution comme pour les autres tailles et ensuite continuer après la virgule mes autres diminutions merci de répondre
15.12.2020 - 17:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Roussel, en taille S et M, vous rabattez pour les emmanchures d'abord 1 fois 3 mailles de chaque côté, puis 1 fois en taille S ou 3 fois en taille M 1 maille de chaque côté, autrement dit, vous sautez les 2 mailles à rabattre car ces 2 tailles ne sont pas concernées. Bon tricot!
16.12.2020 - 06:44
Mari skrifaði:
Thank you for your help,does it mean that we decrease in Right row the next stitch of edge stitch and decrease the stitch befor the edge stitch? Could you make a tutorialvideo for this expression for begginers like me?!!
11.12.2020 - 17:14DROPS Design svaraði:
Dear Mari, at the beg of a row from right side, work the edge stitch, then knit 2 stitches together - at the end of a row from right side, work until 3 sts remain on left needle, slip 1 stitch as if to knit, knit 1, pass the slipped stitch over the knitted stith (or alternately knit 2 stitches together), and work the edge stitch. Find videos for these 2 decreases above under See 24 relevant videos here. Happy knitting!
14.12.2020 - 07:08
Mari skrifaði:
Hi Thank you for your userfriend pattern,but I have a question about your pattern. What do you mean by “ decrease 1 stitch inside 1 edge stitch in each side” Could you explain more about stitch inside and edge stitch. Do you mean decrease edge stitche and its next stitch?
10.12.2020 - 21:31DROPS Design svaraði:
Hi Mari, This means that the edge stitches on each side are worked as before; the decreases are worked after the first edge stitch and before the last edge stitch on the row (which is what is meant by 'inside'). Happy knitting!
11.12.2020 - 07:00
Ingela Karlsson skrifaði:
När släpper ni detta mönster, längtar!
26.10.2020 - 18:32
Yvonne Zander skrifaði:
Leuk patroon wanneer is het ongeveer beschikbaar
22.08.2020 - 13:20
Mists of Dover#mistsofdoversweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-31 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring í lokin. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 96-104-112-120-132-144 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum sjávarþoka á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Haldið svona áfram með stroff (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram með sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 16-18-18-18-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 80-86-94-102-110-120 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 5 cm millibili alls 4 sinnum = 72-78-86-94-102-112 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-0-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-3-4-3-3-5 sinnum = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 26-26-26-28-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 18-19-20-20-21-22 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 96-104-112-120-132-144 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 1 þræði natur og 1 þræði sjávarþoka á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Haldið svona áfram með stroff (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram með sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 16-18-18-18-22-24 lykkjur jafnt yfir = 80-86-94-102-110-120 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 5 cm millibili alls 4 sinnum = 72-78-86-94-102-112 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-0-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-3-4-3-3-5 sinnum = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fellið af miðju 16-16-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 4 sinnum = 18-19-20-20-21-22 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 42-46-46-50-50-50 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 2 þráðum í litnum sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir í 1 þráð í litnum natur og 1 þráð í litnum sjávarþoka. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 4-6-4-6-4-4 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-46-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-12-12-12-11-11 cm, aukið út um 1 lykkju innan við kantlykkju í hvorir hlið – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-12-12-13-14-16 sinnum = 60-64-66-70-74-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorir hlið: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum, 1 lykkja 0-1-2-3-4-5 sinnum og síðan 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55 cm. Fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 56 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant. Saumið ermar í. Saumið saum undir ermum og saum niður meðfram hliðum í eitt innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 4 og 1 þráð í litnum natur og 1 þráð í litnum sjávarþoka. Byrjið við axlasauminn og prjónið upp ca 80-88 lykkjur í kringum hálsmál, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist ca 3 cm. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum sjávarþoka og prjónið 1 umferð brugðið. Fellið laust af með sléttum lykkjum í næstu umferð. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistsofdoversweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.