Suomi skrifaði:
Onko järkevää kaventaa neljäs nuoli kerralla 10silmukkaa. Se kavenee tosi hurjasti. Varsi jää löysäksi.?
25.12.2024 - 21:13DROPS Design svaraði:
Hei, mallineuleen viimeisellä kavennuskerroksella kavennetaan paljon silmukoita, sillä kun neulot sileää neuletta yhdellä värillä työstä tulee tarpeeksi leveä ilman näitä silmukoita.
03.01.2025 - 18:24
Elisabeth Gran skrifaði:
Hei, Jeg har kommet til hælen på Highland hikers. Ser det er instruksjonsvideoer for hæl, men er det Standard hæl eller Enkel hæl som er brukt her?
19.11.2023 - 19:51
Karin Synnøve Jensen skrifaði:
Jeg la opp 66 masker til vrangbord og justerte så mønsteret stemte, ble perfekt.
12.12.2022 - 11:34
Kjersti ørvig skrifaði:
Jeg har strikket mange par sokker etter oppskrifter og et problem er at sokkene alltid er for vide rundt foten. I denne oppskriften er det vrangborden som blir altfor vid selvom bruker minste størrelse. Vanskelig å legge opp færre masker ift rapporter i mønster.
10.08.2021 - 20:30
Kitty skrifaði:
Big fan of Nordick designs,these are for me.
04.06.2020 - 23:58
Highland Hikers#highlandhikerssocks |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 35 – 43.
DROPS 214-53 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl): Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan úr og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 12. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 72-80-80 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkar um 6-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 66-76-76 lykkjur. Prjónið síðan A.1 hringinn (mynstureiningin kemur ekki til með að ganga jafnt upp með lykkjufjölda áður en lykkjum er fækkað við ör-1). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað/aukið út í hverri umferð merktri með ör í A.1 eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING! Ör-1: Fækkið 6-4-4 lykkjur jafnt yfir = 60-72-72 lykkjur (nú er pláss fyrir 5-6-6 mynstureiningar með 12 lykkjum). Ör-2: Fækkið 4-8-0 lykkjur jafnt yfir = 56-64-72 lykkjur (nú er pláss fyrir 7-8-9 mynstureiningar með 8 lykkjum). Ör-3: Aukið út 4 lykkjur í stærð 35/37 og fækkið um 4 lykkjur í stærð 38/40 (aukið/fækkið ekki um lykkjur í stærð 41/43) = 60-60-72 lykkjur. Haldið áfram með mynstur (nú er pláss fyrir 5-5-6 mynstureiningar með 12 lykkjum). Ör-4: Fækkið 6-2-10 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62 lykkjur. Afgangur af sokknum er prjónaður með litnum ljós grár. Prjónið sléttprjón þar til stykki mælist 17-18-19 cm frá uppfitjunarkanti (eða að óskaðri lengd á stroffi). Prjónið nú hæl eins og útskýrt er að neðan. Haldið eftir fyrstu 13-14-15 lykkjur á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28-30-32 lykkjur á þráð án þess að prjóna lykkjurnar (= mitt á fæti) og haldið eftir síðustu 13-14-15 lykkjum á prjón fyrir hæl = 26-28-30 lykkjur á prjón fyrir hæl. Sjá LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur með litnum ljós grár í 5-5½-6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í næstu umferð, prjónamerkið er notað síðar þegar mæla á lengd á fæti frá. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 14-14-16 hællykkjur, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttar lykkjur yfir 28-30-32 lykkjur af þræði á fæti og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 68-72-80 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl, umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 lykkjur mitt ofan á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 28-30-32 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 28-30-32 lykkjum ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 28-30-32 lykkjum á fæti snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti (nú eru eftir ca 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Takið frá prjónamerkin og setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón hringinn og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum hvoru megin við bæði prjónamerkin í annarri hverri umferð alls 5-8-10 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-2-1 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #highlandhikerssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-53
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.