DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 214-59
DROPS Design: Mynstur ee-699
Garnflokkur E + E eða F
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
35/37 – 38/39 – 40/42 – 43/45
Lengd fyrir þæfingu: 35-38-40-43 cm
Lengd eftir þæfingu (ytra mál): 25-28-29-31 cm

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
100-100-100-150 g litur 14, dökk grár
150-150-150-150 g litur 07, appelsína

PRJÓNFESTA:
Fyrir þæfingu: 9 lykkjur á breidd og 12 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
Eftir þæfingu: 10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 10.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá hæl og fram að tá. Þegar stykkið hefur verið prjónað til loka, saumið stykkið saman mitt á fæti og þæfið í þvottavél.

TÁTILJA:
Fitjið upp 9-9-11-11 lykkjur á prjón 10 með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir slétt JAFNFRAMT í hvorri hlið eru auknar út 2 lykkjur í hverja af ystu lykkjum í fyrstu umferð = 11-11-13-13 lykkjur.
Prjónið nú áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er aukið út í hvorri hlið þannig: Aukið út 1 lykkju 2-2-1-2 sinnum innan við ystu 3 lykkjurnar með því að prjóna 2 lykkjur í sömu lykkju – aukið út í annarri hverri umferð = 15-15-15-17 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8½-7½-8½-11 cm prjónið 2 fyrstu lykkjur saman og síðan 2 síðustu lykkjur saman = 13-13-13-15 lykkjur. Stykkið er prjónað áfram í sléttprjóni með 1 lykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í fyrstu lykkju og 2 lykkjur í síðustu lykkju í annarri hverri umferð alls 4-5-5-5 sinnum = 21-23-23-25 lykkjur. Fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok síðustu umferðar, snúið stykkinu. Prjónið 1 umferð og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 25-27-27-29 lykkjur. Stykkið mælist ca 15½-16½-17½-20½ cm.
Haldið áfram í sléttprjóni og 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið að loka máli.
Þegar stykkið mælist 22-23-24-27 cm prjónið 5. og 6. lykkju saman í hvorri hlið = 23-25-25-27 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-29-31-34 cm prjónið 5. og 6. lykkju saman í hvorri hlið = 21-23-23-25 lykkjur.

TÁ:
Skiptið yfir í 2 þræði í litnum appelsína. Prjónið 1 umferð.
Prjónið 5. og 6. lykkju aftur saman í hvorri hlið = 19-21-21-23 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 32½-35½-37½-40½ cm (nú eru eftir 3 umferðir að loka máli).
Prjónið 6. og 7. lykkju saman í hvorri hlið = 17-19-19-21 lykkjur. Prjónið 1 umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja garðaprjón, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt saman, 7-9-9-11 lykkjur, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja garðaprjón = 13-15-15-17 lykkjur.
Fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð. Stykkið mælist ca 35-38-40-43 cm.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Frágangur á tátiljunni er með rönguna út. Saumið sauminn saman mitt á fæti í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Leggið affellingarkantinn (= tá) tvöfaldan saman með sauminn fyrir miðju og saumið tánna saman í ystu lykkjubogana.

HEILL KANTUR:
Brjótið ystu 2 lykkjurnar saman meðfram hlið að neðan að réttu og saumið þannig að það verði lítill kantur – endið sauminn þar sem fækkað var um 1 lykkju í hvorri hlið.

ÞÆFING:
Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-59

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Anette Clausen wrote:

Det er litt vanskelig å se på bilde hvordan det strikkes.. er det ikke slik at man strikker frem og tilbake rett uavhengig av hvilken side det er på? Da tolker jeg det slik at jeg kun skal gjøre det med den ene masken fra da det står? Blir det ikke feil mtp utseende da?

05.12.2022 - 20:10

DROPS Design answered:

Hei Anette. Litt usikker på hva du helt mener, men du legger opp 9-9-11-11 masker, så strikkes det 2 pinner rett samtidig som det økes masker. Deretter strikkes det videre i glattstrikk. Når arbeidet måler 8½-7½-8½-11 cm strikkes de 2 første maskene sammen og deretter de 2 siste maskene sammen = 13-13-13-15 masker. Arbeidet strikkes videre i glattstrikk med 1 maske RILLE i hver side (= de 2 kantmaskene / 1 i hver side strikkes rett fra retten og rett fra vrangen). mvh DROPS Design

12.12.2022 - 10:10

country flag Anette Clausen wrote:

Hva er en maskerille? "Arbeidet strikkes videre i glattstrikk med 1 maske RILLE i hver side – les forklaring over" "RILLE (strikkes frem og tilbake): Strikk rett på alle pinner. 1 rille i høyden = Strikk 2 pinner rett." Hva menes det med en maske rille i hver side? Er det kun en rille, altså en pinne frem og tilbake eller en spesiell maske som heter maskerille?

05.12.2022 - 14:16

DROPS Design answered:

Hei Anette. Når det står slik i oppskriften: "RILLE (strikkes frem og tilbake): Strikk rett på alle pinner. 1 rille i høyden = Strikk 2 pinner rett". Strikker du rett fra retten alle maskene på pinnen og rett fra vrangen på alle maskene på pinnen, altså det strikkes frem og tilbake med bare rett masker. Når det står 1 maske i rille, er det kun 1 maske som strikkes rett, både fra retten og fra vrangen. Ofte er dette 1 kantmaske med glattstrikk mellom kantmaskene. mvh DROPS Design

05.12.2022 - 15:44

country flag Louise wrote:

Drops 214-59 hur gör man när man vänder arbetet?

16.11.2022 - 19:41

DROPS Design answered:

Hej Louise, som du har gjort hele tiden, du lægger op 2 nye masker i hver side af arbejdet :)

17.11.2022 - 13:37

country flag Hofmann wrote:

Guten Tag, wenn eine Strickanleitung mit 2 Fäden gestrickt wird, kann ich auch mit einem Faden stricken? Regina H.

14.09.2022 - 17:37

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hofmann, so lange daß Sie die richtige Maschenprobe haben, dann können Sie diese Hausschuhen mit 1 Faden (DROPS Polaris) anstatt 2 Fäden (DROPS Snow) stricken, versuchen Sie unseren Garnumrechner - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

15.09.2022 - 09:22

country flag Marta wrote:

I have found the answer to my question on English version of the pattern - which is purl/left side out. I was using Polish version while making the slippers and this information is missing - this could be added to make it clear.

28.11.2021 - 12:03

DROPS Design answered:

Dear Marta, thank you for pointing this out. We're checking now the Polish version and we will correct it if necessary. Happy knitting!

28.11.2021 - 18:47

country flag Marta wrote:

You are not explaining which side of the knitting work should be inside of the slippers, which one outside? Please could you advise. Thank you.

27.11.2021 - 22:49

DROPS Design answered:

Dear Marta, the purl side is out. Happy knitting!

28.11.2021 - 18:46

country flag Samar Gouda wrote:

When you say use two strands ..do you mean i will be casting them as double strands in the same stitch or would it be alternating color threads??

04.05.2021 - 16:10

DROPS Design answered:

Dear Samal, the two yarn held together. Happy Knitting!

04.05.2021 - 21:49

country flag Barbara wrote:

Die Hausschuhe möcht ich gerne für Größe 47/48 stricken. Wie muss ich die Anleitung verändern?

03.12.2020 - 23:06

DROPS Design answered:

Liebe Barbara, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an dem Laden wo Sie die Wolle gekauft haben, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!

04.12.2020 - 07:49

country flag Kelly Crane wrote:

I just want to pop my toes in and go in the morning. I can see my tired feet in these after work, a long day on my feet of just being cost on a cold day in my home.

03.07.2020 - 19:51

country flag Rosy wrote:

Très original ce modèle de mules, il me tarde de les tricoter !

05.06.2020 - 09:23