Inés San Martín Mena skrifaði:
Excelente patrón!!! Quedan hermosas y cómodas . Lo he tejido 2 veces a mis hijos que suben a las montañas de nuestra Cordillera de Los Andes. Andan felices con sus calcetas exclusivas y sus pies calientitos. Muchas gracias amigos de DROPS Desing ✨🙏😍
02.05.2022 - 15:52
BLASER skrifaði:
DIMINUTIONS (= milieu dos): JE NE COMPRENDS PAS L EXPLICATION Diminuer au milieu dos, tous les 8 tours – Diminuer ainsi à partir du début du tour: tricoter 1 maille endroit, 2 mailles ensemble à l'endroit, tricoter jusqu'à ce qu'il reste 3 mailles avant le marqueur (= début du tour), glisser 1 maille à l'envers avec le fil derrière l'ouvrage, tricoter 1 maille endroit et passer la maille glissée par-dessus la maille
21.12.2020 - 17:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Blaser, vous devez diminuer au début et à la fin du tour, au début du tour (= milieu dos de la chaussette), vous tricotez la 1ère maille, puis diminuez 1 maille en tricotant les 2 mailles suivantes ensemble à l'endroit, tricotez jusqu'à ce qu'il reste 3 mailles avant la fin du tour, glissez 1 m à l'envers, tricotez 1 maille endroit, et passez la maille glissée par-dessus la maille tricotée, tricotez la dernière maille du tour = vous avez diminué 1 m au début du tour et 1 maille à la fin du tour (et il y a 2 mailles entre les 2 diminutions). Bon tricot!
22.12.2020 - 09:33
Maria Gjellerup Møller skrifaði:
Jeg kan ikke se opskriften på dansk?
24.10.2020 - 13:52DROPS Design svaraði:
Hei Maria. Dette skal vi få ordnet så fort som mulig mandags morgen (26/10/2020). Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS design
25.10.2020 - 20:36
Modile skrifaði:
Des chaussettes pour Pieds natures
06.06.2020 - 08:40
Strzelecki skrifaði:
Les chaussettes hautes couleurs licorne 🦄
05.06.2020 - 18:18
Eva Erhard skrifaði:
So schönes Sockenmuster, ich würde sie Stay at home nennen!!!
04.06.2020 - 20:12
Olena Kostrytsia skrifaði:
Bright and lovely!
04.06.2020 - 15:36
Green Zone#greenzonesocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar með röndum úr DROPS Delight og DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð 35-43.
DROPS 214-57 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= miðja að aftan): Lykkjum er fækkað mitt að aftan, í 8. hverri umferð – stillið af að lykkjum sé fækkað í 1. umferð á rönd til að fá fallegustu útkomuna. Fækkið lykkjum frá byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= byrjun á umferð). Lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn á bakhlið á stykki, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið síðustu lykkjuna í umferð slétt. RENDUR: Prjónið rendur þannig: * 2 umferðir með Delight, 2 umferðir með Nord *, prjónið frá *-*. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að það myndist hak í rendurnar þegar prjónað er í hring, prjónið þannig: Skiptið yfir í nýjan lit og prjónið 1 umferð. Í lok umferðar með nýja litnum, takið upp lykkjuna frá fyrri umferð undir næstu lykkju. Takið upp í aftari lykkjubogann eins og prjóna eigi lykkjuna brugðið og setjið á vinstri prjón. Prjónið lykkjuna saman með lykkjunni frá fyrstu umferð. Með þessu þá sést skiptinginn frá einni umferð til næstu minna. LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl): Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtöku með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan úr og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um tá): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 72-76-80 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Nord. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff þar til stykkið mælist 3 cm í öllum stærðum. Prjónið 1 umferð slétt með Nord, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og RENDUR í útskýringu að ofan. Prjónið í röndum, JAFNFRAMT í 1. umferð byrjar úrtaka á bakhlið á stykki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 í útskýringu að ofan. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum, munið eftir að fækka lykkjum í 8. hverri umferð þar til lykkjum hefur verið fækkað alls 9 sinnum = 54-58-62 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið rendur þar til stykkið mælist ca 26 cm, stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé í Nord. Prjónið 1 umferð með Nord. Nú á að setja lykkjur á þráð (= ofan á fæti), yfir hinar lykkjurnar á að prjóna hæl. Haldið eftir fyrstu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28-30-32 lykkjur á 1 þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir þeim 13-14-15 lykkjum sem eftir eru á prjóni fyrir hæl = 26-28-30 hællykkjur. Sjá LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón fram og til baka með Nord yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu umferð, prjónamerkið er notað síðar til að mæla lengd á fæti frá. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð með Nord þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 14-14-16 lykkjur frá hæl, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, setjið til baka 28-30-32 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið sléttar lykkjur yfir þessar lykkjur. Prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl og prjónið sléttar lykkjur fram að miðju á hællykkjum = 68-72-80 lykkjur á prjóni. Byrjun á umferð á að vera undir fæti. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 lykkjur á fæti. Prjónið 1 umferð slétt með Delight (þannig að rendurnar ofan á fæti halda áfram eins og áður), fækkið síðan lykkjum hvoru megin við 28-30-32 lykkjur á fæti í annarri hverri umferð – JAFNFRAMT er haldið áfram með RENDUR: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram með rendur eins og áður þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4-5-6 cm að loka máli – stillið af að næsta umferð sé prjónuð með Nord (mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Skiptið yfir í Nord, í næstu umferð er fellt af fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-3-2 sinnum = 16 lykkjur eftir í öllum stærðum. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greenzonesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-57
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.