DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Rainbow Racers

Heklaðir sokkar úr 2 þráðum DROPS Delight. Stykkið er heklað ofan frá og niður. Stærð 35-43.

DROPS 214-58
DROPS Design: Mynstur de-217
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ: 35/37 – 38/40 – 41/43
Hæð á sokk: ca 21 - 22 - 23 cm
Lengd fótar: ca 23 - 24 - 27 cm

EFNI:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100 g litur 08, grænn/beige
100-100-100 g litur 05, beige/grár/bleikur

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina með 2 þráðum = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbrugðinn stuðull.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul/fastalykkju þannig:
Heklið 1 stuðul/fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul/fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 stuðul/fastalykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður.

SOKKAR:
Sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan!
Heklið 42-44-47 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði í hvorum lit af Delight (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með því að hekla 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Heklið síðan hringinn þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðull í hverja af fyrstu 1-3-1 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 34-36-38 stuðlar.
UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðull í hvern stuðul umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 34-36-38 stuðlar.
Heklið síðan eins og umferð 2, en þegar heklaðar hafa verið 8 umferðir frá byrjun á stykki er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við fyrstu 3 loftlykkjur mitt að aftan – sjá ÚRTAKA! = 32-34-36 stuðlar.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið áfram að hekla stuðla og endurtakið úrtöku aftur í 18. umferð = 30-32-34 stuðlar.
Heklið áfram með stuðlum þar til heklaðar hafa verið alls 19-20-21 umferðir og stykkið mælist ca 21-22-23 cm. Klippið þræðina frá og þræðið í gegnum síðustu lykkju á heklunálinni. Nú á að hekla áfram yfir 16 stuðla mitt að aftan (= 8 stuðlar í lok umferðar + 8 stuðlar í byrjun á umferð).

HÆLL:
Byrjið frá röngu með að festa þráðinn með 1 keðjulykkju í 8. lykkju frá byrjun á umferð, heklið 1 fastalykkju í sömu lykkju og heklið síðan 1 fastalykkju í hvern af næstu 15 stuðlum = 16 hællykkjur.
Snúið stykkinu að réttu. Heklið nú áfram með fastalykkjum fram og til baka yfir hællykkjurnar, JAFNFRAMT er fækkað um 1 fastalykkju – sjá ÚRTAKA – í hvorri hlið í hverri umferð þar til 8 fastalykkjur eru eftir.
Snúið stykkinu (næsta umferð er hekluð frá réttu). Setjið 1 prjónamerki sem nota á til að mæla lengdina á fætinum síðar.
Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, að auki eru heklaðar 2 nýjar fastalykkjur meðfram hæl í lok umferðar (= 10 fastalykkjur).
Heklið síðan þannig: Fækkið um 1 fastalykkju í byrjun á hverri umferð og heklið 2 nýjar fastalykkjur meðfram hlið á hæl í lok hverrar umferðar.
Haldið svona áfram þar til 16 fastalykkjur eru aftur í umferð. Nú hefur verið heklað í allar umferðir meðfram kanti á hæl. Klippið þræðina frá og þræðið í gegnum síðustu lykkju á heklunálinni.

FÓTUR:
Snúið stykkinu (næsta umferð er hekluð frá röngu). Byrjun á umferð á að vera mitt undir fæti. Heklið síðan 1 stuðul í hverja hællykkju, heklið 4 stuðla í skiptingunni á milli hællykkja og lykkja frá stroffi, heklið stuðla yfir 14-16-18 stuðla frá stroffi. Heklið 4 stuðla á milli lykkja frá stroffi og hællykkja í annarri hliðinni og heklið stuðla yfir þær hællykkjur sem eftir eru = 38-40-42 stuðlar.

Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 14-16-18 lykkjur mitt ofan á fæti.
Heklið síðan þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-1 stuðul á undan fyrra prjónamerkinu og heklið 1-1-1 stuðul á eftir seinna prjónamerkinu = 36-38-40 stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-1 stuðul á undan fyrra prjónamerkinu og heklið 1-1-1 stuðul á eftir seinna prjónamerkinu = 34-36-38 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-1 stuðul á undan fyrra prjónamerkinu og heklið 1-1-1 stuðul á eftir seinna prjónamerkinu = 32-34-36 stuðlar.
UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-1 stuðul á undan fyrra prjónamerkinu og heklið 1-1-1 stuðul á eftir seinna prjónamerkinu = 30-32-34 stuðlar.
UMFERÐ 5: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-1 stuðul á undan fyrra prjónamerkinu og heklið 1-1-1 stuðul á eftir seinna prjónamerkinu = 28-30-32 stuðlar.
UMFERÐ 6: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-2 stuðla á undan fyrra prjónamerkinu og heklið 1-1-2 stuðla á eftir seinna prjónamerkinu = 26-28-28 stuðlar.

Heklið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist ca 19-19-22 cm frá prjónamerki á hæl.

TÁ:
Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern stuðul umferðina hringinn = 26-28-28 fastalykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í fastalykkju í hvorri hlið þannig að það verða 12-13-13 fastalykkjur ofan á fæti og 12-13-13 fastalykkjur undir fæti.
Heklið síðan hringinn með fastalykkjum JAFNFRAMT er fækkað um 2 fastalykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Heklið fram þar til 1 fastalykkja er eftir á undan fastalykkju með prjónamerki, heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan fastalykkju með prjónamerki, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni – nú hefur fækkað um 2 fastalykkjur.
Haldið svona áfram þar lykkjum hefur verið fækkað 3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 14-12-12 fastalykkjur í umferð. Heklið 1 umferð 1 fastalykkjum í hverja fastalykkju.
Klippið þræðina frá. Leggið sokkinn flatan með prjónamerki í hliðum og saumið saman lykkju við lykkju. Festið enda.

Heklið annan sokk á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-58

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Melanie wrote:

Bonjour, comme vous arrêtez ce fil, il est maintenant mpossible de trouver certaines couleurs (comme n 8 ou 19) et pour les autres couleurs, elles ne sont jamais toutes disponibles auprès du même vendeurs (il faut faire plusieurs commandes auprès de différents vendeurs). Par quel fils et couleurs associatives peut on remplacer ?

21.06.2023 - 21:00

DROPS Design answered:

Bonjour Melanie, tout dépend des couleurs que vous souhaitez, pour le même type de laine, vous pouvez utiliser DROPS Fabel, utilisez le convertisseur pour voir les autres alternatives et toutes les quantités correspondantes; votre magasin saura vous conseiller les couleurs adaptées à vos goûts, même par mail ou téléphone. Bon crochet!

22.06.2023 - 09:53

country flag Lilliana Katz wrote:

To the garnstudio.com administrator, Thanks for the well-structured and well-presented post!

08.02.2023 - 19:02

country flag Aroa wrote:

Hola, que proyecto tan bonito! Cuanto hilo necesito para hacerlo? (Qué peso?) Es que no entiendo eso de

26.10.2022 - 22:16

DROPS Design answered:

Hola Aroa, para realizar estos calcetines necesitas 100gr de DROPS Delight de cada uno de los dos colores. Es decir, necesitas 2 ovillos de DROPS Delight de cada color. Puedes ver las características de DROPS Delight aquí: https://www.garnstudio.com/yarn.php?show=drops-delight&cid=23

30.10.2022 - 17:55

country flag LE RUDULIER wrote:

Je voudrai commander cette laine svp DROPS DELIGHT de Garnstudio (appartient au groupe de fils A) 100-100-100 g coloris n° 08, vert/beige 100-100-100 g coloris n° 05, beige/gris/rose

19.03.2021 - 18:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le Rudulier, vous pouvez cliquer sur la petite icône verte avec le caddy sur la ligne DROPS Delight, ou bien choisir votre magasin dans le nuancier; retrouvez la liste de tous les magasins DROPS en France ici. Bon tricot!

22.03.2021 - 07:18

country flag Olesya Vagner wrote:

TOE: Work 1 round with 1 single crochet in every double crochet the entire round= 26-28-28 single crochets. Insert 1 marker thread in a single crochet in each side so that there are 12-13-13 single crochets on top of foot and 12-13-13 single crochets under foot. Question - Maybe it should be 13-14-14 single crochet? Thank you very much

14.03.2021 - 21:41

DROPS Design answered:

Hi Olesya, If you minus the single crochets the markers are inserted in, then there are 24-26-26 single crochets left on the round and there will be 12-13-13 single crochets between each marker-stitch. Happy crocheting!

15.03.2021 - 07:52