DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1022.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1001.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

North Woods

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli og klauf. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-21
DROPS Design: Mynstur sk-109
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350-400 g litur 07, ljós sægrænn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 35, súkkulaði

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 4 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1022.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1001.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 91 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 5,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð).
1 hnappagat = Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu ca 4-5-5-5-5-5 cm frá neðst niðri á fram- og bakstykki, fellið síðan af fyrir næstu 3 hnappagötum með ca 9½-9½-10-10-10-10 cm millibili.
Stillið af að efsta hnappagatið sé staðsett ca 1 cm neðan við þar sem úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig þar til stroffið neðst niðri er lokið. Síðan eru bæði stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er fram og til baka frá miðju að framan og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.
Síðan eru ermarnar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur fyrir kant að framan sem prjónaður er fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 91-101-109-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2, prjónið þar til stroffið mælist 15 cm. Klippið frá og setjið lykkjur á þráð. Geymið stykkið og prjónið framstykkin.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 47-51-55-59-65-71 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2, prjónið þar til stroffið mælist 15 cm. Klippið frá og setjið lykkjur á þráð. Geymið stykkið og prjónið hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið alveg eins og vinstra framstykki þar til stykkið mælist 15 cm – stillið af að enda eftir umferð frá röngu. Ekki klippa þráðinn frá.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið nú stykkin saman. Prjónið yfir hægra framstykki frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 45-49-53-57-63-69 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-9-10-10-11-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið síðustu lykkjuna á hægra framstykki slétt saman með fyrstu lykkju á bakstykki (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 89-99-107-115-127-139 lykkjur á bakstykki og fækkið jafnframt um 17-21-23-23-25-27 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðustu lykkju á bakstykki slétt saman með fyrstu lykkju á vinstra framstykki (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 45-49-53-57-63-69 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-9-10-10-11-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið síðustu lykkjuna í garðaprjóni = 150-162-174-190-210-230 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm frá uppfitjunarkanti eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorir hlið þannig: Prjónið fyrstu 34-37-39-43-47-51 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= handvegur), prjónið næstu 66-72-76-84-92-100 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= handvegur), prjónið síðustu 34-37-39-43-47-51 lykkjur (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 46-48-50-52-52-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið nú hringinn þannig: Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið á að fylgja með í stykkinu og er notað síðar þegar auka á út undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 11-10-10-10-7-7 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-2½-2-2-2 cm millibili alls 10-10-12-13-15-15 sinnum = 58-60-66-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 42-41-41-39-39-38 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis), fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 50-52-56-60-62-62 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 234-250-266-290-310-326 lykkjur. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 30-32-34-38-41-44 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 54-58-62-66-70-72 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 60-64-68-76-82-88 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 54-58-62-66-70-72 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 30-32-34-38-41-44 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón (= vinstra framstykki).
Lykkjur með prjónamerki í segja til um skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og erma.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan. Fækkið síðan lykkjum fyrir laskalínu og V-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

LASKALÍNA:
Þegar prjónaðar hafa verið 4-4-2-2-2-2 umferðir á berustykki, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 19-21-23-25-27-29 sinnum.

V-HÁLSMÁL:
Þegar prjónaðar hafa verið 2-4-4-4-4-4 umferðir á berustykki, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir síðustu lykkju sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið síðan þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 kantlykkju garðaprjón.
Fækkið lykkjum svona eftir 7 umferð og síðan í 4. hverri umferð 8-9-9-10-11-12 sinnum = alls 10-11-11-12-13-14 úrtökur fyrir V-hálsmáli í hvorri hlið.

Þegar öll úrtaka fyrir laskalínu og v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 62-60-60-66-68-66 lykkjur eftir í umferð. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið sléttprjón yfir næstu 56-54-54-60-62-60 lykkjur – fækkið jafnframt um 12-8-8-12-13-9 lykkjur jafnt yfir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja garðaprjón = 48-50-50-52-53-55 lykkjur. Fellið af.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki með hringprjón 4 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp 135-145 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram hægra framstykki og alveg upp að miðju að aftan á bakstykki (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkja).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu – aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem fyrsta úrtakan fyrir V-hálsmáli byrjar með því að prjóna þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 2 sinnum (= 2 lykkjur fleiri) – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið nú stroff frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kanturinn að framan mælist 1-1½ cm. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist alls 3-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu mitt aftan í hnakka með hringprjón 4 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp 135-145 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram kanti og niður yfir vinstra framstykki (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkja).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu – aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem fyrsta úrtakan fyrir V-hálsmáli byrjar með því að prjóna þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 2 sinnum (= 2 lykkjur fleiri) – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið nú stroff frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kanturinn að framan mælist 3-3½ cm – stillið lengdina af eftir hægri kanti að framan. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið kant að framan mitt aftan í hnakka innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman op undir ermar.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Alina Rodriguez wrote:

No entiendo el ranglan y donde pone marcadores

04.12.2023 - 23:41

country flag Piera wrote:

Buongiorno, nella spiegazione dello sprone risulta che ci sono 58 maglie per le maniche (quindi 58x2= 116), 64 maglie per il dietro e 32 maglie per i due davanti (quindi 64). Sommando tutte le maglie 116+64+64 +2magli di vivagno mi risultano 246maglie non 250. Dove sono le altre 4 maglie? Grazie Piera

23.10.2023 - 17:59

DROPS Design answered:

Buonasera Piera, ha inserito i segnapunti dello sprone NELLE maglie con indicato? e non TRA le maglie? Le 4 maglie che mancano sono quelle con i segnapunti. Buon lavoro!

23.10.2023 - 22:24

country flag Anh wrote:

Bonjour, pouvez-vous m’éclairer sur les diminutions raglan pour ce modèle : faudrait-t-il diminuer à 2mailles avant le marqueur et pas de diminution après le marqueur, parce qu’il est écrit : Tricoter jusqu’à ce qu’il reste 1 maille avec le marqueur... Merci d’avance et merci aussi pour les jolis modèles proposés.

21.03.2022 - 22:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Anh, vous diminuez 2 mailles à chaque marqueur soit 8 mailles au total, commencez quand il reste 1 maille avant le fil marqueur, glissez 2 mailles à l'endroit (la maille avant le marqueur + celle avec le marqueur), tricotez 1 maille endroit (= celle après le marqueur), et passez les 2 mailles glissées par-dessus la maille tricotée = vous avez diminué 2 mailles: 1 maille avant + 1 maille après le marqueur. Bon tricot!

22.03.2022 - 10:14

country flag Marijke wrote:

Vraag 2 Raglan wordt gebreid door 2 steken over te halen. Is dat in iedere naald (dus ook averecht). Dit staat bij 'raglan'. Of alleen als er recht gebreid wordt? In iedere naald is het resultaat namelijk heel anders dan de foto.

18.01.2022 - 22:26

DROPS Design answered:

Dag Marijke,

De raglanminderingen worden om de naald gemaakt (iedere andere naald), dus de ene naald wel en de andere naald niet.

21.01.2022 - 09:05

country flag Marijke wrote:

Vraag 1: Vanaf de beschrijving 'pas' moeten er in maat L totaal 266 steken op de naald zijn. Dat klopt. Maar in de eerste rij, waar de markeerdraaden ingevoegd moeten worden kom ik op een totaal van 262 steken (inclusief kantsteken). Hoe moet de verdeling precies?

18.01.2022 - 22:25

DROPS Design answered:

Dag Marijke,

Je voegt de markeerdraden in de steken, niet tussen de steken. Waarschijnlijk zorgt dit voor het verschil van 4 steken.

21.01.2022 - 09:02

country flag Goretti wrote:

Buenas, en la talla M, al montar todos los puntos en la misma aguja, frente, mangas y espalda pone que hay 250 puntos. Pero con las piezas relizadas anteriormente son 246; donde pongo los marcadores?

13.01.2022 - 18:30

DROPS Design answered:

Hola Goretti, en las partes anteriores has obtenido 52 puntos en cada manga (= 104 puntos), 37 para cada delantero (= 74 puntos) y 72 puntos en la espalda. En total son 250 puntos. Los marcapuntos se ponen en la transición entre la manga y el cuerpo.

16.01.2022 - 23:20

country flag Henny wrote:

Voor de mouw in de grootste maat 56 st. opgezet. 10 st. minderen is 46 st. 15 x 1 st. aan beide zijden meerderen is 30 st. Totaal 76 st. 14 st. afkanten is 62 st. Bij de pas begin staat na de St. van het VP de 72 st. opnemen. Dit staat hij allebei de moeten. Zie ik iets over het hoofd?

29.12.2021 - 18:40

DROPS Design answered:

Dag Henny,

Na het afkanten van steken voor het armsgat op het lijf, heb je 51 steken op beide voorpanden en 100 steken op het achterpand. Met de 62 steken van beide mouwen kom je op een totaal van 326 steken. Zo te zien wordt de raglanlijn ietsje verschoven, dus er gaan a.h.w. steken van de mouwen naar de het lijf. Let er op dat je de markeerdraden in de steken plaatst en niet tussen de steken. Daarnaast brei je nog aan elke kant een kantsteek. Zo klopt het totaal aantal steken weer.

06.01.2022 - 10:55

country flag Lily wrote:

Bonjour, J’aimerai faire ce cardigan uniquement avec 1 qualité de laine (je veux remplacer la Sky par de la Karisma pour l’assortir à un short). Combien de pelotes je vais devoir utiliser et est ce que la taille de mon ouvrage va changer ou bien je continue de suivre les indications indépendamment de cela? Merci !

23.10.2021 - 12:04

DROPS Design answered:

Bonjour Lily, quelle taille faites-vous? Deuxieme question, voulez-vous utiliser DROPS Kid-Silk ou non?

25.10.2021 - 12:52

country flag Inga wrote:

Hei! Under V-hals står det "fell slik igjen etter 7 pinner. " Mener dere da 7 pinner etter fellingen før, eller 7 pinner etter man har satt sammen ermene og bolen på en pinne?

22.05.2021 - 09:28

DROPS Design answered:

Hei Inga. 2. fellingen starter7 pinner etter 1.fellingen. Når du har satt sammen til bærestykket skal det strikkes 2-4-4-4-4 eller 4 pinner på bærestykket (avhengig av hvilken str du strikker), så starter fellingen til v-hals. mvh DROPS design

26.05.2021 - 09:15

country flag Kirsten Bendel wrote:

Dann wäre meine Frage natürlich noch, ob ich das Modell 216-21, auch mit 1 Faden Air stricken kann? Herzlichen Dank

11.04.2021 - 14:20

DROPS Design answered:

Siehe vorrige Antwort :)

12.04.2021 - 10:02