Sophie Gore skrifaði:
When it comes to the sleeves, it says to place the stitches on a thread rather than work them-but then later does not mention overlaying the last row of A.1 over the sleeves. Are you supposed to work the stitches and then place them on a thread? Are they not supposed to have the final row of A.1?
09.08.2024 - 06:35DROPS Design svaraði:
Dear Sophie, you work the sleeve stitches and then place them on the thread. Otherwise, the working thread won't be in the right place for working the last round over the front/back pieces before starting the body. Happy knitting!
11.08.2024 - 13:37
Sarah Thomas skrifaði:
How do I know what size to knit? What does s, m, l, etc. mean in English sizing, or even in inches or cm?
31.08.2023 - 16:23DROPS Design svaraði:
Hi Sarah, You will find a size chart at the bottom of the pattern, with all the measurements for the different sizes. Happy crafting!
01.09.2023 - 06:40
Catherine Lhouman skrifaði:
Je n'arrive pas à imprimer les explications du pull avec le diagrame pouvez vous m'aider merci.
16.01.2022 - 18:36
Catherine Lhouman skrifaði:
Je n\'arrive pas à imprimer le modèle du pull avec le diagrame pouvez vous m\'aider. Merci
16.01.2022 - 18:34
Eva-lis Westerberg skrifaði:
Kan inte skriva ut mönstret.Skrivaren bara bearbetar i evighet.Har inte något problem med något annat som ska skrivas ut. Mvh Eva-Lis Westerberg
24.04.2021 - 09:42DROPS Design svaraði:
Hei Eva-lis. Klikk på "Skriv ut", ikke skriver ikonet ditt. Eller sjekk innstillingene dine, vi har ingen problem med å få skrevet den ut. mvh DROPS design
26.04.2021 - 15:34
Anne W skrifaði:
Hvis jeg kun vil strikke med 1 tråd - hvilket garn kan der så bruges? Omregneren på denne side kunne desværre ikke hjælpe. Det skal være uldgarn.
06.01.2021 - 13:09DROPS Design svaraði:
Hej Anne, Jo denne bluse er strikke i én tråd. Du vælger DROPS Air (som i opskriften) antal gr i din størrelse (feks 350 g i small) og 1 tråd (som i opskriften) så får du 6 alternativer op med 1 tråd uld. Feks 700 g Nepal, eller 750 g Alaska. God fornøjelse!
08.01.2021 - 12:02
Yvanne Pelletier skrifaði:
Bonjour je suis dans une impasse je fais drops218-9 je ne comprends pas votre diagramme A1 et A2 il n'y a qu' une colonne on dirais qu'il en manque une pour comprendre je suis entré la flèche 3 et 4 c'est le dilemme merci de m'aider 3fois que je recommence grrrr
03.12.2020 - 19:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pelletier, répétez le diagramme en largeur le nombre de fois indiqué pour votre taille, en même temps, aux rangs avec la flèche, répartissez le nombre d'augmentations indiqués pour ces tours. En fonction du rang, vous répèterez le motif sur un nombre différent de mailles, par ex. A.1 se tricote d'abord sur 8 mailles (après la flèche-1), puis sur 6 m (jusqu'à la flèche-4), puis sur 8 m (après la flèche-4), et ainsi de suite. Raison pour laquelle il n'y a pas le même nombre de mailles à chaque fois, mais vous pourrez à chaque fois répéter ce motif tout le tour car vous aurez le bon nombre de mailles correspondant grâce aux augmentations. Bon tricot!
04.12.2020 - 07:38
Grażyna skrifaði:
Piękny sweter w moich kolorach. Podoba mi się to że żakard rozpoczyna się poniżej karczku. Świetny.
05.06.2020 - 11:20
Nordic Trails Sweater#nordictrailssweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, stroffi og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt í slétta lykkju, en sleppið ekki lykkjum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni (= 4 lykkjur fleiri). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 156 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 5,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stutta hringprjóna ofan frá og niður. Kant í hálsmáli á að brjóta upp tvöfalt og sauma niður í lokin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-84-90-90-96-96 lykkjur á hringprjón 4 með litnum beige. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með stroff þar til stroffið mælist 10 cm. Setjið 1 prjónamerki hér, héðan er nú stykkið mælt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram með stroff, en þegar stykkið mælist 1 cm, aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingum = 104-112-120-120-128-128 lykkjur. Aukið út lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í lok hverrar brugðinnar einingar, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt. Haldið áfram með 3 lykkjur brugðið í öllum brugðnum einingum. Þegar stykkið mælist 5-5½-6-6½-7-7½ cm, prjónið þannig: * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið, AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR Í NÆSTU LYKKJU – sjá útskýringu að ofan, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 156-168-180-180-192-192 lykkjur (nú hafa lykkjur verið auknar út í aðra hverja lykkju slétt). Prjónið síðan 1 lykkju slétt, 3 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 10-11-12-13-14-15 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Prjónið sléttprjón í 0-0-1-1-2-2 cm, stykkið mælist nú ca 10-11-13-14-16-17 cm frá prjónamerk. Haldið nú áfram með mynstur A.1 yfir allar lykkjur og lykkjur eru auknar út jafnt yfir í umferð með ör í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Sjá LEIÐBEININGAR og ÚTAUKNING! ÖR-1: Aukið út 28-32-36-44-48-56 lykkjur jafnt yfir = 184-200-216-224-240-248 lykkjur. ÖR-2: Aukið út 26-28-30-40-42-52 lykkjur jafnt yfir = 210-228-246-264-282-300 lykkjur. ÖR-3: Aukið út 18-24-30-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 228-252-276-300-318-342 lykkjur. ÖR-4: Aukið út 4-4-4-4-2-2 lykkjur jafnt yfir = 232-256-280-304-320-344 lykkjur. Nú er eftir 1 umferð í A.1 og stykkið mælist ca 19-20-22-23-25-26 cm. Prjónið síðustu umferð í mynsturteikningu þannig: Prjónið fyrstu 34-38-41-44-48-53 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-58-64-64-66 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 68-76-82-88-96-106 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-58-64-64-66 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 34-38-41-44-48-53 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-164-176-192-212-236 lykkjur. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út í hverri umferð með ör þannig: ÖR-5: Aukið út 4-4-0-0-4-4 lykkjur jafnt yfir = 152-168-176-192-216-240 lykkjur. ÖR-6: Aukið út 4-0-4-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 156-168-180-192-216-240 lykkjur. ÖR-7: Aukið út 0-1-2-3-5-7 lykkjur jafnt yfir = 156-169-182-195-221-247 lykkjur. ÖR-8: Aukið út 0-5-4-3-1-5 lykkjur jafnt yfir = 156-174-186-198-222-252 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með litnum beige og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 26-27-27-28-28-29 cm, aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir = 168-186-198-210-234-264 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-58-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-10-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu og er notað við úrtöku undir ermi. Haldið síðan áfram hringinn með mynstur A.2. ATH! Vegna úrtöku undir ermi, kemur mynstureining í A.2 ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi. Lykkjur eru því ekki auknar út við örvar í A.2 eins og á fram- og bakstykki. Þegar stykkið mælist 4 cm, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-4-3-2½-2-2 cm millibili alls 6-7-9-12-12-13 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið áfram með litnum beige og sléttprjóni. Haldið áfram þar til ermin mælist 35-35-34-34-32-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 42-45-48-48-51-54 lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttara lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 40-40-39-39-37-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið strofið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nordictrailssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.