DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nordic Trails

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, stroffi og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 218-10
DROPS Design: Mynstur ai-275
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 26, beige
100-100-100-100-100-100 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5: Fyrir sléttprjón og norrænt mynstur
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: Fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: Lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble nr 629: 6-7-7-7-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR ÞANNIG:
Prjónið 1 lykkju slétt í slétta lykkju, en sleppið ekki lykkjum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni (= 4 lykkjur fleiri).

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 161 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 4,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu á eftir stroffi í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-6-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-9 cm millibili.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.
Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur og saumaður saman í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 87-93-99-99-105-105 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með litnum beige.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið nú stroff þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm, stillið af að síðasta umferð í stroffi sé prjónuð frá röngu. Setjið 1 prjónamerki hér, héðan frá er stykkið mælt.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með stroff og garðaprjón í kanti að framan eins og áður, en þegar stykkið mælist 1 cm er aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnum einingum = 113-121-129-129-137-137 lykkjur. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í lok hverrar brugðinnar einingar, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Haldið áfram með 3 lykkjur brugðið í öllum brugðnu einingum.

Þegar stykkið mælist 5-5½-6-6½-7-7½ cm, prjónið þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið, AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR Í NÆSTU LYKKJU – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón = 161-173-185-185-197-197 lykkjur (aukið er út í annarri hverri sléttri lykkju). Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 5 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. (Frá réttu eru nú prjónaðar 5 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 10-11-12-13-14-15 cm frá prjónamerki í hálsi. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið í 0-0-1-1-2-2 cm, stykkið mælist nú ca 10-11-13-14-16-17 cm frá prjónamerki.

Haldið nú áfram með mynstur og aukið út lykkjur jafnt yfir í umferð með ör í mynsturteikningu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Sjá LEIÐBEININGAR og ÚTAUKNING!
ÖR-1: Aukið út 34-38-42-50-54-62 lykkjur jafnt yfir = 195-211-227-235-251-259 lykkjur.
ÖR-2: Aukið út 26-28-30-40-42-52 lykkjur jafnt yfir = 221-239-257-275-293-311 lykkjur.
ÖR-3: Aukið út 18-24-30-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 239-263-287-311-329-353 lykkjur.
ÖR-4: Aukið út 4-4-4-4-2-2 lykkjur jafnt yfir = 243-267-291-315-331-355 lykkjur.

Nú er eftir 1 umferð í A.1 og stykkið mælist ca 19-20-22-23-25-26 cm.

Prjónið síðustu umferð í mynsturteikningu frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 39-43-46-49-53-58 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-58-64-64-66 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 69-77-83-89-97-107 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-52-58-64-64-66 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 39-43-46-49-53-58 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 159-175-187-203-223-247 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig (fyrsta umferð = rétta): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.2 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út í hverri umferð með ör, þannig:
ÖR-5: Aukið út 4-4-0-0-4-4 lykkjur jafnt yfir = 163-179-187-203-227-251 lykkjur.
ÖR-6: Aukið út 4-0-4-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 167-179-191-203-227-251 lykkjur.
ÖR-7: Aukið út 0-1-2-3-5-7 lykkjur jafnt yfir = 167-180-193-206-232-258 lykkjur.
ÖR-8: Aukið út 0-5-4-3-1-5 lykkjur jafnt yfir = 167-185-197-209-233-263 lykkjur.

Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með litnum beige, sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 26-27-27-28-28-29 cm, aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir innan við 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið = 179-197-209-221-245-275 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-52-58-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-10-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu og er notað við úrtöku undir ermi. Haldið síðan áfram hringinn með mynstur A.2. ATH! Vegna úrtöku undir ermi, kemur mynstureining í A.2 ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi. Lykkjur eru því ekki auknar út við örvar í A.2 eins og á fram- og bakstykki.

Þegar stykkið mælist 4 cm, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með ca 5-4-3-2½-2-2 cm millibili alls 6-7-9-12-12-13 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið áfram með litnum beige og sléttprjóni.
Haldið áfram þar til ermin mælist 35-35-34-34-32-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 42-45-48-48-51-54 lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttara lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 40-40-39-39-37-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki. Brjótið strofið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot og saumið saman hvora hlið á uppábroti við miðju að framan. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = beige
symbols = natur
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (1)

country flag Mountain High wrote:

Superschöne Jacke! Könnte ich mir auch mit Color blockig vorstellen, z.B Orange und Pink.

06.06.2020 - 20:21