Eva skrifaði:
Varför är alla mönster uppifrån och ner? Jag vill sticka som vanligt med vanliga stickor nerifrån!
17.09.2024 - 17:10DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Vissa av våra mönster stickas uppifrån och ner, och vissa nedifrån och upp. Du kan filtrera ditt sökresultat genom att använda filtret "Stickriktning" för att endast få med plagg som stickas t.ex. nedifrån och upp. Mvh DROPS Design
18.09.2024 - 09:55
Thaís skrifaði:
Olá, os pontos com agulha circular teriam como ser feitos na agulha tradicional? Obrigada :)
30.03.2021 - 05:49
Lilyj skrifaði:
Credo che dovrebbero esserci dei diagrammi in questo modello, ma non sono visibili? Dopo il diagramma A1 (visibile) ci sono quattro quadratini azzurri con un punto interrogativo all'interno… cosa manca? Grazie.
25.10.2020 - 16:00DROPS Design svaraði:
Buongiorno Lilyj. Per questo modello è previsto solo il diagramma A1. Provi a svuotare la cache o a navigare con un browser diverso. Buon lavoro!
29.10.2020 - 10:12
Krystyna Sliwinska skrifaði:
Bardzo ładny
27.08.2020 - 22:00
Novella skrifaði:
Blue waves
17.07.2020 - 23:08
Skipping Stones Sweater#skippingstonessweater |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Andes. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og opnu garðaprjóni. Stærð S – XXXL.
DROPS 216-26 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 51 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 3,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ----------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 51-54-57-60-63-66 lykkjur á hringprjóna 7 með Andes. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 16 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 16-16-15-16-16-16 lykkjur jafnt yfir í hvert skipti sem 1. Umferð í A.1 er prjónuð á hæðina – SJÁ ÚTAUKNING. Aukið svona út alls 6-7-8-8-9-10 sinnum = 147-166-177-188-207-226 lykkjur. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki, í síðustu umferð frá réttu er lykkjufjöldinn jafnaður út til 148-164-180-188-208-224 lykkjur. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.Prjónið fyrstu 22-25-27-28-32-35 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 30-32-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 44-50-54-56-64-70 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 30-32-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 22-25-27-28-32-35 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100-112-120-128-144-156 lykkjur. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 26-26-27-27-27-27 cm. Prjónið eina umferð þar sem aukið er út um 8-8-9-10-12-12 lykkjur jafnt yfir = 108-120-129-138-156-168 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Nú er prjónað stroff 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið hringinn yfir allar lykkjur. Prjónið svona í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ATH – SJÁ AFFELLING – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMI: Setjið 30-32-36-38-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 36-38-42-46-48-50 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferðina við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 9-8-6-4-4-3 cm millibili alls 4-5-6-8-8-9 sinnum = 28-28-30-30-32-32 lykkjur. Prjónið með sléttprjóni þar til ermin mælist 39-38-37-36-35-34 cm (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 27-27-30-30-33-33 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 43-42-41-40-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #skippingstonessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.