Cool Confidence |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með köðlum, gatamynstri, áferðamynstri og háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-25 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um miðju undir ermum): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki mitt undir ermi, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki brugðið eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar snúnar, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur jafnóðum inn í A.7. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón, neðan frá og upp þar sem ermakúpa byrjar, prjónið síðan afgang af ermi fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er saumað saman. Að lokum er prjónaður hár kragi í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 122-130-142-158-170-186 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 0-2-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 122-128-140-156-170-186 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 (= 8 lykkjur), prjónið A.4 (= 14 lykkjur), prjónið A.5 (= 24 lykkjur), prjónið A.6 (= 14 lykkjur), prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 2-2-4-6-8-10 lykkjur í hvorri hlið með því að prjóna 4 lykkjur í hvern og einn af ystu köðlum í hvorri hlið slétt saman 2 og 2 = 118-124-132-144-154-166 lykkjur eftir. Í næstu 2 umferðum, fellið af fyrir handveg með því að fella af 7-10-6-12-9-7 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum = 104-104-120-120-136-152 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 30-30-30-30-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 36-36-44-44-51-58 lykkjur eftir. Þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fellið af 5-5-7-7-8-10 lykkjur á öxl með því að prjóna lykkjur í hvern og einn af köðlum í A.1/A.3 og A.4/A.6 slétt saman 2 og 2 = 31-31-37-37-43-48 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Bakstykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 122-130-142-158-170-186 lykkjur á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 0-2-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 122-128-140-156-170-186 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 (= 8 lykkjur), prjónið A.4 (= 14 lykkjur), prjónið A.5 (= 24 lykkjur), prjónið A.6 (= 14 lykkjur), prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fellið af 2-2-4-6-8-10 lykkjur í hvorri hlið með því að prjóna 4 lykkjur í hvern og einn af 1-1-2-3-4-5 ystu köðlum í hvorri hlið slétt saman 2 og 2 = 118-124-132-144-154-166 lykkjur eftir. Í næstu 2 umferðum, fellið af fyrir handveg með því að fella af 7-10-6-12-9-7 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum = 104-104-120-120-136-152 lykkjur eftir. Haldið svona áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 49-50-52-53-55-56 cm, setjið miðju 18-18-18-18-20-22 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 36-36-44-44-51-58 lykkjur eftir. Þegar 2 lykkjur eru eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fellið af 5-5-7-7-8-10 á öxl með því að prjóna lykkjur í hvern af köðlum A.1/A.3 och A.4/A.6 slétt saman 2 og 2 = 31-31-37-37-43-48 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING! Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 40-44-44-48-48-52 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm, setjið 1 prjónamerki í umferð. Þetta prjónamerki merkir hvar ermin er brotin upp og ermin er mæld síðar frá þessu prjónamerki. Þegar stroffið mælist 10 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir = 42-46-46-50-50-54 lykkjur. Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið – í fyrstu lykkju í umferð. Þetta prjónamerki merkir mitt undir ermi og lykkja með prjónamerki er prjónuð brugðið í hverri umferð. Skiptið yfir í sokkaprjóna 4,5 og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið lykkjuna með prjónamerki brugðið, prjónið A.7 (þannig að mynstrið byrjið og endi eins hvoru megin við lykkju með prjónamerki). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 10-10-8-6-10-10 cm frá fyrra prjónamerki sem var sett, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 2-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 17-17-19-19-21-21 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-46-46-44-43-42 cm frá fyrsta prjónamerki, prjónið ermakúpu fram og til baka á hringprjón frá miðju undir ermi – A.7 heldur áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið til loka (þ.e.a.s. lykkja með prjónamerki og síðasta lykkja í umferð er prjónuð í garðaprjóni). Prjónið þar til ermin mælist 50-51-49-50-48-46 cm frá fyrra prjónamerki (og ca 56-57-55-56-54-52 cm frá uppfitjunarkanti), þ.e.a.s. það er klauf ca 4-5-3-6-5-4 cm efst á ermi. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma á framstykki og bakstykki frá handveg og niður þar sem stroffið byrjar, þannig að það myndist klauf ca 6 cm neðst í hvorri hlið – saumið hliðarsauminn í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. Saumið ermakúpu við handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram handveg. Saumið síðan opið efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 78 til 92 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 92-96-100-100-104-108 lykkjur – sjá ÚTAUKNING-2. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-9-9-10-10 cm – eða að óskaðri lengd. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
J E Wouda-Jelsma wrote:
Op teltekening van a4 en a6 staan beide kabels van linksboven naar rechtsonder. Dit klopt dus niet met het antwoord, zie vorig bericht. Groet, Joke Wouda
27.06.2022 - 12:47Joke Wouda wrote:
M.i. horen figuur A4 en A6 spiegelbeeld te zijn. In patroon staan de kabels dezelfde kant op, klopt dat wel? Joke Wouda DROPS Design answered: Patroon A.4 en A.6 zijn inderdaad ook elkaars spiegelbeeld en de kabels lopen ook gespiegeld aan elkaar. Dit is ook te zien aan hoe de lijntjes in de telpatronen lopen; bij A.6 van links onder naar rechts omhoog en bij A.4 van rechts onder naar links omhoog. Op teltekening beide van linksboven naar rechtsonder
27.06.2022 - 12:45J E Wouda-Jelsma wrote:
M.i. horen figuur A4 en A6 spiegelbeeld te zijn. In patroon staan de kabels dezelfde kant op, klopt dat wel? vriendelijke groet, Joke Wouda
25.06.2022 - 17:32DROPS Design answered:
Dag J E Wouda-Jelsma,
Patroon A.4 en A.6 zijn inderdaad ook elkaars spiegelbeeld en de kabels lopen ook gespiegeld aan elkaar. Dit is ook te zien aan hoe de lijntjes in de telpatronen lopen; bij A.6 van links onder naar rechts omhoog en bij A.4 van rechts onder naar links omhoog.
26.06.2022 - 09:53Monika Anedda wrote:
Hallo, kann es sein dass die Zentimeterangabe in der Länge nicht stimmt das wäre bei meiner Größe 84 cm das würde mir bis zu den Knien reichen.
06.02.2021 - 16:20DROPS Design answered:
Liebe Frau Anedda, die gesamte Höhe für diesen Pullover lesen Sie links in die Skizze = 56-58-60-62-64-66 cm (= ca 37-38-39-40-41-42 vor Armausschnitt + 19-20-21-22-23-24 cm Armausschnitt) - hier lesen Sie mehr über die Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!
08.02.2021 - 11:38Almendra wrote:
¿Como se lee el diagrama A.7 para la manga?
20.10.2020 - 01:25DROPS Design answered:
Hola Almendra. El diagrama A.7 se lee de la siguiente manera (como se trabaja en redondo, todas las filas se trabajan por el lado derecho y las filas del diagrama se leen de derecha a izquierda): Fila 1:* 1 revés, 3 derechos*, repetir de * a * toda la vuelta y terminar con 1 revés. Fila 2: *1 derecho, 1 revés", repetir de * a * toda la vuelta terminando con 1 derecho Fila 3: *2 derechos, 1 revés, 1 derecho*, repetir de * a * toda la vuelta y terminar con 1 derecho. Fila 4: Igual que la fila 2.
25.10.2020 - 15:55Judith wrote:
Ik neem aan dat de mouwen, na het boord, ook met nld 4,5 gebreid worden?
19.10.2020 - 20:09DROPS Design answered:
Dag Judith,
Ja, klopt inderdaad, want daar begint het structuurpatroon.
21.10.2020 - 10:51Joyce Geene wrote:
Kan deze trui - het voor & achterpand direct rond gebreid worden ipv in 2 delen?
22.09.2020 - 20:20DROPS Design answered:
Dag Joyce,
Ja hoor, dat kan. Je zet dan alle steken voor het voor- en achterpand op de rondbreinaald vanaf waar het split begint op de onderkant, waarbij je de kantsteken af kunt kanten. Bij het afkanten van steken voor de mouw brei je de panden dan weer apart van elkaar verder heen en weer.
24.09.2020 - 12:38Maggan Henriksson wrote:
Hej, Stämmer diagrammet till Cool Confidence? Funderar på vad de helt vita rutorna betyder. Betyder det slätstickning istället för, som diagrammet anger, de helt svarta? Några helt svarta rutor hittar jag inte i mönstret. Ska de med 0 i symbolisera omslag?
06.09.2020 - 17:16DROPS Design answered:
Hej Maggan. Tack för info, symbolerna är nu rättade! Mvh DROPS Design
07.09.2020 - 13:11