Ramona skrifaði:
Hallo ,warum ist bei der Anleitung keine Maßskizze dabei ? Ich wüsste gerne wieviel cm die Größe M über der Hüfte hat Vielen Dank 😊
14.01.2023 - 17:57DROPS Design svaraði:
Liebe Ramona, Maßskizze sowie Diagramm A.1 sollten Sie unter die schriftliche Anleitung finden, ist jetzt alles in Ordnung wieder?
16.01.2023 - 08:50
Janni Lundbye skrifaði:
Hejsa jeg har lidt svært ved at beregne hvor meget garn jeg skal bruge til denne opskrift Cobblestone Sweater by DROPS Design i str XL Tak for hjælpen Venlig hilsen Janni Lundbye
08.02.2021 - 17:56DROPS Design svaraði:
Hej Janni. Du behöver 1050g (dvs 21 nystan) i storlek XL. Mvh DROPS Design
11.02.2021 - 10:00
Mette skrifaði:
Hei Mangler det instruksjoner i denne oppskriften?
21.10.2020 - 10:07DROPS Design svaraði:
Hej Mette, Vi skal få den rigtige opskrift lagt ud. Tak for info :)
21.10.2020 - 11:22
Uschi skrifaði:
Really really nice ... love this one
05.06.2020 - 20:30
Cobblestone Sweater#cobblestonesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með háum kraga úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með röndum í áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-19 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 110 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 13,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 13. og 14. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp þar til klaufin hefur verið gerð til loka. Síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón upp að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp þar sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjón. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður hár kragi í stroffprjóni. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 55-59-65-69-75-83 lykkjur á hringprjón 7 með Snow. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN fyrir klauf – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni fyrir klauf. Prjónið alls 4 umferðir í stroffprjóni þannig: Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13 cm, endar klaufin. Geymið stykkið og prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Fitjið upp jafn margar lykkjur eins og á framstykki og prjónið alveg eins og framstykki þar til stykkið mælist 13 cm. Setjið nú lykkjur af framstykki inn á sama hringprjón 8 og bakstykki = 110-118-130-138-150-166 lykkjur í umferð. Prjónið síðan fram- og bakstykki hringinn eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, í skiptinguna á milli framstykkis og bakstykki. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í stykkinu. Haldið áfram með A.1 eins og áður, en prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN yfir miðju 6 lykkjurnar í hvorri hlið (yfir klauf). Þegar þessar 4 umferðir í garðaprjóni hafa verið prjónaðar til loka, haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 28-28-29-29-30-30 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, en stillið af að lykkjum sé fækkað í einingu í sléttprjóni í A.1 og að fækkað sé um 4 lykkjur á framstykki og 4 lykkjur á bakstykki = 102-110-122-130-142-158 lykkjur í umferð. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist ca 32-32-33-33-34-34 cm = 94-102-114-122-134-150 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist ca 38-38-39-39-40-40 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, en stillið af að lykkjur séu auknar út í einingu í sléttprjóni í A.1 og að aukið sé út um 2 lykkjur á framstykki og 2 lykkjur á bakstykki = 98-106-118-126-138-154 lykkjur í umferð. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 42-42-44-44-46-46 cm = 102-110-122-130-142-158 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 3-4-5-6-8-11 lykkjur á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 6-8-10-12-16-22 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 3-4-5-6-8-11 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, fellið af 6-8-10-12-16-22 lykkjur og prjónið eins og áður út umferðina. Framstykkið og bakstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 45-47-51-53-55-57 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 58-60-61-63-64-66 cm, setjið miðju 9-9-9-11-11-11 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3 sinnum = 13-14-16-16-17-18 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: = 45-47-51-53-55-57 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 17-17-17-19-19-19 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Fitjið upp 38-40-42-44-46-48 lykkjur á sokkaprjóna 7 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út. Prjónið A.1 hringinn. Þegar stykkið mælist 34-33-32-32-30-27 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4 cm millibili alls 4 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 50-49-48-48-46-43 cm, prjónið afgang af ermi (þ.e.a.s. ermakúpa) fram og til baka á hringprjón til loka máls. Þegar prjónaðir hafa verið ½-1-2-3-5-7 cm frá skiptingu fyrir ermakúpu, prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka þar sem felldar eru af 5 lykkjur í byrjun á hverri einni af þessum 4 umferðum. Fellið af þær 22-24-26-28-30-32 lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 53 cm í öllum stærðum ofan frá og niður og það er op/klauf efst á ermi ca 3-4-5-5-7-10 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpu við handveg og saumið opið/klauf efst á ermi við botn á handveg – sjá teikningu HÁR KRAGI: Byrjið við öxl í annarri hlið á stykki og prjónið upp ca 46 til 52 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan), á stuttan hringprjón 7 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10-10-11-11-12-12 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cobblestonesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.