MJ skrifaði:
Are these measurements IN INCHES TRULY accurate??? OR is this cardigan meant to be for CHILDREN? Chest measurements: 48-52-56-61-67-73 cm = 19"-20 1/2"-22"-24"-26 3/8"-28 3/4" Also, the schematic is NOT for a cardigan, as the photo shows.
24.09.2020 - 22:44
Mary Chen skrifaði:
Is this knitting pattern available? I like the style.
07.06.2020 - 07:37
Ilovedogs skrifaði:
Molto facile da indossare
05.06.2020 - 10:38
Jocelyne Briere Morin skrifaði:
C’est un modèle simple qui fait bien à tout le monde grosse ou petite...jeune ou d’un certain âge.
04.06.2020 - 16:59
Country Muse Cardigan#countrymusecardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og axlarsæti. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-39 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 3,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. og 4. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við 26-26-26-30-30-30 axlalykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ATH: Fjöldi axlalykkja verðu sá sami – útauknar lykkjur eru taldar með í framstykki og bakstykki. Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Byrjið 4 lykkjur á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni fast uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Sláið 1 sinni fast uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni fast uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu á ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu! Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúinn til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri). ÚTAUKNING-3 (á við um útaukningu á berustykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, prjónið lykkjuna með prjónamerki í sléttprjóni eins og áður, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við lykkju með prjónamerki í). Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-4 (á við um útaukningu í hliðum á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við merkiþráðinn). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um úrtöku mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist 2 cm frá uppfitjunarkanti. Fellt er af fyrir næsta hnappagati þegar kantur í hálsmáli mælist 7 cm frá uppfitjunarkanti. Þessi 2 hnappagöt eiga nú að passa beint yfir hvort annað þegar kanturinn í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-8-8-8½ cm millibili. LEIÐBEININGAR (á við um stroff neðst á fram- og bakstykki): Stroffið er prjónað með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur eins og útskýrt er í uppskrift og með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. Ef þú vilt að 4 lykkjur brugðið (séð frá réttu) frá A.1 eigi að halda áfram alveg niður að stroffi, verður þú að stilla þetta af þegar lykkjur eru auknar út jafnt yfir áður en stroffið er prjónað. Passið uppá að prjóna 2 lykkjur slétt hvoru megin við 4 lykkjur brugðið. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Lima. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 9 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 26-26-30-38-38-42 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 130-134-142-154-158-166 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantlykkjur að framan eru prjónaðar slétt). Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki á eftir kanti að framan í byrjun á umferð mitt að framan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Setjið að auki 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Það á að nota þessi prjónamerki þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerki verða að hafa annan lit en prjónamerki við háls til að aðgreina þau frá hvert öðru. Byrjið mitt að framan, teljið 22-23-25-26-27-29 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= öxl), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 34-36-40-42-44-48 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= öxl), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 22-23-25-26-27-29 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er prjónað í sléttprjóni á bakstykki og framstykki með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.1 yfir 26-26-26-30-30-30 lykkjur á hvorri öxl (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerki og á milli 3. og 4. prjónamerki) – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út 2 lykkjur á UNDAN 1. og 3. prjónamerki (þ.e.a.s. á undan A.1) og aukið út um 2 lykkjur á EFTIR 2. og 4. prjónamerki (þ.e.a.s. á eftir A.1) – sjá ÚTAUKNING-1. Munið eftir að nú er bara aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-12-13-14-16-17 sinnum = 210-230-246-266-286-302 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-9-10-11-12-13 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Færið 4 prjónamerki frá útaukningu fyrir axlarsæti, þannig að þau sitja hvoru megin við miðju 18-18-18-22-22-22 lykkjum í A.1 á hvorri öxl – sjá ör í A.1. Haldið svona áfram í sléttprjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.1 yfir A.1 eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Munið eftir að auka nú bara út á ermum og fjöldi lykkja í A.1 eykst, en fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami – útauknar lykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu og brugðið frá röngu. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 15-16-16-18-19-19 sinnum = 270-294-310-338-362-378 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 11-12-12-13-14-14 cm frá þar sem útaukning fyrir ermum byrjaði. Aukið síðan út fyrir BERUSTYKKI eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjum sitji í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 46-48-48-56-58-58 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, og 4 lykkjur brugðið (séð frá réttu) frá A.1 sem halda áfram niður meðfram framstykki og bakstykki eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-7-7-8 sinnum = 310-334-358-394-418-442 lykkjur. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem útaukning fyrir ermar byrjaði á eftir útaukningu fyrir axlarsæti. Stykkið mælist nú ca 24-26-28-30-32-34 cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 50-54-57-62-67-72 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-114-124-134 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 50-54-57-62-67-72 lykkjur eins og áður (= framstykki). Takið frá öll eldri prjónamerki! Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-218-234-254-278-302 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð 53-57-61-66-72-78 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 96-104-112-122-134-146 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota þá síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og 4 lykkjur brugðið (séð frá réttu) frá A.1 sem heldur áfram niður meðfram framstykki og bakstykki eins og áður. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – sjá ÚTAUKNING-4 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 214-230-246-266-290-314 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 23-23-23-22-22-22 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni) og aukið JAFNFRAMT ÚT UM 50-54-58-66-70-78 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 264-284-304-332-360-392 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu – sjá LEIÐBEININGAR: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-64-70-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-90-94 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 7-8-11-14-15-16 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-35-33-32-31-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-41-39-38-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli tvöfalt inn að röngu á stykki. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, þá er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur – passið uppá að hnappagötin 2 í kanti í hálsmáli sé yfir hvoru öðru. Saumið saman opið við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #countrymusecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.