Barbara skrifaði:
Buongiorno, ho finito il maglione che è venuto benissimo. Ma il collo è troppo stretto e non fa l’effetto a cratere. Posso disfarlo dall’alto e rifarlo con Ferri più grossi? Grazie
31.01.2022 - 12:31DROPS Design svaraði:
Buonasera Barbara, può apportare le modifiche che desidera al modello. Buon lavoro!
31.01.2022 - 23:31
Mel skrifaði:
There are 46-48-48-56-58-58 stitches between the marker-stitches on each sleeve.\r\nAT THE SAME TIME on the next round increase 8 stitches for yoke as follows:\r\nIncrease 1 stitch on each side of the 4 marker-stitches – Increase like this every 2nd round a total of 5-5-6-7-7-8 times\r\nplace the next 60-64-70-78-80-82 stitches on 1 thread for the sleeve\r\nsince it appears that all the created stitches go into the sleeve, these numbers dont add up correctly.
31.12.2021 - 01:18DROPS Design svaraði:
Dear Mel, some of the stitches on the sleeve will be worked for the body, divide piece as stated to get the correct measurements as in the chart. Happy knitting!
03.01.2022 - 14:23
Christiane skrifaði:
Sauf que dans la vidéo, à 1:35, c'est une augmentation APRÈS le marqueur, et non avant. Je persiste : à mon avis, ce que dit le modèle et ce que dit la vidéo sont en contradiction. Car augmentation manche : on augmente APRÈS le 1er marqueur, et AVANT le marqueur suivant (2ème), le nb de mailles dos et devant restant constant.
04.10.2021 - 09:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Christiane, en fait la vidéo est exacte, c'est le texte qui accompagne la vidéo qui doit être corrigé :) merci pour votre retour et insistance, les explications du modèle sont correctes telles quelles; Bon tricot!
04.10.2021 - 15:18
Christiane skrifaði:
AUGMENTATIONS-2: contradiction entre tuto vidéo et explication du modèle. Qui a raison, le tuto ou le modèle ? Selon tuto vidéo: … relever le fil entre 2 mailles du rang précédent, de l'avant vers l'arrière et tricoter la maille à l'endroit, dans le brin arrière … APRÈS le marqueur : … relever le fil entre 2 mailles du rang précédent, de l'arrière vers l'avant et tricoter la maille à l'endroit, dans le brin avant …
02.10.2021 - 14:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Christiane, dans cette vidéo, on augmente bien avant le marqueur (ex 1:35) en relevant le fil de l'arrière vers l'avant pour le tricoter dans le brin avant et on augmente après le marqueur (ex. 2:06) en relevant le fil de l'avant vers l'arrière pour le tricoter dans le brin arrière - ou bien ai-je mal compris votre question?
04.10.2021 - 08:02
Sarah Kring skrifaði:
Hi, I am just starting out on this pattern. The pattern is easy to follow etc. Now I haven't knitted this far but for the amount of sts - I cannot make it go up. You start with 100 + 32= 132 then you increase by 4 a total off 13 times (4x13=52) that gives a total of 184 sts before starting the sleeve increase no? But the pattern says 236 sts (52 more sts?) Please let me know if I missed something? Thanks
22.09.2021 - 04:31DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Kring, you should increase 8 sts and not only 4 , see INCREASE TIP-1 (saddle shoulder increase):, ie 132 sts + (8 x 13) = 236 sts. Happy knitting!
22.09.2021 - 07:47
Jardé skrifaði:
En vous donnant le nom du modèle est il possible d'avoir les explications en XS c'est à dire 34-36 ? Merci
19.04.2021 - 17:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Jardé, Nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. Vous pouvez vous inspirer d'un modèle analogue et de même tension disponible en XS à l'aide des mesures . Votre magasin saura vous aider, même par mail ou téléphone, pour toute assistance complémentaire. Merci pour votre compréhension.
20.04.2021 - 07:12
Jardé skrifaði:
Je remarque que quasiment tous vos modèles commencent à partir du S qui correspond à un 36-38.... Ce serait bien d'avoir le choix du XS..Merci bien .
08.04.2021 - 09:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Jardé, effectivement, la majorité de nos modèles commence en S, nous en avons toutefois certains en XS. Bon tricot!
08.04.2021 - 15:42
Maria skrifaði:
Hola! Tengo una duda en el aumento del canesu, ya que dice que tengo que mover los marcadores a la zona más externa de las mangas, pero no me calzan la cantidad de puntos que deben haber entre los marcadores. Tejiendo la talla S dice que deberían haber 46 puntos, pero tengo 56 puntos (26 de A1 más los 30 puntos de los aumentos de mangas, que se aumentaban 2 puntos por 15 veces). Entonces no entiendo donde poner los marcadores y los 10 puntos extra. Entendí algo mal?
27.01.2021 - 05:23
FIORENZA skrifaði:
Buonasera. Dopo gli aumenti delle maniche mi trovo con 92+92 maglie x davanti +dietro, 58+58 per le maniche +tot 16 maglie rovescio di A1 ovvero tot. 316 maglie. Non capisco perché agli aumenti x lo sprone si parla di 48 m. da tenere tra i segnapunti delle maniche e sembra che dal conteggio totale restino escluse le 16 maglie rovesce. Dove sbaglio? Molte grazie se mi aiutate!
05.01.2021 - 00:05DROPS Design svaraði:
Buongiorno Fiorenza, i segnapunti vanno spostati per essere posizionati al limite delle maniche e in modo da avere 48 maglie per le maniche. Se non abbiamo risposto alla sua domanda provi a spiegarcelo in modo più chiaro. Buon lavoro!
05.01.2021 - 11:17
Kimberly Robles skrifaði:
Efficiently written information. It will be profitable to anybody who utilizes it, counting me. Keep up the good work. I'm looking forward for more posts. Thanks Workmanship
02.01.2021 - 11:56
Country Muse#countrymusesweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og axlarsæti. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-40 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 28) = 3,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. og 4. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti): Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við 26-26-26-30-30-30 axlalykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ATH: Fjöldi axlalykkja verðu sá sami – útauknar lykkjur eru taldar með í framstykki og bakstykki. Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Byrjið 4 lykkjur á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni fast uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Sláið 1 sinni fast uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni fast uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu á ermum): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúinn til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri). ÚTAUKNING-3 (á við um útaukningu á berustykki): Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, prjónið lykkjuna með prjónamerki í sléttprjóni eins og áður, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við lykkju með prjónamerki í). Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-4 (á við um útaukningu í hliðum á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við merkiþráðinn). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um úrtöku mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 2,5 með Lima. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-32-40-40-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 120-124-132-144-148-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Setjið að auki 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Það á að nota þessi prjónamerki þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerki verða að hafa annan lit en prjónamerki við hálsmál til að aðgreina þau frá hvert öðru. Byrjið mitt að aftan, teljið 17-18-20-21-22-24 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= öxl), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 34-36-40-42-44-48 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= öxl), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 17-18-20-21-22-24 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er prjónað í sléttprjóni á bakstykki og framstykki og A.1 yfir 26-26-26-30-30-30 lykkjur á hvorri öxl (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerki og á milli 3. og 4. prjónamerki). JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út 2 lykkjur á UNDAN 1. og 3. prjónamerki (þ.e.a.s. á undan A.1) og aukið út um 2 lykkjur á EFTIR 2. og 4. prjónamerki (þ.e.a.s. á eftir A.1) – sjá ÚTAUKNING-1. Munið eftir að nú er bara aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í annarri hverri umferð alls 10-12-13-14-16-17 sinnum = 200-220-236-256-276-292 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-9-10-11-12-13 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Færið 4 prjónamerki frá útaukningu fyrir axlarsæti, þannig að þau sitja hvoru megin við miðju 18-18-18-22-22-22 lykkjum í A.1 á hvorri öxl – sjá ör í A.1. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1 yfir A.1 eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Munið eftir að auka nú bara út á ermum og fjöldi lykkja í A.1 eykst, en fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-16-16-18-19-19 sinnum = 260-284-300-328-352-368 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 11-12-12-13-14-14 cm frá þar sem útaukning fyrir ermum byrjaði. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjum sitji í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 46-48-48-56-58-58 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, og 4 lykkjur brugðið frá A.1 sem eiga að halda áfram niður meðfram bakstykki og framstykki eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-5-6-7-7-8 sinnum = 300-324-348-384-408-432 lykkjur. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem útaukning fyrir ermar byrjaði á eftir útaukningu fyrir axlarsæti. Stykkið mælist nú ca 24-26-28-30-32-34 cm frá prjónamerki við háls. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 45-49-52-57-62-67 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-114-124-134 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 45-49-52-57-62-67 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki). Klippið frá og takið frá öll eldri prjónamerki! Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-208-224-244-268-292 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota þá síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Byrjið umferð við merkiþráðinn í annarri hlið á stykki og prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – sjá ÚTAUKNING-4 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 204-220-236-256-280-304 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 23-23-23-22-22-22 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 48-52-56-64-68-76 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 252-272-292-320-348-380 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-64-70-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-90-94 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 7-8-11-14-15-16 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-35-33-32-31-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-41-39-38-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli tvöfalt inn að röngu á stykki. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, þá er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #countrymusesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.