DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 5 frábærum garntegundum!
Product image DROPS Merino Extra Fine yarn
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Baby 33-21

#readytoplayromper

DROPS Design: Mynstur me-065-by
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 - 24 mánaða
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 - 92

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-150-150-200 g litur 37, skýjaskógur

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 40 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 2 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.1 og fækkið lykkjum þannig: 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkjurnar í A.1, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GALLI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 hlutum neðan frá og upp að klofi. Síðan er stykkið prjónað í hring áður en það skiptist við mitti og framstykkið er prjónað til loka fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 14-16-18-20 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine og prjónið sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar, alls 9-9-9-10 sinnum í hvorri hlið = 50-52-54-60 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 6-6-6-7 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykki.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 14-16-18-20 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine og prjónið sléttprjón fram og til baka í 5-5-5-6 cm.
STÆRÐ 1/3 mánaða - 6/9 mánaða - 12/18 mánaða: Nú eru fitjaðar upp 6 nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar alls 3 sinnum í hvorri hlið.
STÆRÐ 24 mánaða: Fitjið upp 6 nýjar lykkjur í hvorri hlið í lok hverrar umferðar 2 sinnum, síðan 8 nýjar lykkjur í hvorri hlið 1 sinni = 50-52-54-60 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 7-7-7-8 cm.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur frá fram- og bakstykki á sama hringprjón = 100-104-108-120 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 50-52-54-60 lykkjur á milli prjónamerkja) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan þannig – byrjun á umferð á að vera 8 lykkjur á undan fyrsta prjónamerki: Prjónið A.1 (= 16 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 34-36-38-44 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 16 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 34-36-38-44 lykkjur sléttprjón. Prjónamerki situr mitt í A.1 í hvorri hlið.

Haldið áfram með þetta mynstur hringinn. Þegar stykkið mælist 2-3-5-7 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði A.1 – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 84-88-92-104 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 10-11-14-16 cm frá prjónamerki (stykkið mælist ca 17-18-21-24 cm frá uppfitjunarkanti) prjónið upphækkun að aftan þannig: Prjónið slétt yfir slétt og A.1 yfir A.1 eins og áður yfir fyrstu 58-60-62-68 lykkjur, þ.e.a.s. fram eftir seinni einingu af A.1 (= framstykki), prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan A.1 í byrjun á umferð, snúið og prjónið brugðnar lykkjur til baka þar til 5 lykkjur eru eftir á undan A.1 í hinni hliðinni, snúið stykki. Prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan A.1, snúið stykkinu og prjónið brugðnar lykkjur til baka þar til 10 lykkjur eru eftir á undan A.1 í hinni hliðinni. Snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur til baka mitt í fyrsta A.1.

Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð eins og áður yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju á milli hverra A.1 = 86-90-94-106 lykkjur – ATH: Til að koma í veg fyrir göt þegar snúið er við er lykkjan sótt upp á milli 2 lykkja og prjónað er snúið slétt saman með næstu lykkju á prjóni. Prjónið næstu umferð þannig: Haldið áfram með A.2 yfir fyrstu 8 lykkjur (= passið uppá að byrja á sömu umferð eins og prjóna eigi í A.1), prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið yfir næstu 27-29-31-37 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 8 lykkjur (= passið uppá að byrja á sömu umferð eins og prjóna eigi í A.1), prjónið stroff 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt yfir næstu 43-45-47-53 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 1 ½ cm prjónið gataumferð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 8 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* yfir næstu 24-28-28-36 lykkjur, prjónið 10-8-10-8 lykkjur eins og áður, prjónið 1 lykkju brugðið, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* yfir næstu 40-44-44-52 lykkjur, prjónið 2-0-2-0 lykkjur eins og áður. Haldið síðan áfram með mynstur og stroff eins og áður, þar til eftir er 1 umferð þar til stroffið mælist 3 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 43-45-47-53 lykkjur (= framstykki), fellið LAUST af næstu 43-45-47-53 lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (= bakstykki).

FRAMSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.2 yfir fyrstu 8 lykkjur í umferð, 27-29-31-37 lykkjur sléttprjón, A.3 yfir síðustu 8 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram fram og til baka. JAFNFRAMT eftir 1-0-0-1 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri-4.-6.-6. hverri umferð alls 7-7-6-6 sinnum = 29-31-35-41 lykkjur eftir í umferð. Þegar stykkið mælist 7-9-11-12 cm frá prjónamerki – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið 6 umferðir með A.4 yfir lykkjur á milli A.2 og A.3 í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 lykkjur (= A.2) og setjið þessar lykkjur á þráð fyrir axlaband, fellið af næstu 13-15-19-25 lykkjur og prjónið síðustu 8 lykkjur (= A.3, axlaband).

AXLABAND:
Haldið áfram með A.3 fram og til baka þar til bandið mælist ca 18 til 24 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af. Haldið áfram með A.2 fram og til baka þar til hitt bandið mælist ca 18 til 24 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af.

FRÁGANGUR:

STROFFKANTUR:
Prjónið upp frá réttu ca 50 til 58 lykkjur meðfram opið á annarri skálminni á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 58-62-66-70 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar kanturinn mælist 2-4 cm fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Endurtakið meðfram hinni skálminni.

Saumið saman op á milli skálma innan við 1 kantlykkju – þ.e.a.s. saumið saman annan stroffkantinn, síðan er saumurinn saumaður á milli skálma og að lokum er hinn stroffkanturinn saumaður.

Saumið tölu neðst í hvort axlabandið. Tölum er hneppt í gegnum göt í gataumferð í stroffi.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði Merino Extra Fine ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur. Hnýtið einn hnút í hvorn enda. Byrjið mitt að framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð í stroffi í mitti.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.09.2020
FRAM- OG BAKSTYKKI:.Þegar stykkið mælist 1 ½ cm prjónið gataumferð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 8 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* yfir næstu 24-28-28-36 lykkjur, prjónið 10-8-10-8 lykkjur eins og áður, prjónið 1 lykkju brugðið, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* yfir næstu 40-44-44-52 lykkjur,
Yfirfarið á vefsvæði: 05.10.2020
Leiðrétting: Undir fram- og bakstykki hefur verið gerð leiðrétting í útskýringu hvernig á að prjóna upphækkun að aftan

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS Baby 33-21
Diagram for DROPS Baby 33-21
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Sandra skrifaði:

Wie wird die Erhöhung hinten gearbeitet? Laut Beschreibung wird der Abschnitt für die Erhöhung um 30 M (2x5 M und 2x10 M vor den A1) verringert. Die hintere Mitte besteht bei mir (kleinste Größe) allerdings nur noch aus 26 Maschen zwischen beiden A1 -> wende ich nach der linke Rückreihe, um 10 M übrig zu lassen, habe ich nur noch 6 M auf der Nadel, obwohl hier 10 M vor dem A1 vor dem nächsten Wenden stehen sollten, um dann noch zur Mitte zwischen beiden A1 zu kommen.

17.02.2021 - 17:10

country flag Susanne Lövmark Ek skrifaði:

Byt till rundsticka 3 och sticka 1 varv som förut över alla maskor, (Då är jag ju på avigan av bakstycket om det bara är bakstycket jag ska sticka detta "varv" på?)SAMTIDIGT som det ökas 1 maska mellan varje A.1 = 86-90-94-106 maskor – OBS: För att undvika hål vid varje vändning hämtas öglan mellan 2 maskor upp och stickas vridet räta (Men i och med det står RÄTA så antar jag det är på räta sidan jag är?!)tillsammans med nästa maska på stickan. 

16.02.2021 - 21:07

country flag Susanne Lövmark Ek skrifaði:

Det står ingenstans att varvet ska börja 8 m före markören dräkten VÄNSTRA sida. Jag har börjat på motsatt sida. Det ställer ju till det för mig nu när jag ska börja med höjningen bak. Hur tycker ni jag ska göra? Kan jag bara sticka ett extra varv på bakstycket och sedan låtsas starta om varvet på vänstra sidan så jag kan läsa mönstret rätt

14.02.2021 - 14:00

country flag Lone skrifaði:

Der står skift til rund pind 3 og strik en omgang som før, det var jo kun over bagstk og ikke en hel omgang ligeledes står der at der tages 1 maske ud mellem hver A1 Kan i beskrive det på en anden måde så jeg kan finde ud af det. På forhånd tak.

01.02.2021 - 17:40

DROPS Design svaraði:

Hej Lone, Hvor langt er du kommet i opskriften. Er det evt lettere at forstå hvis vi skrive strik en omgang/pind som før?

05.02.2021 - 14:59

country flag Charlotte skrifaði:

Bonjour, quel fil d’été recommandez vous à la place de mérinos extrafine pour ce modèle ? Muskat est possible ? Ou coton mérino ? Merci ☺️

28.12.2020 - 08:00

DROPS Design svaraði:

Bonjour Charlotte! Toutes les deux sont possibles. Pour plus d’options essayez notre convertisseur ICI. Comment remplacer un fil ou une quantité vous trouverez ICI. Bon tricot!

28.12.2020 - 09:11

country flag Pia Larsen skrifaði:

Ang. forhøjning bagpå. I skriver: skift til rundpind 3 og strik 1 omgang som før over alle masker. Hvad betyder det? Så skriver I OBS. For at undgå hul.... hentes løkken op....... henviser I her til at jeg skulle gøre det, da jeg lavede den tidligere forhøjning? Mvh Pia

07.12.2020 - 19:39

DROPS Design svaraði:

Hej Pia, nej det skal du gøre på denne omgang du er kommet til, over hver af de huller du har fået ved tidligere vendinger. God fornøjelse!

10.12.2020 - 15:44

country flag Kim skrifaði:

Une fois qu'on a fini le dos et qu'on le met en attente pour faire le devant, est-ce qu'on doit couper le fil pour commencer le devant ?

19.11.2020 - 15:44

DROPS Design svaraði:

Bonjour Kim, tout à fait, coupez le fil à la fin du dos, tricotez le devant et, à la fin du devant, vous glisserez les mailles du dos sur la même aiguille que celles du devant. Bon tricot!

19.11.2020 - 16:02

country flag Kjersti skrifaði:

Nå ser jeg feilen jeg gjorde. Jeg la ut på forstykket som på bakstykket - og så la jeg opp 6x3 i hver i hver side. Det var dumt!! Men det er bare å rekke opp og starte på nytt det! Det fine med å rekke opp, er at man har strikketøyet mye lenger😜

19.11.2020 - 13:44

country flag Kjersti skrifaði:

Hvorfor er ikke de 36 maskene som er lagt ut i sidene tatt med i tellingen når man har startet på Bolen?

18.11.2020 - 09:56

DROPS Design svaraði:

Hei Kjersti, Du har 50-52-54-60 masker på bakstykket og det samme på forstykket. Dette blir til sammen 100-104-108-120 masker på bolen. God fornøyelse!

18.11.2020 - 10:19

country flag Kim skrifaði:

Je voudrais savoir comment je peux faire pour changer de couleur dans mon tricot ? Car je veux faire les motifs A1-A2-A3 (de chaque coter de l'ouvrage) d'une autre couleur et je ne sais pas comment faire. Pouvez vous m'aider svp ?

15.11.2020 - 11:34

DROPS Design svaraði:

Bonjour Kim, il vous faudra probablement modifier les explications pour les tricoter séparément, car quand on tricote en rond, on ne peut pas tricoter des zones aussi larges d'une seule couleur - vous trouverez ici quelques pistes pour vous aider à adapter ce modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

16.11.2020 - 08:52