DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8844.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 216-5

#highlandhomecoming

DROPS Design: Mynstur ai-308
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL – XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-500-550 g litur 10, þoka

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60 cm eða 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8844.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

STROFF (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (= frá réttu): * Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 3 (= frá réttu): * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*.
Endurtakið umferð 2 og 3.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum. Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig og saumað saman í lokin.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna í sléttprjóni. Kantur í hálsmáli er prjónaður í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 79-83-91-103-107-115-123 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – þar til 1 lykkja er eftir (þ.e.a.s. stroffið byrjar og endið með 1 lykkju slétt), endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið síðan stroff frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 þar til eftir eru 2 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón
Haldið áfram með þetta mynstur á hæðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm, fellið af fyrstu 4 lykkjurnar fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 71-75-83-95-99-107-115 lykkjur.
Úrtöku fyrir handveg er nú lokið í stærð XS, S og M, en haldið svona áfram í hinum stærðum:
STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Haldið áfram með mynstur eins og áður og fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4-4-6-6 sinnum = 87-91-95-103 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
= 71-75-83-87-91-95-103 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður.
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 29-29-29-33-33-33-37 lykkjur af fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 21-23-27-27-29-31-33 lykkjur eftir á hvorri öxl).

HÆGRI ÖXL:
Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli þannig:
Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið mynstur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju garðaprjón.
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 19-21-25-25-27-29-31 lykkjur.
Prjónið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING!

VINSTRI ÖXL:
Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli þannig:
Prjónið 1 lykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður og endið með 1 lykkju garðaprjón.
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 19-21-25-25-27-29-31 lykkjur.
Prjónið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 79-83-91-103-107-115-123 lykkjur og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35-36 cm.
Fækkið nú lykkjum fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, mynstur eins og áður yfir næstu 38-40-44-50-52-56-60 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og setjið á þráð fyrir v-hálsmáli, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 38-40-44-50-52-56-60 lykkjur og endið með 1 kantlykkju garðaprjón = 39-41-45-51-53-57-61 lykkjur á hvorri öxl.
Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
Prjónið síðan áfram með mynstur eins og áður til loka (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Nú heldur úrtaka áfram fyrir hálsmáli JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg eins og á bakstykki þannig:

V-HÁLSMÁL:
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig:
Prjónið 1 lykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur út umferðina eins og áður.
Fækkið lykkjum svona til skiptis í annarri hverri umferð og í 4. hverri umferð alls 16-16-16-18-18-18-20 sinnum.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 4 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu fyrir handveg.
Úrtöku fyrir handveg er nú lokið í stærð XS, S og M, en heldur áfram í hinum stærðum þannig:
STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað áfram fyrir handveg þannig:
Prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Haldið áfram með mynstur eins og áður og fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu alls 4-4-6-6 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg er lokið, eru 19-21-25-25-27-29-31 lykkjur eftir á öxl.
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING.

VINSTRI ÖXL:
= 39-41-45-51-53-57-61 lykkjur.
Prjónið síðan áfram með mynstur eins og áður til loka (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Nú heldur úrtaka áfram fyrir hálsmáli JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg þannig:

V-HÁLSMÁLI:
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju garðaprjón.
Fækkið lykkjum til skiptist í annarri hverri umferð í 4. hverri umferð alls 16-16-16-18-18-18-20 sinnum.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 4 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu fyrir handveg.
Úrtöku fyrir handveg er nú lokið í stærð XS, S og M, en heldur áfram í hinum stærðum þannig:
STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður út umferðina.
Haldið áfram með mynstur eins og áður og fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu alls 4-4-6-6 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg er lokið, eru 19-21-25-25-27-29-31 lykkjur eftir á öxl.
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING!

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 42-44-46-48-52-54-54 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan STROFF (eins og útskýrt er að ofan) með byrjun frá réttu, með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki.
Þegar stroffið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið 40-42-44-46-50-52-52 lykkjur slétt á meðan fækkað er um 6-6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir, endið með 1 kantlykkju garðaprjón = 36-38-40-42-44-46-46 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki.
Þegar ermin mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING!
Aukið svona út með 5-4½-4-4-3½-3-2½ cm millibili alls 8-9-10-10-11-12-13 sinnum = 52-56-60-62-66-70-72 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-47-46-46-45-45-44 cm alls. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkið merkir hvar botninn á handveg byrjar.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar ermin mælist 50-50-49-49-48-48-47 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.
Saumið ermar í og saumið botn á handveg – prjónamerkin sem sett voru í ermar eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki.
Saumið hliðarsauma og ermasauma í eitt innan við 1 kantlykkju garðaprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.
Prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju frá réttu á hringprjón 4,5 með Air þannig:
Byrjið mitt að aftan. Prjónið upp ca 46 til 60 lykkjur fram að lykkju sem sett var á þráð mitt að framan (stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2), setjið lykkju af þræði á prjóninn og prjónið þessa lykkju slétt (= miðjulykkja á framstykki), prjónið upp 1 lykkju fleiri en á vinstri hlið að miðju að aftan (þ.e.a.s. lykkjufjöldinn er deilanlegur með 2 + 1, þ.e.a.s. ca 47 til 61 lykkjur) = ca 94 til122 lykkjur.
Passið uppá að lykkjur sem prjónaðar eru upp herði ekki á stykki/verði ekki of lausar í hálsi, prjónið e.t.v. upp fleiri/færri lykkjur hvoru megin við miðjulykkju.
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju (þ.e.a.s. sléttri lykkju frá þræði mitt að framan).
Prjónið A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju með prjónamerki, prjónið A.3 yfir næstu 14 lykkjur, prjónið A.2 yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Haldið svona áfram hringinn.
Þegar lykkjum er fækkað svona, þá kemur slétta lykkjan mitt í v-hálsmáli á framstykki að vera allan tímann í sléttri línu.
Prjónið og fækkið lykkjum svona þar til kantur í hálsmáli mælist ca 6 cm í prjónstefnu.
Fellið af með sléttum lykkjum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2020
Leiðrétting: Mynsturteikning fyrir mynstur og v-hálsmál hefur verið bætt við í uppskrift. Textinn hefur verið uppfærður samkvæmt mynsturteikningu

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið
prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman = prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman
lyftið næstu 2 lykkjum og uppslættinum sem tilheyrir af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum og tilheyrandi uppslætti yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri) = lyftið næstu 2 lykkjum og uppslættinum sem tilheyrir af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum og tilheyrandi uppslætti yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri)
Diagram for DROPS 216-5
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #highlandhomecoming eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Ebba skrifaði:

Hej, jag tänkte sticka en tröja där det rekommenderade garnet är ett garn från garngrupp C. Jag vill däremot göra en tröja med ett tjockare garn från garngrupp E. Går det på något sätt att anpassa så jag kan följa samma mönster men med ett tjockare garn? Och i så fall hur anpassar jag mönstret till det?

01.09.2021 - 08:52

DROPS Design svaraði:

Hei Ebba. Alle mål til denne genseren er for garn i garngruppe C, garn fra garngruppe E vil ikke passe og design avd har dessverre ikke muligheten til å omregne maskeantall, mål på målskisse og garnmengde m.m. enn hva genseren er skrevet for. mvh DROPS design

06.09.2021 - 13:38

country flag DOMINIQUE AMBROSET skrifaði:

Bonjour pour le col la maille du milieu en attente, est elle comptée dans le relevé des mailles de gauche ou de droite ou est elle comptée en plus des mailles relevées car moi je ne tombe jamais juste par exemple je relève 40 mailles à gauche qui est divisible par deux et 41 mailles à droite car il faut une maille en plus, la maille fait partie des mailles relevées ou alors est que cela fait 40 +41 +1 la maille du milieu Merci pour votre réponse Mme AMBROSET

23.04.2021 - 15:54

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ambroset, le nombre de mailles total doit être multiple de 2 ; ajustez si besoin le nombre de mailles au 1er rang en ajoutant des augmentations/diminutions; Cette vidéo montre ensuite comment tricoter le col en suivant les diagrammes A.2 et A.3. Bon tricot!

26.04.2021 - 07:07

country flag AMBROSET DOMINIQUE skrifaði:

Bonjour je ne comprends pas pour faire le col, il faut relever les mailles en commençant par le milieu du dos ensuite relever les mailles pour le col devant gauche et devant droit et ensuite que fait-on des mailles restantes du dos, vous ne dites rien sur le modèle Ensuite les diminutions je ne comprends Merci par avance Mme AMBROSET

04.02.2021 - 13:36

country flag AMBROSET DOMINIQue skrifaði:

Bonjour je ne comprends pas les explications du col, il faut relever des mailles en commençant par le milieu du dos ensuite relever le col devant, et le reste des mailles du dos que fait-on Ensuite les diminutions je ne vois pas comment faire ? Mme AMBROSET

04.02.2021 - 13:32

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ambroset, cette vidéo montre comment relever les mailles du col et comment diminuer au milieu devant, en suivant le diagramme. En espérant que ceci puisse vous aider. Bon tricot!

04.02.2021 - 15:18

country flag DOMINIQUE AMBROSET skrifaði:

Bonjour

04.02.2021 - 08:54

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ambroset, votre question semble de pas avoir été enregistrée, voulez-vous la poser à nouveau? Merci!

04.02.2021 - 09:46

country flag Maria skrifaði:

Hello, what exactly do you mean when you say " decrease like this on the 2nd and 4th row" for the V neck? Decrease on 2nd row RS and then work 3 rows and decrease again on the 4th RS? In the video the decrease is every second row from RS. Thank you

19.11.2020 - 13:49

DROPS Design svaraði:

Dear Maria, you decrease first *on 2nd row from RS then work 3 rows and increase on next row* and repeat from *-*. Hope this helps, happy knitting!

19.11.2020 - 15:52

country flag Cynthia skrifaði:

Bij benodigdheden zie ik 2x breinaalden zonder knop staan, maar in de beschrijving van het patroon zie ik deze nergens terugkomen. Waar moet ik deze gebruiken?

13.11.2020 - 18:30

DROPS Design svaraði:

Dag Cynthia,

Je hebt inderdaad gelijk. Ik denk dat de naalden zonder knop voor de boord van de mouw bedoeld was.

18.11.2020 - 12:49

country flag Heli skrifaði:

Ohjeen korjaukset ja piirrokset eivät tulostu suomenkieliseen ohjeeseen.

08.11.2020 - 20:53

country flag Christine skrifaði:

Ja, jeg strikker ærmerne frem og tilbage og har kantmasker. Det er jo samme metode som på forstykke og bagstykke, men der er maskeantallet ULIGE. På ærmerne er det LIGE maskeantal, og så går mønsteret ikke op. Jeg har løst det for mig - jeg har taget en maske mindre, og så går det. Tænkte bare at det er en fejl.

26.10.2020 - 15:37

DROPS Design svaraði:

Hej Christine, fint at du har løst det. Rigtig god fornøjelse!

24.11.2020 - 14:45

country flag Christine skrifaði:

Er det ikke en fejl at der slås et lige antal masker op til ærmerne? Så kan jeg i hvert fald ikke få den rib (som vel egentlig er en slags patentstrik) til at gå op.

25.10.2020 - 18:09

DROPS Design svaraði:

Hei Christine. Ermene strikkes frem og tilbake og har du husket 1 kantmaske rille i hver side av arbeidet? mvh DROPS design

26.10.2020 - 15:13