
Hvernig á að prjóna v-hálsmál samkvæmt mynsturteikningu
Tags: kantur, klukkuprjón, peysur, vesti, áferð,
Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum v-hálsmál samkvæmt mynsturteikningu í peysunni «Highland Homecoming» í DROPS 216-5. Við prjónum upp lykkjur innan við 1 kantlykkju í kringum kant í hálsi áður en við prjónum samkvæmt mynsturteikningu A.2 og A.3. Peysan Highland Homecoming er prjónuð úr DROPS Air, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú getur séð þetta mynstur «Highland Homecoming» með því að smella á myndina að neðan.
Myndböndin okkar hafa ekki hljóð.
Við erum alþjóðlegt fyrirtæki og myndböndin okkar eru til sýnis fólki sem talar ólík tungumál og skilja ekki íslensku.
Þar sem ekki liggur fyrir tungumál sem við getum notað, höfum við þess í stað skriflegar leiðbeiningar til stuðnings við myndbandið og að auki er ekki neitt hljóð sem truflar þegar horft er. Góða skemmtun!
Skrifa athugasemd við þetta myndband
Your email address will not be published. Required fields are marked *.