
Hvernig á að skipta framstykki í tvennt til að gera V-hálsmál
Tags: kantur, klukkuprjón, peysur, vesti, áferð,
Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við skiptum framstykki í tvennt til að mynda V-hálsmál, eins og í peysunni «Highland Homecoming» í DROPS 216-5. Við prjónum minni peysu og byrjum myndbandið þar sem við setjum miðjulykkjuna á prjónamerki, þessi lykkja er síðar tekin upp þegar kantur í hálsi er prjónaður. Eftir það sýnum við nokkrar umferðir þar sem lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli (frá réttu) áður en við sýnum hvernig fellt er af fyrir handvegi (frá röngu). Peysan Highland Homecoming er prjónuð úr DROPS Air, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú getur séð þetta mynstur «Highland Homecoming» með því að smella á myndina að neðan.
Myndböndin okkar hafa ekki hljóð.
Við erum alþjóðlegt fyrirtæki og myndböndin okkar eru til sýnis fólki sem talar ólík tungumál og skilja ekki íslensku.
Þar sem ekki liggur fyrir tungumál sem við getum notað, höfum við þess í stað skriflegar leiðbeiningar til stuðnings við myndbandið og að auki er ekki neitt hljóð sem truflar þegar horft er. Góða skemmtun!
Skrifa athugasemd við þetta myndband
Your email address will not be published. Required fields are marked *.