DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Sky yarn
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1470.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Herringbone Hill

Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og klukkuprjónsmynstri. Stærð S - XXXL. Prjónuð húfa með köðlum og klukkuprjónsmynstri úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk.

DROPS 215-4

#herringbonehillset

DROPS Design: Mynstur sk-099
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 01, hvítur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-175 g litur 20, ljós beige

PEYSA:

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-300-350 g litur 01, hvítur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-125-150-150 g litur 20, ljós beige

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN - fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50 g litur 01, hvítur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25-25 g litur 20, ljós beige

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN - fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1470.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. A.1 á við um peysu, A.2 til A.4 á við um húfu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 73 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 2,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við laskalínu lykkju, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA-1 (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚRTAKA-2 (á við um húfu):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 8 lykkjur færri í hverri umferð með úrtöku + lykkjur sem fækka á í A.3).

Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 78-81-84-87-90-93 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm (tvöfalt uppábrot).
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjóni 1 umferð slétt, þar sem aukið er út um 13-14-15-16-17-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 91-95-99-103-107-111 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur þannig:
14-15-16-17-18-19 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttar lykkjur yfir næstu 12 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2-3-4-5-6-7 sléttar lykkjur, A.1 yfir næstu 31 lykkjur, 2-3-4-5-6-7 lykkjur slétt (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn,14-15-16-17-18-19 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki).

Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalínu lykkju í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-20-22-23-27-29 sinnum = 235-255-275-287-323-343 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri án útaukningar fyrir laskalínu þar til berustykkið mælist 21-24-26-28-31-35 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 33-36-39-41-46-49 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-58-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-79-85-89-99-105 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-58-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 33-36-39-41-46-49 lykkjur (= hálft bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 151-163-175-187-207-223 lykkjur. Haldið áfram hringinn með A.1 og sléttprjón eins og áður, þar til stykkið mælist 19-18-18-18-17-15 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé á 5. umferð í A.1. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 60-66-72-78-88-96 lykkjur og aukið jafnframt út 14-14-14-14-16-20 lykkjur jafnt yfir, A.1b yfir næstu 31 lykkjur (4 lykkjur fleiri = 35 lykkjur), sléttprjón yfir síðustu 60-66-72-78-88-96 lykkjur og aukið jafnframt út um 14-14-14-14-16-20 lykkjur jafnt yfir. Nú eru 183-195-207-219-243-267 lykkjur í umferð. Prjónið nú stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 72-78-84-90-102-114 lykkjur, endið með 1 lykkju slétt, haldið áfram með A.1b (= 35 lykkjur), * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 72-78-84-90-102-114 lykkjur, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið. ATH! Stroffið á að ganga jafnt upp með (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) alla umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 10 cm fækkið fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 48-52-56-58-66-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-62-66-74-80 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-3-4-4-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA-1.
Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2½-2-1½-1 cm millibili alls 9-10-11-12-15-17 sinnum = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Þegar ermin mælist 34-32-30-29-26-23 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-7-8-9-7-8 lykkjur = 45-45-48-51-51-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist alls 40-38-36-35-32-29 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að hálsmálið verði of stíft og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 96-102 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 ½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 28-31 lykkjur og fækkið jafnframt um 3 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðustu umferð í A.2 yfir næstu 35 lykkjur (4 lykkjur færri = 31 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 33-36 lykkjur og fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir = 84-90 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 25-28 lykkjur, A.3 yfir næstu 31 lykkjur (prjónið yfir lykkjur í A.2), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 28-31 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar húfan mælist ca 18-20 cm – endið eftir heila mynstureiningu A.3 á hæðina, setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (prjónamerkin eru sett á milli 2 lykkja og án þess að prjóna): Setjið fyrsta prjónamerkið eftir 5-6 lykkjur, hoppið yfir næstu 12-13 lykkjur, setjið etti prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 17-49 lykkjur (= 8-9 lykkjur slétt, 31 lykkjur í A.3, 8-9 lykkjur slétt), setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir 12-13 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, nú eru 8-9 lykkjur eftir í umferð.

Prjónið nú mynstur A.4 yfir A.3 og sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir í A.4, byrjar úrtaka hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 4 sinnum. Þegar öll úrtakan hefur verið gerð til loka og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 32-38 lykkjur eftir í umferð. Prjónið nú þær lykkjur sem eftir eru saman 2 og 2 = 16-19 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 26-28 cm ofan frá og niður.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.01.2021
Leiðrétting: HÚFA: Fitjið upp 96-102 lykkjur...
Yfirfarið á vefsvæði: 29.03.2022
KANTUR Í HÁLSMÁLI:...Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm (tvöfalt uppábrot)...

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
stingið hægri prjóni í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjum af vinstri prjóni (= klukkuprjónslykkja) = stingið hægri prjóni í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjum af vinstri prjóni (= klukkuprjónslykkja)
setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) = 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri)
lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri) = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri)
lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunum yfir (miðju lykkjan af lykkjum á nú að liggja yfir hinar 2 lykkjurnar = 2 lykkjur færri) = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunum yfir (miðju lykkjan af lykkjum á nú að liggja yfir hinar 2 lykkjurnar = 2 lykkjur færri)
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur af kaðlaprjóni
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri) = 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri)
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
Diagram for DROPS 215-4
Diagram for DROPS 215-4
Diagram for DROPS 215-4

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Laila skrifaði:

Hallo, kann man den Herringbone pullover nur mit 1 Faden Sky stricken ohne Kid silk? Wenn ja wie muss ich umrechnen mir dem Maschen Anschlag?Ich hab den mit beiden Wolle gestrickt aber der Wolle kratzt und heisst. Danke Laila

30.04.2025 - 08:16

DROPS Design svaraði:

Liebe Laila, am besten stricken Sie dann eine andere Wolle der Garngruppe A anstatt Kid-Silk, so brauchen Sie nichts umzurechnen; sonnst wird die Maschenprobe mit nur 1 Faden Sky verschieden sein, dann sollen Sie die ganze Anleitung je nach der neuen Maschenprobe umrechnen - beachten Sie, daß dann der Pullover anders aussehen würde. Viel Spaß beim Stricken!

30.04.2025 - 09:52

country flag Laila Langer skrifaði:

Hallo, Ich habe eine Frage zum aufteilen von Rumpfteil und Ärmel und zwar ich stricke Gr M nach der Raglanzunahme hab ich 255 M auf der Nadel plus die 4 Raglan Maschen,nehm ich die 4 Raglan Maschen zu der Aufteilung? dann hab ich mehr als 163M mit die 12 neue Maschen fürs Arm und die 4 Raglan Maschen ,komm ich auf 179 M Bitte klär mich auf. Danke Mfg Laila

07.04.2025 - 22:34

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Langer, vor Aufteilung haben Sie 255 M dann legen Sie die 52 Maschen von beiden Ärmeln still und schlagen 6 Maschen für beiden Seiten an, so sind es: 255-52+6-52+6=163 Maschen für den Rumpfteil. Viel Spaß beim Stricken !

08.04.2025 - 09:37

country flag Laila Langer skrifaði:

Hallo, kann ich den Hals 5-7cm stricken statt 10cm ohne zu umschlagen? Danke Mfg Laila

24.03.2025 - 19:49

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Langer, ja sicher, hier strickt man 10 cm für die doppelte Halsblende, aber dann wird sie nur 5 cm sein; so können Sie genauso long stricken, wie Sie es möchten. Viel Spaß beim Stricken!

25.03.2025 - 09:06

country flag Laila Langer skrifaði:

Hallo, Bein Raglanzunahme statt ein Umschlag machen kann ich auch M1R und M1L oder der machen verdoppeln? Noch was, ich bin linkshänderin und bei der zopfmuster mach ich so bei der Erklärung oder wo Maschen vorne sind muss ich die Maschen nach hinten legen u.s.w Danke Laila

20.03.2025 - 07:48

DROPS Design svaraði:

Liebe Laila, sicher können Sie die Zunahmen anders wie in der Anleitung stricken. Wegen Zöpfe weiss ich nicht genau, am besten machen Sie so eine Maschenprobe mit den Zöpfen, so trainieren Sie sich damit. Viel Spaß beim Stricken!

20.03.2025 - 10:21

country flag Laila Langer skrifaði:

Hallo, Der Pulli wird rund gestrickt meine Frage wie liest man die Diagramme? Rechts nach links? Ich verstehe nicht wie man der Patentmasche strickt. Können sie mir das erklären oder gibt's ein Video wo ich dass anschauen kann? Danke Laila

19.03.2025 - 07:53

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Langer, die Diagramme liest man in Runden immer rechts nach links; in diesem Video zeigt man, wie man diese Maschen strickt (auch wenn die untere Maschen bei der vorigen Runden rechts gestrickt wird, wird die PatentMuster so gestrickt, dh in die vorige Runde). Viel Spaß beim Stricken!

19.03.2025 - 15:53

country flag Pauline skrifaði:

Bonjour, quelle est l'aisance recommandée pour ce modèle ? Merci beaucoup

13.01.2025 - 11:34

DROPS Design svaraði:

Bonjour Pauline, mesurez un vêtement que vous avez et dont vous aimez la forme puis comparez ces mesures à celles du schéma du bas de page, vous pourrez ainsi choisir l'aisance souhaitée. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

13.01.2025 - 16:46

country flag Anna skrifaði:

Zaczełam robić sweter i mam problem z ilością oczek. Na przód jest więcej oczek niż na tył?

10.10.2024 - 15:27

DROPS Design svaraði:

Witaj Aniu. Wszystko jest w porządku, przód ma więcej oczek ponieważ ma na środku warkocz. Pozdrawiamy!

11.10.2024 - 22:39

country flag Susan skrifaði:

When you start the body you are to continue until the piece measures 7 1/2” then start ribbing for 4”. 7 1/2” seems a bit short for the body. What am I misunderstanding about this section of the pattern?

25.09.2024 - 04:36

DROPS Design svaraði:

Dear Susan, this is correct, body will measure 11 1/2 " in total, ie 29 cm - see also chart. Happy knitting!

25.09.2024 - 08:30

country flag Ann Weinblad skrifaði:

How do you work A1-B on the Herringbone Hill cable sweater. I cannot figure it out

18.08.2024 - 02:28

DROPS Design svaraði:

Dear Ann, in the first row work all squares and ignore the white spaces; these are to align the pattern taking into account the new stitches formed by the yarn overs in this row. So, knit 11, yarn over, knit 1, yarn over, knit 7, yarn over, knit 1, yarn over, knit 11. Then work over these stitches, including the new stitches formed by yarn overs as explained in the second row. Happy knitting!

18.08.2024 - 22:53

country flag Dina skrifaði:

Thank you for your prompt response. So the use of a smaller needle applies only to ribbing? It appeared to start higher up while still working lower body of sweater. Just wanted to clarify. Thanks!

31.07.2024 - 19:03