DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Herringbone Hill Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og klukkuprjónsmynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-3
DROPS Design: Mynstur sk-100
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-300-350 g litur 01, hvítur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-125-150-150 g litur 20, ljós beige

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN - fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, bogalaga (hvít) NR 522: 5-5-5-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 27) = 2,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja lykkju og 3. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við laskalínu lykkju, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm neðan við kant í hásmáli. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 8-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 87-90-93-99-102-105 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm (tvöfalt uppábrot).

BERUSTYKKI:
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir næstu 6 lykkjur (3 lykkjur færri = 4 lykkjur fyrir kant að framan), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 73-76-79-85-88-91 lykkjur og aukið út 26-27-28-26-27-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir næstu 6 lykkjur, prjónið síðustu lykkjuna slétt (3 lykkjur færri = 4 lykkjur fyrir kant að framan) = 107-111-115-119-123-127 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, BERUSTYKKIÐ ER NÚ MÆLT FRÁ ÞESSU PRJÓNAMERKI! Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni).

Prjónið nú mynstur þannig:
4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 16 lykkjur, 2-3-4-5-6-7 lykkjur slétt (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttar lykkjur yfir næstu 12 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2-3-4-5-6-7 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 31 lykkjurnar, 2-3-4-5-6-7 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2-3-4-5-6-7 lykkjur slétt, A.3 yfir næstu 16 lykkjur, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). JAFNFRAMT er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalínu lykkju í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-20-22-23-27-29 sinnum = 251-271-291-303-339-359 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með mynstur án útaukningar fyrir laskalínu þar til berustykkið mælist 21-24-26-28-31-35 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 41-44-47-49-54-57 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 48-52-56-58-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-79-85-89-99-105 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-52-56-58-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 41-44-47-49-54-57 lykkjur (= vinstra framstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 167-179-191-203-223-239 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og prjónið mynstur A.1, A.2 og A.3 eins og áður og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 19-18-18-18-17-15 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé á 5. umferð í A.1, A.2 og A.3. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3b yfir næstu 16 lykkjur (2 lykkjur fleiri = 18 lykkjur), brugðnar lykkjur yfir næstu 48-54-60-66-76-84 lykkjur og aukið jafnframt út 10-10-13-13-15-16 lykkjur jafnt yfir (= 58-64-73-79-91-100 lykkjur), A.2b yfir næstu 31 lykkjur (4 lykkjur fleiri = 35 lykkjur), brugðnar lykkjur yfir næstu 48-54-60-66-76-84 lykkjur og aukið jafnframt út 10-10-13-13-15-16 lykkjur jafnt yfir (= 58-64-73-79-91-100 lykkjur), A.1b yfir næstu 16 lykkjur (2 lykkjur fleiri = 18 lykkjur), 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú eru 195-207-225-237-261-279 lykkjur í umferð. Prjónið nú stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og haldið áfram með A.1b yfir A.1, A.2b yfir A.2 og A.3b yfir A.3 – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu. ATH! Stroffið á að ganga jafnt upp með (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) alla leið á milli kantlykkja að framan. Þegar stroffið mælist 10 cm fækkið fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 48-52-56-58-66-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-62-66-74-80 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-3-4-4-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2½-2-1½-1 cm millibili alls 9-10-11-12-15-17 sinnum = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Þegar ermin mælist 34-32-30-29-26-23 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-7-8-9-7-8 lykkjur = 45-45-48-51-51-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist alls 40-38-36-35-32-29 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að hálsmálið verði of stíft og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = stingið hægri prjóni í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjum af vinstri prjóni (= klukkuprjónslykkja)
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat

diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Julia wrote:

I like the white sky and light beige kid silk combination but am wondering whether there are there any other color combinations of these two yarns that you can recommend? I have trouble judging from the online color choices. Perhaps something a bit darker. Thanks.

03.11.2023 - 04:50

DROPS Design answered:

Dear Julia, you will find some more example of yarn combinations of Sky and Kid-Silk at the bottom of the shadecardbut your DROPS store will be able to suggest you even more combination, do not hesitate to contact them even per mail or telephone. Happy knitting!

03.11.2023 - 06:51

country flag Jenny Douglas wrote:

My question is about the raglan stitch. It it aleays the same stitch? If I divide the work into sections, there are 14 stitches in the sleeve to start with. After the first row there is yo, 1, yo, 12, yo, 1, yo. So there are 16 stitches after the purl row. On the third row, Should I yo, k1, yo, k14, yo, k1, yo Or k1, yo, k1, yo, k12, yo, k1, yo, k1 . ? Do the raglan stitches stay at the edge of the section and the middle increase, or do the middle stitches stay at 12.?

11.12.2022 - 20:27

DROPS Design answered:

Dear Jenny, after the first increase, there will be 14 stitches in the sleeve. The raglan stitch is always 1 stitch that is worked on top of the previous raglan stitch. So you need to work: yo, k1, yo, k14, yo, k1, yo. Happy knitting!

11.12.2022 - 23:14

country flag Pia Myrlund wrote:

Kan man erstatte Drops Sky med Drops Soft Tweed, og vil jakken så blive mere "fast" og holde facon

17.08.2022 - 08:01

DROPS Design answered:

Hei Pia. Både DROPS Sky og DROPS Soft Tweed tilhører samme garngruppe og kan brukes om hverandre. Soft Tweed`n vil nok gjøre at fasongen holder seg litt bedre da den er mer formsterk enn Sky. Du vil nok bruke mer garn enn Sky, da Soft Tweed har en kortere løpelengde. Sjekk ut vår Garnkalkulator (til høyre for bildet) og den vil regne ut hvor mye garn du trenger i den str. du skal strikke. Se også på garnsiden til Soft Tweed, scroll ned og se/les litt om DROPS Soft Tweed + DROPS Kid-Silk under Tips&Hjelp. God Fornøyelse!

22.08.2022 - 09:29

country flag Christine wrote:

Bonjour, Est-ce que dans cet ouvrage "gilet" ou veste, aig. circulaires, il y a des "endroit" et des "envers" parce que l'on fait des aller-retour, parce que l'ouvrage est ouvert devant. Autrement dit, l'on retourne l'ouvrage ? C'est la première fois que je ferais des torsades ; alors il serait préférable que je tricote le pull ? Merci par avance.

02.02.2022 - 04:15

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, ce gilet se tricote effectivement en rangs = en allers et retours, autrement dit alternativement sur l'endroit et sur l'envers - cette vidéo montre comment tricoter en allers et retours sur aiguille circulaire, cela pourra peut-être vous aider. Bon tricot!

02.02.2022 - 08:15

country flag Line wrote:

Bonjour Quand vous dites de monter 93 mailles ( y compris 1 maille lisière de chaque côté) Est-ce que vous voulez dire plus 2 = 95 mailles Merci

30.12.2021 - 19:37

DROPS Design answered:

Bonsoir Line, vous devez monter 93 mailles (1 maille lisiere + 91 mailles + 1 maille lisiere). Bon tricot!

30.12.2021 - 19:57

country flag Line wrote:

Bonjour, Quand vous dites de monter 93 mailles (y compris 1 maille lisière de chaque côté) Est-ce que ça veut dire plus 2 mailles = 95 mailles. ? Merci

30.12.2021 - 19:34

DROPS Design answered:

Bonjour Line, les mailles lisières sont comprises dans les 93 mailles et ne sont pas à ajouter, montez 93 mailles (et 2 d'entre elles seront les mailles lisières). Bon tricot!

03.01.2022 - 14:25

country flag Bulat Erzsébet wrote:

Kedves Joanette! Eltévesztettem a nevét az első levelemben... Nagyon sajnálom! 🤭 🙂

07.11.2021 - 10:06

country flag Bulat Erzsébet wrote:

Kedves Katherine! Nagyon szeretném megkötni ezt a kardigánt,de nem található a minta leírása. Segitség! 🙂 Köszönöm!

06.11.2021 - 13:59

country flag Katherine wrote:

Hello! This pattern is so beautiful and fun to make! I have 2 questions about it. 1. When it gives a total stitch count is that including the bands? For example I am making a size small so when it says you should have 251 stitches after the yoke increase, is this including the bands? 2. I forgot to place a stitch marker where it said so can i just measure the length of the yoke from the end of the ribbing for the neckline? Thank you!!

20.09.2021 - 14:20

DROPS Design answered:

Dear Katherine, yes the stitches for the buttonbands are included in the given stitchnumber. The marker for measuring should have been put in the first row after the ribbing of the neck, so you can add it later, or make your measurments from that point. Happy Stitching!

20.09.2021 - 14:31

country flag Undine wrote:

Aber 15 M... das ist mit Nadelstärke 5,5 unmöglich !!!

29.06.2021 - 16:58