Claudia skrifaði:
Hallo, wo fange ich mit der Ärmelaufnahme an? An den neu angeschlagenen Maschen des Rumpfteils, die für den Armauschnitt am Vorderteil aufgenommenen wurden oder kurz danach? Irgendwie ist mir das, aus der Anleitung nicht ganz klar. Danke, für die Antwort!
20.03.2021 - 07:52DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, starten Sie sofort nach den neuangeschlagenen Maschen bis die stillgelegten Maschen und nur bis die neu angeschlagenen Maschen, dh die Maschen sollen in den Reihen aufgenommen werden, nicht in die neu angeschlagenen Maschen. Die ersten Reihen von der Ärmel werden dann an den neu angeschlagenen Maschen für das Armoch zusammen genäht. Viel Spaß beim stricken!
22.03.2021 - 10:22
Eva Andersson skrifaði:
Jag ska sticka modell218-7 sunday vibes i Drops sky färg hasselnöt. Vilken färg i Kid silk passar till denna färg?Liknar den mest? Mvh Eva
25.02.2021 - 17:02DROPS Design svaraði:
Hej Eva, DROPS Kid Silk 35 chokolade passer perfekt til DROPS Sky hasselnöt men se også denne: Garnkombinationer :)
26.02.2021 - 08:21
Camilla skrifaði:
Hei! Spørsmål ang skulder økning størrelse M. Har 72m på pinne, så skal man øke 1 før & 1 etter skulder. "Øk slik på hver omg totalt 18 ganger og på hver 2.omg 2ganger = 152m", men jeg får ikke matten til å stemme. Blir helt gæren. Skal jeg øke 4m, så 8m, så 4m, så 8m i 18 omg? Da får jeg 108m bare. 152 tallet, skal det være total m på pinne etter økning eller er det antall m laget ved å øke? Hjelp!
24.01.2021 - 20:34DROPS Design svaraði:
Hei Camilla. Du starter med 72 masker på pinnen. Så skal det økes på hver omgang med 4 masker 18 ganger (18 x 4 masker = 72 økte masker) + 2 ganger der det økes på hver 2. omgang (2 x 4 =8). Da blir det 72 masker + 72 økte masker + 8 økte masker = 152 masker. God Fornøyelse!
01.02.2021 - 09:42
Maria skrifaði:
Guten Tag Stimmt die Menge (Grösse L 250 gr. Sky / 100 gr Kid Silk) des Material für diesen Pullover? Mir scheint es, dass es zuwenig ist. Können Sie mir die Menge bestätigen? Vielen Dank für die Unterstützung.
20.01.2021 - 07:10DROPS Design svaraði:
Liebe Maria, so stimmt es, Sie brauchen 200 g DROPS Sky (4 Knäuel) und 100 g DROPS Kid-Silk (4 Knäuel) in der Größe S mit einer Maschenprobe von 15 Maschen in der Breite und 24 Reihen in der Höhe im Strukturmuster (= A.1) mit 1 Faden von jeder Garnqualität (= 2 Fäden). Hier lesen Sie mehr über die Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!
20.01.2021 - 07:52
Undine skrifaði:
Ich würde diesen Pullover gerne mit Puna 06 und Kid Silk stricken. Das Puna Garn in Grau natural mix habe ich schon. Welche Farbe von Kid Silk passt dazu?
03.12.2020 - 16:11DROPS Design svaraði:
Liebe Undine, wenden Sie sich bitte direkt an Ihrem DROPS Laden, gerne wird man Ihnen die beste passen Farbe empfehlen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!
03.12.2020 - 16:43
Sigrid skrifaði:
Hallo, auf den Fotos sieht es nach einem einfachen 2re / 2li Muster aus - das Diagramm zeigt aber etwas anderes? Vielen Dank
21.11.2020 - 21:04DROPS Design svaraði:
Liebe Sigrid, ja genau, Muster is 2 Maschen rechts, 2 Maschen kraus rechts (=diese 2 Maschen werden in runden abwechslungsweise rechts und links gestrickt). Viel Spaß beim stricken!
23.11.2020 - 08:59
Heather skrifaði:
I'm so sorry to be such a dunder Kopf but unless I go to the original pattern instructions, there is no English version of pattern or diagrams. English being my first language, lol over time I might learn to read Norwegian but I could use some help with this! Thank you ever so much. Looking forward ☺️ to your response.
27.09.2020 - 09:50DROPS Design svaraði:
Dear Heather, thanks for noticing, missing diagram text in US-English will be added - you can check it from the Uk-English pattern while pattern will be updated. Happy knitting!
28.09.2020 - 10:02
Leora skrifaði:
I do not see the diagram on this page.
12.09.2020 - 18:16DROPS Design svaraði:
Dear Leora, you will find diagram A.1 next to the measurement chart (just below sleeve), it's a diagram worked over 4 sts and 8 rows. Happy knitting!
14.09.2020 - 10:02
Silje skrifaði:
Hvorfor skal ikke for- og bakstykke strikkes sammen på rundpinne? Og hvorfor skal ikke ermene strikkes på rundpinne?
08.09.2020 - 13:42DROPS Design svaraði:
Hej Silje, det bliver lettere at strikke frem og tilbage med de forkortede pinde på ærmet. Men du må gerne strikke rundt om du hellere vil det :)
09.09.2020 - 13:56
Jodhi skrifaði:
On your pattern you say.....FRONT PIECE: = 62-66-74-82-90-94 stitches. ......... The piece is now measured from here. The new stitches are worked in garter stitch (a total of 5-6-6-6-6-6-7 stitches in garter stitch on each side of the piece). I think it should be 5-6-6-6-6-7. I think you have one too many 6s listed in the stitches.
24.08.2020 - 00:33DROPS Design svaraði:
Dear Jodhi, thanks for your feedback, pattern will be edited asap. Happy knitting!
24.08.2020 - 09:03
Sunday Vibes#sundayvibessweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri og útaukning á öxlum fyrir axlarsæti. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-7 |
||||||||||
------------------------------------------------------- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir öxl): Aukið út hvoru megin við axlalykkjur þannig: Prjónið fram að prjónamerki á undan axlarlykkjum, notið hægri prjón til að lyfta þræðinum á milli lykkju sem þú hefur prjónað og næstu lykkju upp á vinstri prjón þannig að vinstri hliðin við hlekkinn komi á réttu á stykki, prjónið hlekkinn slétt (hlekkurinn verður nú snúinn þannig að ekki myndist gat og lykkjan hallar til hægri), færið prjónamerkið yfir á hægri prjón. Prjónið axlalykkjurnar fram að næsta prjónamerki, færið prjónamerkið yfir á hægri prjón (þ.e.a.s. axlalykkjurnar verða eins), notið hægri prjón til að lyfta upp þræðinum á milli lykkju sem þú hefur prjónað og næstu lykkju á vinstri prjóni þannig að hægra hlið á hlekknum komi frá réttu á stykki, prjónið hlekkinn slétt í aftari lykkjubogann (hlekkurinn er nú snúinn svo ekki myndist gat og lykkjan hallar til vinstri). ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja garðaprjón. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður þar til útaukning fyrir axlarlykkjur er lokið. Setjið síðan lykkjur fyrir öxl á þráð og framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig þar til berustykkið og fram- og bakstykki er lokið. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-72-72-80-80-88 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan mynstur A.1 hringinn í 12 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= ca mitt að aftan og á undan 2 lykkjum slétt) og setjið eitt prjónamerki eftir 32-36-36-40-40-44 lykkjur (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá prjónamerki á bakstykki! Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerkið eftir 8-12-12-12-12-16 lykkjur (= ca hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur (= öxl), setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 18-22-22-22-22-26 lykkjur (= framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur (= öxl), setjið eitt prjónamerki hér, nú eru 10-10-10-10-10-10 lykkjur eftir í umferð (= ca hálft bakstykki). Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður, jafnframt í næstu umferð byrjar útaukning í hverri hlið fyrir axlarlykkjur (= 4 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu) – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverri umferð 18-18-22-26-30-30 sinnum og í annarri hverri umferð 2-2-2-2-2-2 sinnum = 144-152-168-192-208-216 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka mælist stykkið ca 9-9-11-13-14-14 cm frá prjónamerki og niður að miðju að aftan. Nú skiptist stykkið fyrir öxl, framstykki og bakstykki (þær 2 lykkjur slétt í hvorri hlið á öxlum eru nú prjónaðar inn á bakstykki og framstykki þannig): Prjónið fyrstu 30-34-38-42-46-50 lykkjur í umferð (= ca hálft bakstykki), prjónið næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= öxl), prjónið næstu 62-66-74-82-90-94 lykkjur (= framstykki), prjónið næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= öxl), prjónið síðustu 32-32-36-40-44-44 lykkjur (= ca hálft bakstykki). Klippið frá og setjið lykkjurnar fyrir bakstykki á þráð. Prjónið nú framstykki og bakstykki hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 62-66-74-82-90-94 lykkjur. Prjónið fram og til baka í mynstri eins og áður og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju í lok fyrstu 2 umferða (= 1 kantlykkja í hvorri hlið) = 64-68-76-84-92-96 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 19-21-22-23-25-27 cm frá prjónamerki (stykkið mælist ca 24-26-27-29-31-33 cm frá miðju á öxl og niður), fitjið upp 4-5-5-5-5-6 nýjar lykkjur í lok næstu 2 umferða fyrir handveg = 72-78-86-94-102-108 lykkjur. Héðan mælist nú stykkið. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni (alls 5-6-6-6-6-7 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið á stykki). Haldið áfram þar til stykkið mælist 31-31-32-32-32-32 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir lykkjur í garðaprjóni – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður frá axlalykkjum. Setjið eitt prjónamerki mitt í axlalykkjur. Ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki. Byrjið með 1 þræði í hvorri tegund og hringprjón 6 og prjónið upp lykkjur í handvegi frá réttu innan við 1 kantlykkju garðaprjón þannig: Byrjið neðst og innst í horni við handveg og prjónið upp 23-23-27-27-27-31 lykkjur upp að axlalykkjum, prjónið 10-10-10-14-14-14 axlalykkjur í mynstri eins og áður, prjónið upp 23-23-27-27-27-31 lykkjur niður meðfram annarri hlið og niður að horni innst við handveg = 56-56-64-68-68-76 lykkjur. Prjónið nú áferðamynstur (A.1) og stuttar umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 kantlykkja garðaprjón , * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (garðaprjón) *, prjónið frá *-* upp að axlalykkjum, prjónið 10-10-10-14-14-14 axlalykkjur í mynstri eins og áður, prjónið 2 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði svo ekki myndist gat. UMFERÐ 2: Prjónið A.1 eins og áður yfir fyrstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur, snúið, herðið á þræði svo ekki myndist of stórt gat. UMFERÐ 3: Prjónið A.1 eins og áður yfir fyrstu 16-16-16-20-20-20 lykkjur, snúið, herðið á þræði svo ekki myndist of stórt gat. UMFERÐ 4: Prjónið A.1 eins og áður yfir fyrstu 18-18-18-22-22-22 lykkjur, snúið, herðið á þræði svo ekki myndist of stórt gat. Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið 2 lykkjur fleiri í hverri umferð sem er prjónuð. Þegar 1 lykkja er eftir í hvorri hlið, er stuttum umferðum lokið. Ermakúpan mælist ca 9-9-11-11-11-13 cm. Takið prjónamerkið úr og setjið mitt á ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Prjónið fram og til baka með áferðamynstri og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 7-7-7-7-7-8 cm frá þar sem stuttum umferðum lauk, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-1½-1½-1 cm millibili alls 8-8-10-12-12-14 sinnum = 40-40-44-44-44-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-44-41-40-40-38 cm – eða að óskaðri lengd. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermi innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og saumið ermi við 4-5-5-5-5-6 lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir handveg í hlið. Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður þar til eftir eru ca 17 cm fyrir klauf. Endurtakið í hinni hliðinni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sundayvibessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.