DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 218-4
DROPS Design: Mynstur li-123
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 0206, ljós beige

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 80 cm fyrir kaðla og áferðamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA Marble, NR 629: 4-4-5-5-5-5 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 197 lykkjur) mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 195 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 61) = 3,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp. Fellt er af fyrir handveg, síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig til loka. Stykkið er saumað saman á öxlum. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kanta að framan, kant í hálsi og kant í kringum handveg.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 197-213-229-245-277-293 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3 með Lima.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Prjónið alls 4 umferðir stroff fram og til baka svona. Prjónið síðan 1 umferð brugðið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt) JAFNFRAMT er aukið út um 61 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING = 258-274-290-306-338-354 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki 66-70-74-78-86-90 lykkjur inn frá hvorri hlið = 126-134-142-150-166-174 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar þegar fella á af fyrir handveg.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 11 lykkjur), prjónið A.2 (= 24 lykkjur), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.4 yfir næstu 24-32-40-48-64-72 lykkjur (prjónamerki situr mitt í þessa 24-32-40-48-64-72 lykkjur), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.2 (= 24 lykkjur), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.2 (= 24 lykkjur), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.4 yfir næstu 24-32-40-48-64-72 lykkjur (prjónamerki situr mitt í þessum 24-32-40-48-64-72 lykkjum), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.2 (= 24 lykkjur), prjónið A.5 (= 11 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af fyrir handvegi, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 63-67-71-75-83-87 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki) – setjið þessar lykkjur á þráð, fellið af 6 lykkjur fyrir handvegi (þ.e.a.s. fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 120-128-136-144-160-168 lykkjur eins og áður (= bakstykki) – setjið þessar lykkjur á nýjan þráð, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónið eins og áður yfir þær 63-67-71-75-83-87 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). Klippið ekki frá.
Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig. Byrjið með vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 63-67-71-75-83-87 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og síðan 1 lykkja 2-4-4-3-7-7 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 5 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum og síðan 1 lykkju 10-10-11-11-10-10 sinnum.
Eftir allar affellingar fyrir handveg og hálsmáli eru 33-35-36-38-39-41 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Felið nú af fyrir aflíðandi öxl með því að fella lykkjur af í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 8-9-9-10-10-10 lykkjur 3 sinnum og síðan 9-8-9-8-9-11 lykkjur 1 sinni.
Nú hafa allar lykkjur verið felldar af og stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka 63-67-71-75-83-87 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinnum 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og síðan 1 lykkju 2-4-4-3-7-7 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 5 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum og síðan 1 lykkju 10-10-11-11-10-10 sinnum.
Eftir allar affellingar fyrir handveg og hálsmál eru 33-35-36-38-39-41 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið nú af fyrir aflíðandi öxl með því að fella af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 8-9-9-10-10-10 lykkjur 3 sinnum og síðan 9-8-9-8-9-11 lykkjur 1 sinni.
Allar lykkjur hafa nú verið felldar af og stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka 120-128-136-144-160-168 lykkjur frá þræði á hringprjón 4,5. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-4-4-3-7-7 sinnum í hvorri hlið = 108-112-116-120-124-128 lykkjur eftir.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið nú af fyrir aflíðandi öxl í hvorri hlið JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli mitt að aftan eins og útskýrt er að neðan:

AFLÍÐANDI ÖXL:
Fellið af fyrir aflíðandi öxl í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 8-9-9-10-10-10 lykkjur 3 sinnum í hvorri hlið og 9-8-9-8-9-11 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið.

HÁLSMÁL AFTAN Í HNAKKA:
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 10 lykkjur jafnt yfir miðju 42-42-44-44-46-46 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum í hvorri hlið.
Allar lykkjur hafa nú verið felldar af og stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjóni upp ca 97 til 111 lykkjur á hringprjón 3 meðfram kanti mitt fram og upp þar sem hálsmál byrjar (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í ca 2½ til 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu í botni á hálsmáli á vinstra framstykki og prjónið upp ca 97 til 111 lykkjur á hringprjón 3 meðfram kanti mitt fram (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 3-3-4-4-4-4 hnappagötum jafnt yfir. Efsta hnappagatið er staðsett ca 10-10-8-8-8-8 cm frá botni á hálsmáli og neðsta hnappagatið ca 3 cm frá neðri kanti.
1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kantur að framan mælist ca 2½ til 3 cm – sjá AFFELLING!

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu og prjónið upp ca 139 til 175 lykkjur á hringprjón 3 meðfram hálsmáli innan við 1 kantlykkju (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1).
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – JAFNFRAMT er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í vinstri kanti að framan (fellt er af fyrir hnappagati alveg eins og í kanti að framan, en stillið bilið á milli frá kanti þannig að það komi beint yfir hnappagöt í kanti að framan).
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið alls 4 umferðir stroff fram og til baka svona. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!

KANTUR Í HANDVEG:
Byrjið frá réttu í botni á handvegi og prjónið upp ca 110 til 138 lykkjur á stuttan hringprjón 3 í kringum handveg innan við 1 kantlykkju (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið síðan 4 umferðir stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið.
Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir AFFELLING!
Prjónið annan kant í kringum hinn handveginn á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í hægri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón, framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Piisa Luukka-McFarquhar wrote:

It would be interesting to see a back view of this project as well in the photographs, not just different versions of the front view.

30.12.2023 - 17:04

country flag Alejandra Hernández Godínez wrote:

Hello. Why in the A.4 grapf does'nt appears lines in white? And in the other graphs there are lines in white? I understand that in every wrong side rows i make the stitches as they appear. Please help me

09.10.2023 - 14:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs Godinez, pattern is different as the other, in A.4, you will work (seen from RS): 4 sts stocking stitch, 4 sts garter stitch for 6 rows, then 4 sts garter stitch, 4 sts stocking stitch for 6 rows. Repeat these 8 rows. Happy knitting!

09.10.2023 - 16:23

country flag Bernadette wrote:

Bonjour l’ échantillon donné 20 m en largeur pour 10 cm pour la taille S on compte 258 m après les côtes cela donne pour moi 129 cm pour cette veste je trouve cela grand pour une petite taille Ou est mon erreur

14.10.2022 - 18:37

DROPS Design answered:

Bonjour Bernadette, l'échantillon se tricote en jersey, or, le gilet sera ensuite tricoté avec de nombreuses torsades, et, il faut plus de mailles pour faire une torsade que pour tricoter du jersey, pour la même largeur, raison pour laquelle on a besoin de davantage de mailles; si votre échantillon est juste, alors vous aurez les bonnes mesures finales comme dans le schéma en conservant cette même tension. Retrouvez ici plus d'infos sur l'échantillon. Bon tricot!

17.10.2022 - 08:54

country flag ROUL wrote:

Bonjour je voudrzis fzire le modele 218_4 je voudrais le fzire en 3 morceaux je voudrais savoir pour le dos il est comment di vous avez une photos car je suis un peut perdu je fait la taille xxl merci

18.08.2022 - 10:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roul, nous ne sommes malheureusement pas en mesure d'adapter chacun de nos modèles à chaque demande, mais vous pouvez vous baser sur les explications pour faire vos ajustements en fonction de la taille, adaptez le nombre de mailles (mailles lisières à ajouter) et replacer les diagrammes si besoin. Bon tricot!

18.08.2022 - 14:55

country flag Brenda Baird wrote:

Wondering if you might be able to advise me on something: I am considering knitting this pattern but want to add about 12 inches to the length. How much more yarn, would you estimate that I need?

06.05.2022 - 14:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Baird, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, but please contact your DROPS store - they will be able to help you, even per mail or telephone. Happy knitting!

06.05.2022 - 16:05

country flag Janet wrote:

Hello, Could you please confirm if I am reading the diagrams correctly? Thank you very much for your kind help! A 1 - Row 2 (wrong side) P1, K2, P6, K1, P1 A 4 - Row 2 (wrong side) P4, K4

21.01.2022 - 16:41

DROPS Design answered:

Hi Janet, read the diagrams from left to right on the wrong side. A.1 row 2: P1, K1, P6, K2, P1. A.4 row 2: K4, P4. Happy knitting!

21.01.2022 - 17:20

country flag Janet wrote:

Hello, I am stuck on the increase stitches on the body part. If i were to increase a stitch after the 3rd stitch (excluding the edge stitches), there will be total of 65 stitches increased instead of 61 stitches. Should I stop the increase after 61 stitches have been done? Thank you in advance for your kind help!

14.01.2022 - 16:57

DROPS Design answered:

Dear Janet, you increase after each 3rd stitch until you have worked 61 stitches. Happy knitting!

17.01.2022 - 00:53

country flag Aleksandra wrote:

Hi, I cannot go further back piece. I am not really sure in which order to decrease and cast off stitches in parts "diagonal shoulder" and "back of neck". Can you please explain it in more details or maybe order? I don't understand how to decrease evenly within middle sts and follow the pattern at the same time and how to continue decreasing stitches in diagonal shoulders if we casted off middle sts for neck.. finish them separately? Pls help, i really love this vest!

29.05.2021 - 13:30

DROPS Design answered:

Dear Alexsandra,at the middle of the back, you simply decrease the amount of stitches,, and the next row cast off, so keeping in pattern needs only extend to keep the knit and purl stitches in order. And yes, the two shoulders needs to be finished separately. Happy Knitting!

29.05.2021 - 14:12

country flag Lotte Bjerregaard wrote:

Hej, Jag har stickat denna, men skulle vilja ha ärmar på. Kanin rekommenderar ett mönster så jag har rätt form mot skulderna? Jag kan nog anpassa mönstret själv, men hur får jag ett ärm som passar? Lotte

10.03.2021 - 13:50

DROPS Design answered:

Hej Lotte. Du kan se på våra andra tröjor/ koftor i garngrupp B för att se om du hittar någon som du kan använda. Kanske att tex nr 216-38 kan fungera. Mvh DROPS Design

11.03.2021 - 06:42

country flag Ag Urquhart wrote:

Are the wrong side rows shown on the diagram...or is the diagram all right side rows with doing purl in every other row...hope this makes sense

10.02.2021 - 20:23

DROPS Design answered:

Dear Ag Urquhart , the diagrams show every row of the pattern. Every second row is knitted "as it seen" or "covered", that means from teh wrong side the stitches of the cables are purled, the other stitches are knitted. Happy Knitting!

11.02.2021 - 00:37